Dagblaðið - 30.01.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
25
(I
Menning
Menning
Menning
Menning
UÓÐIN HANS VIMMA
r
Vilmundur GyMaion:
LJÓD
Iðunn, 1980.64 bls.
„Ennfremur þegar ljóðið hefur
verið birt er hverjum og einum frjálst
að skilja það eða skilja það ekki og
skilja fyrirbrigðið sem i tímanum er á
bak við ljóðið eða skilja það ekki.
Hverjum og einum er frjálst að líka
ljóðið eða ekki. Ljóð sem hefur verið
birt er ekki lengur einkaeign höfund-
ar og einnig þannig fjarlægist það
upphaf sitt. í meðförum annarra má
vera að ljóðið eignist nýtt lif, en það
eru sáralitlar líkur að ljóðsins nýja líf
eigi mikið sameiginlegt með því lífi,
þeirri hreyfingu frumeinda og þeim
slætti hjartans, sem upphaflega
skapaði ljóð úr sjálfu sér.” (8).
Þetta er niðurlagið á aðfara-
orðum Vilmundar Gylfasonar að
LJÓÐum sem komu út hjá Iðunni
fyrir jólin.
Svo satt, svo satt er það sem
Vilmundur segir um lif ljóðsins. Með
hverjum lesanda eignast það nýtt lif.
Ég tárfelldi við lestur sumra ljóðanna
og fannst vera talað til mín. — Það
breytti engu að ég litlu seinna las í
Helgarpóstinum (19. des. 1980) að
Vilmundur hefði ort til konu sinnar,
Valgerðar Bjarnadóttur. Mér fannst
eftir sem áður að minn maður hefði
ort til mín og stundum öfugt — að
éghefði ort til hans.
Um ástina
og dauðann
Að meginstofni er bókin ástar-
ljóð. Ljóðin sjálf bera ekkert heiti en
er raðað i flokka.
í „myndum I” eru Ijóðin kátust,
‘þau fjalla um ástina, mig og þig:
Ég bið ljóð mitt
vera ærlegt.
Biðljóðmitt segjaþér
að ég kunni ekki að svíkja þig og
vilji alltaf vera hjá þér.
Bið ljóð mitt vera þig
(af því að þú ert falleg og þú ert
heiðarleg og þú ert góð og ég kann
vel við þig)
og þá hverfur ljóðið inn í
sjálft sig og verður
þúljóð
Ijóðþú. (II)
„Myndir II” eru millistef. Líf
þeirra hefur marga ásýnd og þar er
ekki lengur vor: ,,. . . Að vera /
brynja sig myndum þess sem er liðið.
/ Standa á sínu eigin hausti og /
horfa inn í djúpan grimman vetur.”
(31).
Bók
menntir
Rannveig Ágústsdóttir
Aðeins tvö ljóð fylla flokk III.
Það ætti að nægja um dauðann,
a.m.k. fyrir mann sem enn er í
beyglausii fjarlægð: „Mér var
sagt að dauðinn væri eins og góður
/ vinur þvi betur sem þú þekkir hann
því / minna óttaðistu hann. Ég gekk
niður að / vatninu og kastaði steini
og vatnið gáraðist. / Það var kvöld.”
(42).
„Ljóðbrot I” (af hverju I þvi það
kemur aldrei neitt II?) er safn ólíkra
hughrifa, harms og gleði; sumt ort á
erlendri grund í nútímanum eða
leiðarstefið sótt í fornar sögur eins
og í ljóðinu um Alexander mikla sem
„sneri aldrei heim”. (57). Fjögur
samstæð ljóð í þessum kafla lýsa
sárum trega við fráfall barns: „Við
skulum ekki leita / að lífi til að vekja
/ löngu gróin sár / . . . Drýpur
hryggð, drýpur hryggð af himnum”
(61). Og síðar spyr skáldið „Af
hverju? . . . Af hverju?” og botnar
með viðlaginu „Drýpur líf, drýpurlíf
á jörð” (62) Hin vonglöðu orð boða
sátt viðharminn.
Einlæg og auðskilin
Ljóðin eru samin í „Reykjavík og
víðar” að sögn höfundar á árunum
1%6 til 1980. Þau endurspegla mikla
sviptivinda tilfinninganna, ást og
harm og eintal sálar. Ljóðin eru
einlæg, auðskilin og tala beint til
hjartans. Skáldamálið er hefðbundið
en notað á persónulegan hátt og í
nýjum samsetningum svo að
stundum virðist eins og talað sé í
hálfkæringi (til að verða ekki of til-
finningasamur?)svosem fram kemur
í þessu litla ástarljóði í bókarlok:
Ég elska þig af mætti minna drauma
í mínu hjarta er sláttur fyrir þig,
ó, þú sem gafst mér guðsins beztu
veigar
oggekkstsvohnuggindali fyrir mig,
ég elska þig.
Hver er sú kona, sem ekki þægi
slikt ljóð um sig? Ljóð sem ekki væri
of háfleygt, ekki of fullkomið, ekki
ort vegna sjálfs sin né til að frægja
yrkjandann, heldur til að koma
mikilvægum boðum til skila.
Rannveig.
—
c
c
Þjónusta
Þjónusta
Þjónusta
j
Viðtækjaþjónusta
LOFTNE
KaRmenn annast
uppsetninRU á
TRIAX-loftnetum fyrir sjónvarp —
PIVl stereo og A\l. Gerum tilbod í
loftnetskerfi, endnrnýjum eldri lannir.
ársábyrgd á efni or vinnu. Greiöslu-
kiör LITSJÓNVARPSÞJÓNUSTAN
DAGSÍMI 27044 - KVÖLDSÍMI 40937.
Sjónvarps viðgerðir
Meima eða á verkstæði.
Allar tegundir.
3ja mánaða ábyrgð.
Skjárinn, Bergstartastrati 38.
I)ag-. ksöld- og helgarsimi
21940.
FERGUS0N
RCA amerískur
mýndlampi
Varahluta- og viöneröaþjónusta.
Orri Hjaltason
Hagamel 8 — Sími 16139
c
Jarðvinna-vélaleiga
j
Kjarnaborun!
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, glugga. loftræstingu og
ýmiss konar lagnir, 2", 3", 4”, 5”, 6”, 7” borar. Hljóðlátt og ryklaust.
Fjarlægjum múrbrotið, önnumst ísetningar hurða og glugga ef óskað
er. Förum hvert á land sem er. Skjót og góð þjónusta.
KJARNBORUN SF.
Slmar: 28204—33882.
TÆKJA- OG VELALEIGA
Ragnars Guðjónssonar
Skemmuvagi 34 — Simar 77620 — 44508
Loftpressur
Hrærivélar
Hitablásarar
Vatnsdœlur
Slípirokkar
Stingsagir
Heftibyssur
Höggborvélar
Beltavélar
Hjólsagir
Steinskurðarvél
Múrhamrar
T raktorsgrafa
til snjómoksturs
mjög vel útbúin, til leigu, einnig traktor með lotTpressu
og framdrifstraktorar með sturtuvögnum.
Uppl. í símum 85272 og 30126.
s
Þ
Gröfur - Loftpressur
Tek að mér múrbrot, sprengingar og fleygun
í búsgrunnum og holræsum,
einnig traktorsgröfur í stór og smá verk.
Stefán Þorbergsson Sími 35948
Verzlun
)
HILXI
Hiuri
VÉLALEIGA
Ármúla 26, Sími 81585, - 82715, - 44697
Leigjum út Hjólsagir Rafsuðuvélar
Traktorspressur Heftibyssur og loftpressur Juöara
Gröfur Vibratora Dílara
HILTI-naglabyssur Hrærivélar Stingsagir
HILTI-borvélar HILTI-brotvólar Hestakerrur
Slfpirokkar Kerrur Blikkklippur (nagarar)
Steinskurðarvól til að sag.3 þensluraufar i gólf.
Hiuri
HILTI
c
Önnur þjónusta
Húsaviðgerðir,
Klæði hús með áli og stáli, set harðplast á gluggakistur
og borð, gluggaþéttingar, fræsi glugga og set í tvöfalt
gler. Annastalmennar húsaviðgerðir. Uppl. í síma
13847.
FIMLEIKAR - LEIKFIMI
I Breiðagerðisskóla:
„Old boys” mánud. o|> fimmtud. kl. 18.50—19.40
Kvennaleikfimi mánud. on fimmtud. kl. 19.40—20.30
Fimleikar fyrir börn 0|> unglin)>a í Ármannsheimili v/Sigtún.
Uppl. I síma 38140 þrirtjudapa kl. 16.30—17 op föstudana kl.
18—18.30.
Fimleikadeild Ármanns.
Jaf nan á lager
Þakrennur, þakrennubiind og rennuhorn. Þaknlunpar, þakventlar,
veggventlar, niðurfalls- og loftpipur, svalastútar. Niðurfalls- og loft-
beygjur, steinrennustútar. Gaflþéttilistar, kjöljárn, kantjárn.
BLIKKSMIÐJAN VARMI HF.
SKEMMUVEG118 KÓPAVOGI, SÍMI 78130.
c
Pípulagnir -hreinsanir
j
Er stíflað?
f jarlægi siiflur úr voskum. wc rorum.
haðkerum og mðurfollum. nolum n\ og
fullkomin læki. rafmagnssmgla Vamr
menn. Uppljsingar i sima 43879
Stífluþjónustan
Anton Aðalstainsson.
Er stíflað? Fjarlægi stíflur
úr vöskum, WC rörum. baðkerum og niður-
föllum Hreinsa og skóla út niðurföll i bila-
plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tankbíl
með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki, raf
magnssnigla o.fi. Vanir menn.
jValur Helgason. sími 77028
23611 HÚSAVIÐGERÐIR 23611
iTökum að okkur allar viðgerðir á húseignum, stórum
sem smáum, svo sem múrverk og trésmíðar, járn-
klæðningar, sprunguþéttingar og málningarvinnu.
Girðum og lögum lóðir, steypum heimkeyrslur.
HRINGIÐ i SÍMA 23fjfl
Nei takk ...
ég er á bílnum