Dagblaðið - 30.01.1981, Page 24
Megn óánægja myndlistarmanna á Akureyri:
Ustamenn íhuga fram-
boð til bæjarstjómar
—listinn gengi þvert á pólHíska flokka en markmiðið væri að efla menningarlíf
áAkureyrí
Mikil og almenn óánægja er ríkj-
andi meðal myndlistarmanna á Akur-
eyri vegna þess að nú hafa þeir engan
stað til sýningahalds í bænum. Þykir
þeim gremjulegt að ekki skuli vera
hægt að merkja nein viðbrögð hjá
Akureyrarbæ um úrbætur, þrátt fyrir
að tveimur sýningarsölum t bænum
hafi verið lokað, sem jafnframt voru
þeir einu. Eins þykir þeim það furðu-
legt að ekki sé nein hreyfing á þessum
málum, þó svo að fyrir skömmu hafi
verið haldin ráðstefna um menn-
ingarsamskipti í fjórðungnum á veg-
um Fjórðungssambands Norðlend-
inga. Útkoman úr þeirri ráðstefnu
virðist engin vera, nema sú að
stofnuð var þar nefnd og málið jafn
hreyfingarlaust og fyrr.
Fréttaritari DB hafði samband við
nokkra myndlistarmenn af þessum
sökum og bað um álit þeirra. Einn
þeirra sagði að hafi hann einhvern
tímann sett traust sitt á stjórnmála-
menn sé það traust fokið út í veður
og vind. Jafnframt sagði hann að sú
hugmynd væri til alvarlegrar íhug-
unar að bjóða fram sérstakan lista
við næstu bæjarstjórnarkosningar,
sem gengi þvert á pólitíska flokka en
hefði það að markmiði að efla menn-
ingarlíf bæjarins fyrst og fremst.
Þegar spurt var hvort meiningin
væri að stofna samtök utan um þá
hugmynd að bjóða fram til bæjar-
stjórnar, þá voru svörin á þá leið að
svo væri ekki. Aftur á móti væru
mjög margir menn hlynntir framboði
sem hugsanlegri lausn ef bæjaryfir-
völd láta ekki hendur standa fram úr
ermum og gera úrbætur.
Þá kom það einnig fram að á döf-
inni er að stofna heildarsamtök allra
listgreina sem stundaðar eru í bæn-
umog þar gætu t.d. rithöfundar, tón-
listarmenn og myndlistarmenn átt
sameiginlegan vettvang. Markmið
slíkra samtaka yrði að knýja á um úr-
bætur og efla samstöðu listamanna,
jafnvel kæmi til greina aðslík samtök
tækju að sér að reka sýningarsal í
samvinnu við bæinn. Slíkar hug-
myndir eru þó enn sem komið er í
lausu lofti. Þó má búast við að meira
fréttist af þessum samtökum innan
skamms. - GM, Akureyri.
Hreindýrin fóta sig varla
—fara ekki vartiluta afhálkunni
frekarenmamfólkiö
llreindýrahópur hefur haldið sip réll við bivjardyrnar ú Höfn i Hornafirði að undan- og komst hann ekki ó fælur ú yljúnni. Bóndinn lók kólfinn op bar hunn útfyrir vepinn.
fiirnu. Hreindýrin hafa ekki farið varhluta af hálkunni frekar en mannfólkið. Þeyar llreinninn varfrelsinu fepinn oy var fijótur að koma sér burl. Myndin sýnir hreindýr-
hóndi I Nesjum var á ferðinni á döpunum fann hann unyan hrein liyyiandi á pötunni in. sem eru rétt við bæinn. - Júlía. Höfn. DB-mynd Raynar Imsland.
BruninníKötlufelli:
Eiginkonan neitar ö/A
um ásökunum lögreglu
—Gæzluvarðhaldsúrskurðuriim kærður
Örn Clausen, skipaður réttar-
gæzlumaður eiginkonu Sigfúsar
Steingrímssonar sem lézt í húsbruna'
að Kötlufelli II sl. sunnudag, hefur
kært til Hæstaréttar þann 14 daga
gæzluvarðhaldsúrskurð sem upp var
kveðinn í gær yfir konunni.
Konan hefur frá úpphafi neitað að
eiga nokkum þátt í því að eldur
kæmi upp, en rannsóknarlögreglan
telur sig hafa rökstuddan grun um að
svo geti verið. konan hefur verið i
haldi frá því aðfaranótt miðviku-
dags.
Hinn kærði úrskurður Sakadóms
Reykjavíkur verður væntanlega tek-
inn fyrir í Hæstarétti einhvern næstu
daga.
Rannsóknarlögreglan hefur enn
engar upplýsingar viljað gefa í þessu
máli. Að þvi er bezt er vitað byggist
grunur hennar fyrst og fremst á fram-
burði fólks um hvað gerðist i stiga-
húsinu að Kötlufelli áður en slökkvi-
liðið var kallað til, svo og vegsum-
merkjum eftir brunann.
- A.St.
*
Rúmið i svefnherberginu var mikið
brunnið og skemmdir miklar í her-
berginu. DB-mynd S.
frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 30. JAN. 1981.
Skákþing Reykjavíkun
HagurJóns
vænkaðist
Jón L. Árnason styrkti mjög stöðu
sína á Skákþingi Reykjavíkur er hann
vann biðskák sína við Sævar Bjarna-
son. Fyrirfram hafði Jón verið talinn
með tapaða stöðu er skákin fór í bið en
hann fann skemmtilega leið út úr
ógöngunum og tókst að jafna taflið, og
ekki nóg með það því Sævar lék síðan
af sér heilum manni og varð að gefa
taflið. í gærkvöldi lauk einnig skák
þeirra Dan Hansson og Hilmars Karls-
sonar og vann Dan.
Jón er því efstur með 5 vinninga og
biðskák að loknum 7 umferðum, Bragi
Halldórsson og Dan Hansson koma
næstir með 4 vinninga, síðan Helgi
Ólafsson með 3,5 vinninga, 2 biðskákir
og eina frestaða skák.
Staðan er annars mjög óljós vegna
fjölda biðskáka og frestaðra skáka.
Þannig hefur Elvar Guðmundsson til
dæmis aðeins lokið 3 skákum. -GAJ.
Slitnaruppúr
sjómamasamningum
íþriðjasiim:
Mikil stíf ni
á báða bóga
— segir ríkissáttasemjari
,,Ef á að koma til verkfalls á togur-
unum 9. febrúar verður að tilkynna
það hingað til okkar fyrir kl. 17 í dag.
Framhaldið ræðst mikið af þvi og eins
af hugsanlegri niðurstöðu fundar um
fiskverðið, sem vera á i dag,” sagði
Guðlaugur Þorvaldsson rikissáttasemj-
ari í viðtali við DB í morgun um togara-
og bátakjarasamningana. í gærkvöld
slitnaði í þriðja sinn upp úr viðræðum
sjómanna og útvegsmanna og hefur nýr
fundur ekki verið boðaður.
„Það er mikil stífni á báða bóga,”
sagði ríkissáttasemjari. „Það varð ekki
samkomulag i undirnefndunum, sem
fjalla um lífeyrissjóðsmálið og á því
strandar aðallega. Við reyndum
árangurslaúst að koma viðræðum af
stað á ný og munum að sjálfsögðu
reyna að halda fund fljótlega — þegar
línur hafa eitthvað skýrzt, en þetta er
margfiókið mál.”
Guðlaugur Þorvaldsson sagði að
samningar við starfsfólk í ríkisverk-
smiðjunum gengju vel — ákveðið hefði
verið að vinna ekki í þeim yfir helgina.
Samkomulag hefði tekizt um fjölmörg
atriði og væru nú aðeins 7—8 liðir
óleystir. ,,Það hefur verið ágætur
gangur á þeim samningum,” sagði
ríkissáttasemjari, „ekki sízt þegar
miðað er við að þarna er um alveg nýtt
form á samningum að ræða.” -ÓV.
Iscargomenn
skoða tilboð
— um leiguvélar
fyriráætlunarflug
til Hollands
,,Við erum að skoða tilboð sem við
fengum. Það er verið að bjóða okkur
allskonar fiugvélar til leigu. Helgin
verður notuð til að kanna málið betur
og þetta skýrist allt í næstu viku,”
sagði Kristinn Finnbogason fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins íscargo.
íscargo hefur fengið „grænt Ijós”
frá Hollandsstjórn til áætlunarflugs
með farþega og vörur á leiðinni
Holland — ísland, eins og Dagblaðið
skýrði frá í gær. íscargomenn hyggjast
hefja fiugið í april, fyrst 2svar í viku,
síðan 3 svar í viku. Flugleiðir hafa
setið, eitt íslenzkra fyrirtækja, að
áætlunarflugi milli íslands og megin-
lands Evrópu — frá því að Loftleiðir
og Flugfélagið sameinuðust. Nú fá
Flugleiðir samkeppni íslenzks flug-
félags. Sumum þykir mál til komið,
öðrumverra. -ARH.