Dagblaðið - 30.01.1981, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
(í
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
i)
FJÓRDA TAP KR
í RÖD í KÖRFUNNI
- ÍS vann þá í arnvað sinn á skömmum tfma - nú 73-69
Allt gengur nú á afturfótun-
um hjá KR í körfunni og liðið
tapaði í gærkvöld sínum fjórða
leik í röð í úrvalsdeildinni. I
annað skipti á skömmum tima
lögðu Stúdentar þá að velli —
nú 73-69. KR lék eins og í
síðasta leik án Jóns Sigurðs-
sonar og munar um minna.
Hins vegar lék Kolheinn Páls-
son með liðinu í gær og gamla
kempan Einar Bollason var
reiðubúin á bekknum.
Leikurinn í gær var ágætlega
leikinn á köflum og mjög jafn
og spennandi. KR hafði yfir-
höndina framan af, t.d. 20-13
eftir 10 mín., en þá tóku'Stúd-
entar leikhlé. Þeir skoruðu
næstu 8 stig og komust yfir, 21-
13. Var þáttur Jóns Oddssonar
þá stór en hraði hans setti KR-
inga iðulega út af laginu. KR
komst aftur yftr fyrir hlé og
þegar blásið var til hlés var
staðan 40-34 KR í vil.
KR hafði síðan lengst af yfir-
höndina í s.h. en síðan fór að
draga saman með liðunum. Oft
KRræður
Steves
KR-ingar réðu í fyrradag
þjálfarann Manfred Steves,
fyrir meistaraflokk liðsins í
knattspyrnunæsta sumar. Steves
þessi er 39 ára gamall Þjóðverji
og hefur m.a. fengizt við þjálf-
un í Þýzkalandi, Belgíu, Hol-
landi og Sviss og víðar með
góðum árangri.
Tékkar
töpuðu
Búlgarir sigruðu Ekvador 3-1
í vináttulandsleik 1 Quito í
Ekvador í gærkvöld. Þá unnu
Bólivíumenn Tékka 2-1 í fyrra-
kvöld í vináttulandsleik.
TveiráHM
stúdenta
áskíðum
Tveir íslcnzkir skíðamenn,
Bjarni Þórðarson og Kristinn
Sigurðsson, munu i næsta mán-
uði halda utan til keppni á
heimsmeistaramóti stúdenta á
skíðum.
Mótið fer fram í Pyrenea-
fjöllunum og munu þeir félagar
halda til Barcelona upp úr
miðjum febrúar. Þetta er í
fyrsta skipti sem íslenzkir stúd-
entar taka þátt í þessari keppni.
Leikmenn Crystal Palace
streyma nú til hins nýja fram-
kvæmdastjóra félagsins, ítalans
Dario Gradi, sem áður stjórn-
aði Wimbledon i 4. deild, og
óska eftir að vera settir á sölu-
lista.
Sá síðasti til þess í gær var
Gerry Francis, fyrirliði Palace-
liðsins og fyrrum fyrirliði Eng-
lands. Ósk hans var tekin til
greina og Francis settur á sölu-
listann. í viðtali við BBC í.gær
sagði hann að ekkert sérstakt
félag hefði haft samband við
hann eða félagið um hugsanlega
sölu. Francis var keyptur frá
QPR 1979 fyrir 400 þúsund
sterlingspund.
var jafnt en þegar 2,45 mín.
voru til leiksloka komust Stúd-
entar yfir, 71-69. Þrátt fyrir
heilmikinn darraðardans í lokin
var aðeins ein karfa gerð og
hún var eign Gísla Gísla í ÍS,
sem sigraði þar með 73-69 —
sanngjarnt.
Þrátt fyrir árin fjölmörgu var
Bjarni Gunnar beztur í ÍS í gær.
Jón Oddsson var mjöggóður en
var undarlega kældur þegar sízt
varði. Gisli er alltaf seigur. Hjá
KR var það eins og undanfarið
Garðar Jóhannsson sem var í
sérflokki. Eini maður liðsins
sem virðist halda einbeitingu
leiktimann á enda. Kolbeinn
Pálsson bætti sér upp hraða-
Þeir Hreinn Halldórsson og
Óskar Jakobsson munu fara á
Evrópumeistaramótið í frjáls-
um íþróttum innanhúss sem
fram fer í Grenoble í Frakk-
landi dagana 21. og 22. febrúar.
Áður höfðu þeir Clive Allen,
Peter Nicholas og David Fry
farið fram á að vera settir á
sölulista félagsins og Gradi
samþykkti það. Greinilegt að
hinn nýi aðaleigandi Crystal
Palace, Ron Noades —
stjórnarformaður Wimbledon
— verður fljótur að ná aftur
þeim peningum sem hann lagði
út á dögunum, þegar hann yfir-
tók félagið.
Þá fékk einn stjórinn spark í
gær. Það var Tom McAnerney
hjá Aldershot í 4. deild, sem
verið hefur framkvæmdastjóri
félagsins í níu ár, eða lengur en
nokkur annar stjóri hjá 4.
deildarliði. -hsím.
missinn með löngum en um leið
hnitmiðuðum sendingum.
í heild virðist mórallinn eða öllu
heldur móralsleysið vera að ríða
KR að fullu.
Stigin. ÍS: Bjarni G. Sveins-
son 19, Mark Coleman 18, Jón
Oddsson 17, Gísli Gislason 12,
Ingi Stefánsson 5ogÁrni Guð-
mundsson 2. KR: Garðar
Jóhannsson 26, Keith Yow 15,
Ásgeir Hallgrimsson 10, Ágúst
Líndal 8, Kolbeinn Pálsson 4,
Eiríkur Jóhannesson 4, Bjarni
Jóhannesson 2.
Dómarar voru Kristbjörn AI-
bertsson og Björn Ólafsson og
voru mistækir í betra lagi.
Munu þeir félagar keppa þar í
kúluvarpi en eins og flestir
minnast e.t.v. komust þeir
báðir í úrslit kúluvarpskeppn-
innar á ÓL í Moskvu sl. sumar.
Hreinn varð Evrópumeistari í
kúluvarpi á EM innanhúss í San
Sebastian á Spáni 1977 en hætt
er við að róðurinn verði þyngri
nú en þá. Þeir félagar hafa æft
kappsamlega að undanförnu og
verður gaman að sjá hvernig
þeim tekst upp. Á góðum degi
ættu þeir báðir að varpa yfir 20
metrana og það ætti að fleyta
þeim í hóp efstu manna.
Slagur
áSkaga
Tveir mikilvægir, a.m.k. á
mælikvarða heimamanna, leikir
verða háðir á Akranesi í kvöld.
Kl. 20 leika í 1. deild kvenna
Akranes og Haukar og getur sá
leikur haft úrslitaáhrif varðandi
fallbaráttuna. Á eftir leikur 3.
deildarlið Skagamanna við Þór
úr Eyjum.Skagamenn verða að
sigra til að eiga möguleika á að
komast i 2. deildina — tap þýðir
að 3. deildin biður þeirra enn
eitt árið.
SSv.
AFTUR ÚTSALA
HJÁ C.PALACE
■ SSv,
Eins og við sögðum frá i blaðinu í gær var Páll Pálmason kjör-
inn iþróttamaður Vestmannaeyja á þriðjudagskvöld. Þessa
nt.vnd af Páli með verðlaunin tók Ijósmyndari DB í Eyjunt.
Ragnar Sigurjónsson.
Hreinn og Óskar
á EM í Grenoble
Hilmar Bjömsson, landsliðsþjálfari:
„Reynum að ná árangri
án þess að syna of mikið”
Þessir leikmenn koma inn í islenzka landsliðið í kvöld gegn Frökkum i Keflavík. Frá vinstri: Atli Hilmarsson, Fram, Ólafur H. Jónsson og Páll Ólafsson, Þrótti og Guð-
mundur Guðmundsson, Víking. DB-mynd Sig. Þorri.
..Knattspyman er farin að
líkjast körfuknattleik”
—segir einn f rægasti markvörður heims hér á árum áður, Lev JasMn, í viðtali
Lev Jashin, sovézki markvörðurinn
og ólympiumeistarinn hefur leikið 78
leiki með sovézka landsliðinu. Hann er
handhafi gullboltans, sérstakra verð-
launa sem vikuritið France Football
veitir bezta knattspyrnumanni i
Evrópu. Tvisvar hefur Jashin verið í
liði Alþjóðaknattspyrnusambandsins
gegn liði Englands og Brasilíu. Árið
1971 var háður sérstakur kveðjuleikur
honum til heiðurs. Þar áttust við lið
helztu knattspyrnumanna heims og
sovézka liðið „Dinamó”. íslenzkir
knattspyrnuunnendur muna áreiðan-
lega vel frábæra frammistöðu Jashin
hér á Laugardalsvelli með liði sinu.
Núna er Lev Jashin varaforseti
knattspyrnudeildar Sovézka íþrótta-
sambandsins. Álit hans á knattspyrnu
hefur ætíð vakið mikinn áhuga en þó
einkum nú þegar liðin hefja undirbún-
ing fyrir næsta keppnistímabil.
,,í knattspyrnu hefur mér ætíð verið
mikilvægust og verður áfram sjálf
knattspyrnan, leikurinn, sem er fullur
af óvæntum atburðum, þar sem sá sigr-
ar sem sýnir meiri leikni og styrk”,
segir hann sjálfur. „Það er eins og
sovézku leikmennirnir hafi ekki haft,
þessa hæfileika i nægilega ríkum mæli f
síðustu Sovétmeistarakeppni. Oft fær
maður á tilfinninguna að margir knatt-
spyrnumenn vilji ekki taka á sig
ábyrgðina þegar kemur að því að skora
mark. Einnig finnst mér ekki eins
gaman að horfa á knattspyrnuleik; mér
finnst knattspyrnan hafa tapað því sem
gerði hana svo heillandi. Þegar ég var
og hét, einkenndist knattspyrnuleikur
Daníel yfir
til Þróttar
Daníel Gunnarsson, miðvörður og
fyrirliði 2. deildarliðs Haukanna, hefur
tilkynnt félagaskipti yfir í Þrótt fyrir
nokkru og er ekki að efa að hann mun
verða Þrótti góður styrkur á þessum
i síðustu og verstu tímum.
Halldór með
Aftureldingu
Halldór Björnsson hefur verið
endurráðinn þjálfari Aftureldingar í 3.
deildinni. Haildór var með liðið í fyrra
og náði prýðisgóðum árangri. Aftur-
elding stóð sig mjög vel framan af
sumri en fataðist listin er á leið. í sumar
er 2. deildin hins vegar takmarkið. SSv.
af því að íþróttamennirnir sýndu frá-
bæra tækni.
Ég var markvörður í leik milli
Evrópumeistaraliðsins og liðs sem sam-
sett var af helztu knattspyrnustjörnum
heimsins. Leikurinn var helgaður
hundrað ára afmæli ensku knattspyrn-
unnar og þangað komu með mér Di
Stefano frá Spáni, Eusebio frá Portú-
gal, Kopa frá Frakklandi, Schnellinger
frá Vestur-Þýzkalandi, Masopust frá
Tékkóslóvakiu og Santos frá Brasilíu.
Það er ógleymanlegur fundur.
Núna er knattspyrna leikin í raun-
hæfari og skynsamlegri stíl og af meiri
hraða. Sennilega er það tákn vorra
tíma. Færri stjörnur koma frám á
sjónarsviðið. Núna er að ná yfirhönd-
inni svokölluð „heildarknattspyrna”,
en hollenzka landsliðið var fulltrúi slíks
leiks á tveim heimsmeistaramótum í
röð. Nú er það engin nýlunda að bak-
verðir leiki með í sókninni og fram-
verðir í vörninni. Knattspyrnumenn
hafa þegar þjálfað sig til að leika á öll-
um vígstöðvum. Það er knattspyrna
framtíðarinnar. Þetta minnir mig að
miklu leyti á nútímakörfubolta.
Hvað snertir sovézka knattspyrnu,
þá verður ekki hjá því komizt að
minnast á nokkra góða leiki á síðasta
leiktímabili. Það er ekki svo auðvelt að
sigra Brasilíumenn, Svía og Frakka og
gera jafntefli við Argentínumenn,
heimsmeistarana. En aftur á móti er
ekki hægt að telja, að þriðja sætið á
ólympíumeistaramótinu sé neinn sér-
stakur árangur. Þar held ég að hafi
ráðið um reynsluleysi hjá okkar mönn-
um og orðið til þess að þeir höfðu ekki
árangur sem erfiði. Auk þess er greini-
legt að sovézku leikmennirnir eru ekki
nægilega undirbúnir tæknilega. Samt
má nefna leikmenn eins og Alexander
Tsibadze, sem sovézkir íþróttafréttarit-
arar útnefndu besta knattspyrnumann
ársins, og Renat Dasajev, en þeir eru
leikmenn á heimsmælikvarða. Tsi-
badze skallar mjög vel, tækni hans er
einstök og hann leikur af öryggi og
nákvæmni.
Sem fyrrverandi markvörður get ég
sagt af fullri vissu, að Dasajev er mjög
góður knattspyrnumaður og skjátlast
sjaldan. En vegna reynsluleysis kemur
þó fyrir, að hann gerir einstaka sinnum
mjög slæm mistök. En með árunum á
slíkt að hverfa. Nú það má segja, að
Dasajev sé helzt til ungur til að vera í
markvarðarhlutverkinu.”
(„Moscow News”.)
— Fjórar breytingar gerðar á íslenzka landsliðinu fyrir leikiim í kvöld í Keflavík við
Frakka. Vafasamt að Ólafur Benediktsson taki þátt í B-keppninni f Frakklandi
„Við munum auðvitað reyna að ná
árangri í landsieiknum við Frakka í
kvöld í Kefiavik án þess þó að sýna
þeim of mikið. íslenzka liðið þarf að
sýna meiri festu og ég er bjartsýnn á að
leikurinn verði betri en landsleikur
þjóðanna á miðvikudag i Laugardals-
höll. Eg horfi ekki svo mikið á þessa
leiki — markmiðið er B-keppnin númer
eitt, tvö og þrjú og góður árangur
þar,” sagði Hilmar Björnsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleiknum, þegar
DB ræddi við hann eftir landsliðsæf-
ingu í gærkvöld.
Hilmar hefur valið landslið fyrir leik-
inn við Frakka sem verður í Keflavík i
kvöld og hefst kl. 20.00. Fjórar breyt-
ingar gerðar á íslenzka landsliðinu frá
tapleiknum í fyrrakvöld. Þeir sem inn
koma eru Ólafur H. Jónsson, Páll
Ólafsson, báðir Þrótti, Guðmundur
Guðmundsson, Viking, og Atli
Hilmarsson, Fram. Þá ætlaði Hilmar
að hafa Steinar Birgisson, Víking, í lið-
inu í kvöld. Steinar er hins vegar lasinn
og getur ekki leikið. Þeir sem út fara
eru Axel Axelsson, Fram, Brynjar
Harðarson, Val. Jóhannes Stefánsson,
KR, og Þorbjörn Guðmundsson, Val.
Vafi með Óla
í B-keppnina
„Ólafur Benediktsson, markvörður
Vals, tekur ekki þátt I landsleikjunum
gegn Frökkum af persónulegum ástæð-
um og þá er mjög vafasamt að hann
Lev Jashin er hér í leik á meðan hann var upp á sitt bezta. Hann var þá talinn færasti markvörður heims.
Janus leysir vandamál
varaarleiks Fortuna
—fær gtimrandi dóma fýrir síðustu leiki sína með liðinu
„Með því að nota Janus Guðlaugs-
son sem „libero” (sweeper) í vörninni
hjá okkur held ég að vandamál varnar-
leiksins séu úr sögunni,” sagði þjálfari
Fortuna Köln, Luppen, eftir 3-0 sigur
Fortuna á Preussen Munster i 2. deild-
inni þýzku fyrir skemmstu.
Janus hefur leikið stöðu „libero”
undanfarið og varnarleikur Fortuna
hefur tekið algerum stakkaskiptum. í
síðustu fjórum leikjum liðsins i deild-
inni hefur liðið hlotið 7 stig og marka-
talan er 11-1. Janus skoraði eitt mark-
anna um sl. helgi gegn Rot Weiss Essen
og greinilegt er að Fortuna er mun
sterkara nú en fyrir áramótin.
Þýzka vikuritið Kicker, sem er ótví-
rætt meðal fremstu íþróttablaða heims-
ins, fer lofsamlegum orðum um Janus
og í úrklippum sem okkur hafa borizt
úr blaðinu má sjá að Janus er talinn
annar tveggja beztu manna liðsins í
leikjunum gegn Múnster og Union
Solingen. í Kölnarblaðinu Kölner-
Express segir að loks hafi Fortuna
fundið réttan mann í „libero’Vstöðuna
og ætti gengi liðsins að batna verulega.
leiki í B-keppninni í Frakklandi, sem
hefst 21. febrúar,” sagði Hilmar
landsliðsþjálfari í gær. Sömu mark-
menn verða og í fyrsta leiknum. Jens
Einarsson, Tý, er í Vestmannaeyjum.
Mun leika í marki í síðasta leiknum við
Frakka, sem verður á sunnudag í
Laugardalshöll.
íslenzka landsliðið í kvöld verður því
þannig skipað. Markverðir. Einar Þor-
varðarson, HK, og Kristján Sigmunds-
son, Víking.
Aðrir leikmenn Bjarni Guðmunds-
son, Val, Steindór Gunnarsson, Val,
Stefán Halldórsson, Val, Guðmundur
Guðmundsson, Víking, Páll Björgvins-
son, Víking, Þorbergur Aðalsteinsson,
Víking, Atli Hilmarsson, Fram, Páll
Ólafsson, Þrótti, Sigurður Sveinsson,
Þrótti, og Ólafur H. Jónsson, Þrótti,
sem jafnframt verður fyrirliði. -hsím.
DB-mynd Þorri.
Pétur Eiriksson afhendir hér formanni Aflureldingar, Ingólfi Árnasyni, peningaupphæðina í gær.
Álafoss gefur Af tureldingu40.000 nýkrónur:
„ÞETTA ER HARD-
SVÍRADUR BISSNESS”
—sagði formaður Aftureidingar er hann tók við gjöf inni f gær
„Þetta er harðsvíraður bissness og
það verður að reka íþróttafélögin eins
og hvert annað fyrirtæki nú á dögum,”
sagði Ingólfur Árnason, formaður
Ungmennafélagsins Aftureldingar m.a.
i hófi, sem félagið bauð til í Hlégarði í
gærdag. Tilefnið var að Álafoss hafði
ákveðið að færa félaginu 40.000 ný-
krónur (4 millj. gamlar) af gjöf til efl-
ingar starfseminni.
„Það er víst áreiðanlegt að við verð-
um ekki í vandræðum með að nota
þessa fjármuni,” sagði Ingólfur enn-
fremur. „Fjárhagsáætlun félagsins
fyrir árið I ár hljóðar upp á 580.000
nýkr., þannig að þetta er bæði stórt og
þakkarvert framlag Áiafoss, sem stutt
hefur okkur með ráðum og dáð mörg
undanfarin ár.”
„Þessi gjöf er í anda stefnu fyrir-
tækisins,” sagði Pétur Eiríksson, for-
stjóri Álafoss, er hann afhenti Ingólfi
ávísun að upphæð 40.000 nýkr.
Þótt fæstir viti það e.t.v. er ekki úr
vegi að geta þess að Afturelding er með
allra elztu íþróttafélögum landsins —
stofnað 1909. Handknattleikslið félags-
ins lék í 1. deild nokkur ár á sjötta ára-
Fyrsta glímumótið ííþróttahúsi Ármanns
„Þetta mót Glímufélagsins Ármanns
markar merk tímamót í sögu félagsins.
Fyrsta glímumótið, sem háð er í hinu
nýja íþróttahúsi Ármanns við Sigtún,”
sagði Hörður Gunnarsson, sem verður
glímustjóri á 69. skjaldarglímu
Ármanns, sem háð verður á sunnudag.
Mótið hefst kl. 14.00.
Skráðir keppendur eru tiu frá
þremur félögum, Ármanni, KR og Vík-
verja. Kunnir glímumenn flestir eins og
Hjálmur Sigurðsson, Víkverja, Ómar
Úlfarsson, KR, Guðmundur Ólafsson
og Guðmundur' Freyr Halldórsson,
báðir Ármanni.
Aðrir skráðir keppendur eru Árni
Unnsteinsson, Víkverja, Ásgeir Víg-
lundsson, KR, Helgi Bjarnason, KR,
Ólafur Þór Aðalsteinsson, KR, Ólafur
H., kR, og Sigurjón Leifsson, Árm.
tugr.um en síðan kom nokkur lægð í
starfsemi félagsins. Undanfarin ár
hefur hins vegar færzt verulega aukin
gróska í alla starfsemi þess og eftir að
íþróttahúsið að Varmá var byggt hefur
komið mikill kippur í félagið. Nú eru
starfræktar þrjár deildir innan félags-
ins, knattspyrnu-, handknattleiks- og
frjálsíþróttadeild ett á döfinni er að
bæta við blak-og sunddeild. -SSv.
r r
LANDSM0T UMFII
„M0SÓ” 1984?
„Við stefnum að þvi að fá landsmót
UMFÍ hingað í Mosfellssveitina 1984,”
sagði Ingólfur Árnason formaður
félagsins í gær. „Það hefur sýnt sig að
slik mót hafa hraðað mjög öllum fram-
kvæmdum við íþróttamannvirki á við-
komandi stöðum og nægir þar að nefna
Selfoss og Akranes. Þar voru íþrótta-
hús bæjanna reist á skömmum tíma,
fyrir landsmót. Okkur vantar ekki
íþróttahús en útisvæðið hjá okkur á
langt í land ennþá,” sagði Ingólfur
ennfremur.
-SSv.
SKÍÐAKENNSLA
Barnakennsla um helgar, 3ja daga kvöldnámskeið fyrir
-fullorðna og unglinga. Innritun og upplýsingar í sírna
76740 milli kl. 5 og 8. Kennt er f Bláfjöllum.
SKÍÐASKÓLI
SIGURÐAR JÓNSSONAR.