Dagblaðið - 16.02.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
11
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Dolly Parton leikur
mellumömmu
„Ég hefði sjálf getað endað sem
mellumamma ef ég hefði ekki slegið í
gegn með söng mínum. Fátæk stúlka úr
stórri fjölskyldu hefur ekki mikla
möguleika á að koma sér áfram í líf-
inu,” segir Dolly Parton.
Dolly Parton leikur mellumömmu í
nýrri kvikmynd sem ber nafnið The
Best Little Whorehouse in Texas (litla,
en bezta hóruhúsið í Texas). Hún ver
hlutverk sitt því hún veit hvað hún
getur átt á hættu ef hún misbýður að-
dáendum sínum: Endalok ferils síns.
Dolly Parton vann sinn fyrsta leik-
sigur í kvikmyndinni níu til fimm, þar
sem hún leikur aðalhlutverkið ásamt
þeim Jane Fonda og Lily Tomlin. Er nú
svo komið að Dolly Parton er oft nefnd
hin nýja drottning Hollywood og þykir
bera það nafn með sóma.
Getnaðarlimur slitinn af
— en læknum tókst að grœða hann svo vel á að eigandinn mun geta
lifað eðlilegu lífi
Læknavísindunum fer stöðugt almenningssalerni i London. Árásar- 200 metra fjarlægð, lagður beint inn
fram. Það nýjasta er afrek brezkra manninum tókst að ná taki á lim á skurðstofuna og læknarnir hófust
lækna fyrir nokkrum vikum er þeim fórnarlambsins og togaði svo fast 1 að þegar handa við erfitt verkefni.
tókst að græða getnaðarlim, sem tólið hreinlega rifnaði, þó ekki alveg „Allt bendir til þess að aðgerðin
hafði verið slitinn af eigandanum, af því smá skinnpjötlur héldu þvi við hafi heppnazt 100% og eigandi lims-
svo vel á aftur að hann gegnir hlut- likamann. ins mun fljótlega geta farið að lifa
verki sínu jafnvel ogáður. Maðurinn var drifinn á sjúkrahús eölilegu lífi," upplýsti einn af lækn-
Ráðizt var á 37 ára gamlan mann á sem til allrar hamingju var aöeins í unum.
Er Joan Kennedy ástfangin?
Orðasveimur er á kreiki um það að Joan
Kennedy sé ástfangin af Gerry Aronoff, kunnum
lækni í Boston. Vinir þeirra fullyrða að þau
muni gifta sig strax og hún hafi fengið skilnað
frá Edward Kennedy.
Joan og Edward Kennedy hafa verið gift í 22
ár. Siðustu tíu árin voru þeim báðum til kvalar.
En Joan hefur þjáðst meira. Hún kunni aldrei
vel við sig í veröld stjórnmálanna og tókst aldrei
að aðlagast henni hvursu mikið sem hún reyndi.
í fyrra lagði hún hart að sér til að hjálpa
manni sínum að verða forsetaframbjóðandi.
Hún stóð að baki hans, hljóðlát en með réttan
svip á andlitinu. En daginn eftir að Ronald
Reagan var settur í embætti tilkynntu þau hjónin
opinberlega að þau ætluðu að skilja.
Þau hafa ekki búið saman síðan 1977. Joan
bjó þá ein í Boston, stundaði tónlistarnám,
endurheimti sjálfstraust sitt og hætti að drekka.
j Árum saman hafa gengið slúðursögur um
kvennamál Kennedys en Joan hefur aldrei verið
við annan karlmann kennd en hann síðan þau
giftust.
Þegar hún nú sést nærri daglega með Gerry
Aronoff á hljómleikum, í leikhúsinu og á veit-
ingahúsum í Boston er farið að leggja saman tvo
og tvo.
„Gerry Aronoff er það bezta sem hent hefur
Joan í 23 ár,” segja vinir hennar. „Hann er
ágætismaður.”
Gerry er yfirlæknir við Massachusetts General
Hospital. Fallegur, aðlaðandi og efnaður. Hann
býr í 23ja herbergja húsi á ströndinni. Framund-
an því er bátabryggja og við hana vaggast risa- Joan Kennedy er 44 ára, en Gerry Aronoff 36.
stór seglbátur sem oft er leystur frá landi. V msir vina þeirra telja að brúðkaup sé 1 vændum.
r—---— ^
interRent
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S 21 715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
Munið
borra-
matinn
KJÚTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHLÍÐ - SlMI 35645
Vinsælu
FURUHÚSGÚGNIN
eru komin aftur
<9
GLIT
HÖFÐABAKKA9
SÍMI85411
GRBDSUIKJOR:
Útborgun AÐEINS kr. 1.250,-
og 1.250,- á mánuði!