Dagblaðið - 30.01.1981, Síða 23
I
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1981.
C Útvarp
Sjónvarp
31
I
MANNTAL1981—sjónvarp kl. 21,15:
Spurningamar ekki eins
nærgöngular og menn halda
—segir Magnús Bjarnf reðsson sem hjálpar sjónvarpsáhorf
endum að útfylla manntalseyðublöðin
„Ég vona að þegar fólk fær spurn-
ingaeyðublöð manntalsins í hendur sjái
það að spurningarnar eru ekki eins
nærgöngular og ýmsir hafa ímyndað
sér,” sagði Magnús Bjarnfreðsson.
Þegar þáttur hans verður fluttur í kvöld
eiga eyðublöðin að vera komin inn á
hvert einasta heimili á landinu. Fólki er
ráðlagt að hafa bæði eyðublöðin og rit-
föng við höndina og fylla skýrslurnar
út ásamt Magnúsi.
,,Ég fylli út eina skýrslu,” sagði
Magnús. „Nei, það er ekki mín eigin.
Ég er ekki nógu fiókið fyrirbrigði, svo
ég bý til einhverja manneskju og svara
spurningum fyrir hennar hönd. Um
leið reyni ég að útskýra ýmis fyrirbrigði
sem geta vafizt fyrir fólki.
Magnús sagðist ennfremur mundu
kveðja á sinn fund í sjónvarpssal
nokkra aðila, sem veitt gætu upplýs-
ingar um tilgang ákveðinna spurninga.
„Til dæmis mun skipulagsfræðingur
frá Reykjavikurborg útskýra hvers
vegna spurt er um ferðalög milli heim-
ilis og vinnustaðar. Ennfremur mun
borgarhagfræðingur gera grein fyrir
spurningum varðandi atvinnu, og þar
fram eftir götunum.”
Þáttur Magnúsar verður endurtekinn
á morgun klukkan fjögur eftir hádegi,
svo þeir sem missa af honum í kvöld fá
tækifæri til að sjá hann þá. Á sunnu-
dag verður skýrslunum safnað saman,
og þá þurfa allir að vera búnir að skrifa
svör. Með leiðsögn Magnúsar verður
það sjálfsagt enginn vandi.
- IHH
FRÉTTASPEGILL—sjónvarp kl. 21,45:
Indriði G. og Einar Karl
ræða norrænt menningarstarf
—verða sennilega ekki á eitt sáttir
„HANDARVIK” - útvarp kl. 21,45:
Dönsk smásaga um vinnuslys
—eftir Cecil Bödker í þýðingu Kristínar Bjarnadóttur
,,Er norrænt menningarstarf ís-
lendingum til góðs eða kemur það
aðeins fáum útvöldum að gagni?”
Þessa spurningu leggja fréttamenn-
irnir Helgi E. Helgason og ög-
mundur Jónasson fyrir Indriða G.
Þorsteinsson rithöfund og Einar Karl
Haraldsson ritstjóra Þjóðviijans í
Fréttaspegli í kvöld. Indriði hefur
margoft sett fram harkalega gagnrýni
á norrænt menningarstarf, en telja
má líklegt, að Einar Kai I muni snúast
til varnar og mótmæla skoðunum
Indriða.
um deilurnar innan Efnahagsbanda-
lagsins um fiskveiðimál, og máske litið
lauslega á, hvefnig þau mál tengjast
okkur íslendingum.
Þátturinn verður í styttra lagi,
aðeins 40 mínútur, vegna þess að
leiðbeiningar um útfyllingu mann-
talseyðublaða fá mikið rúm í dag-
skránni þetta kvöld.
„Maður á bezta aldri lendir með
höndina í pappírsvalsi. Sagan nær
yfir þá stuttu stund, sem líður frá því
að hönd hans festist í valsinum og
þangað til hann missir meðvitund,”
sagði Kristín Bjarnadóttir leikkona
um smásöguna Handarvik sem hún
ies í kvöld í eigin þýðingu. Sagan er
eftir dönsku skáldkonuna Cecil
Bödker.
Cecil Bödker er afkastamikill og
virtur rithöfundur. Hún var önnur
tveggja höfunda sem Danir báru
fram til bókmenntaverðlauna
Norðurlanda núna síðast. Hún er
fædd 1927 og á að baki litríkan ævi-
feril. Um tíma bjó hún í Afríku, en nú
hefur hún setzt að á józkum búgarði
með þeldökkum fósturdætrum og fjöldi bóka, ýmist ljóð, barnabækur,
öðru skylduliði. Eftir hana liggur leikrit eða skáldsögur. -IHH
... en Einar Karl mun væntanlega
reyna að mótmæla þessu og leggja sig
fram um að telja Indriða hughvarf.
Að erlendum málefnum verður
samt vikið. Verður m.a. fjallað um
för bandarísku geimfaranna Voyager
I og II um’ sólkerfi okkar. Visinda-
menn eru almennt á þeirri skoðun að
upplýsingarnar, sem afiað var í leið-
angri geimfaranna, marki tímamót í
sögu geimvísindanna.
Ennfremur verður í þættinum fjallað
Indriði G. vill ekki sjá norrænt sam-
starf um menningarmál og telur það
verkfæri kommúnista til að menga is-
lenzka þjóðarsál...
Æ, hvenær kemur strætó? Spurningar á manntalseyðublaðinu um ferðir fólks frá og
til vinnustaðar miða að þvi að afla upplýsinga, sem hafa megi til hliðsjónar þegar
ferðir almenningsvagna eru skipulagðar.
HEILSURÆKTIN
ÞINGHÓLSBRAUT 19 BOX 67
202 KÓPAVOGUR SÍMI 43332
Opið frá kl. 9.00 árdegis.
Snyrtifræðingur á staðn-
um. Tímapantanir í síma
43332. Jafnt fyrir konur
sem karla.
Þægindi í fyrirrúmi.
Þjónusta í alfaraleið.
* Nudd * Fótaaðgerðir
* Sauna * Ljósaböð
* Snyrting s"lariura
Heilsuræktin er bæði fyrir karla og konur. Það er opið alla
daga frá kl. 9.00 f.h. nema föstudaga frá kl. 13.00 og laugat-
daga frá kl. 10.00.
VIDEO
*
*
*
*
nerr
Kv
!VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásamt mynd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
jtil leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
mjög miklu úrvali í stuttum og löngum útgáfum, bæði
þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16
mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt
jDisney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
lorðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease, God-
father, Chinatown o.fl. Filmur til sölu og skipta.
Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla daga
nema sunnudaga.
Kvikmyndamarkaðurinn Sfmi 15480
Skólavörðuslíg 19 jKlapparstígsmegin)
KVIKMYNDIR
*
*
*
5480
mJ