Dagblaðið - 16.02.1981, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
17
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Stjömuleikur Bjama, Bnars og Páls:
ipíumeistaramir lagð-
velli í Laugardalshöll!
iur Austur-Þjóðverja í tíu mánuði. ísland vann 18-15 ogjiað var frekar of Iftill sigur.
Sænsku dómaramir þeim þýzku hliðhollir
ekki sýnt annan eins leik lengi. Páll
endurtók hinn frábæra leik, sera hann
átti gegn Tatabanya í Ungverjalandi á
dögunum. Páll var markhæstur með
sex mörk hvert öðru glæsilegra. Bjarni
skoraði fjögur glæsimörk og komst oft
inn í sendingar Austur-Þjóðverja með
hraða sínum og leikni. Hlutur beggja í
vörn var mjög góður.
Þorbergur slasaöist
Risinn Gunther Dreibrot skoraði tvö
fyrstu mörk leiksins, 0—2 eftir 5 mín.
Bjarni komst einn upp á 4. mín. en
skaut í stöng. Stefán Halldórsson skor-
aði fyrsta mark íslands á sjöttu mín.
Ólafur H. Jónsson átti skot í stöng.
Stefán náði knettinum og skoraði. Vel
gert. Tveimur mín. síðar gekk Dreibrot
frá Þorbergi Aðalsteinssyni. Lamdi
hann niður i völlinn eins og hann gerði
svo oft í fyrri leiknum, þegar Þorberg-
ur var markhæstur með 5 mörk. Þor-
bergur varð að yfirgefa völlinn. Kom
inn á aftur, þegar nokkuð var liðið á
s.h. Þó greinilega enn miður sín.
Andreas Pester kom A-Þ. í 3—1 á ní-
undu mín. en þá fór Páll Björgvinsson
heldur betur í gang. Skoraði fjögur af
næstu fimm mörkum íslands. Það gaf
islenzka liðinu tóninn. Páll jafnaði i
3—3 á 12. mín. Jafnaði síðan í 4—4
eftir að Dreibrodt hafði skorað fjórða
mark Þjóðverja. Pester kom A-Þ. yfir
úr hraðaupphlaupi eftir misheppnað
markskot Sigga Sveins, sem bætti úr í
næstu sókn. Skoraði fimmta mark ís-
lands og á 16. mín. kom Páll Bj. ís-
landi yfir í fyrsta sinn í leiknum. Nafni
hans Ólafsson og Óli H. juku muninn í
8—5 eftir 21 mín. Mikið um villur
þýzku leikmannanna. Þeir skoruðu
ekki mark í rúmar átta mínútur. Loks
Pester það sjötta en Bjarni og Páll Ól.
svöruðu nær strax, 10—6. Steindóri
Gunnarssyni var vikið af velli en einum
færri skoraði Bjarni, 11—6. Fimm
marka munur og hann var einnig í hálf-
leik, 12—7. Axel Axelsson skoraði 12.
mark íslands.
Sigurinn alltaf öruggur
Eftir þennan frábæra hálfieik ísl.
liðsins var sigurinn aldrei í hættu í þeim
síðari. Steindór jók muninn í 13—7 á
34. mín. eftir að Bjarni hafði átt stang-
arskot. Wahl skoraði fyrir A-Þ. en svo
kom umdeilt atvik. Bjarni komst inn í
sendingu. Gaf á Óla H. frían á línu.
Brotið harkalega á Óla en ekkert dæmt
— þó eitt augljósasta vitakast, sem
maður hefur séð. Óli H. reiddist og
dómararnir ráku hann þá af velli í tvær
mín. En þeir þýzku misstu mann út af
aðeins síðar og Bjarni kom íslandi í
14—8 eftir 38 mín. Komst enn inn í
sendingu þýzku leikmannanna. Drei-
brot, víti, og Wahl minnkuðu muninn í
14—10. Þá var Þorbergi vikið af velli
og aftur dæmt víti á ísland. Dreibrot
skaut yfir markið — og á næstu mín.
gerðu snillingar ísl. liðsins út um leik-
inn. Fyrst skoraði Bjarni, síðan Páll Bj.
16—10 og síðari hálfieikurinn hálfn-
aður.
5EMVIÐ
ÍSLANDI”
eikinn ígærkvöldi
leiki ísland eins og i kvöld vinni liðið B-
keppnina og ég vona eindregið að Uð-
inu gangi vel þar. Beztu menn islenzka
liðsins fannst mér vera Björgvinsson
(Páll), Guðmundsson (Bjarni) og
Halldórsson (Stefán).
-SSv.
Þjálfari A-Þ. greip til þess ráðs að
láta taka Pál Bj. úr umferð. Wolfgang
Schmidt skoraði en Siggi Sveins svaraði
1— hitti loksins markið, 17—11. Tvö
þýzk mörk, 17—13, og tíu mín. til
leiksloka. ísl. leikmennirnir alltof leik-
reyndir til að missa slfkt forskot niður.
Þó reyndu sænsku dómararnir hvað
þeir gátu til að rétta hlut þýzka liðsins.
Það fékk þrjú vítaköst síðustu fimm
mínúturnar. Döring mistókst að skora
úr einu. Hitti þverslána en Dreibrot
skoraði úr öðru. 17—14. Tveimur mín.
fyrir leikslok losaði Páll Bj. sig við
gæzlumann sinn, renndi sér síðan með
tilþrifum gegnum vörn Þjóðverja.
Skoraði glæsilega 18. og lokamark ís-
lands í leiknum. Dreibrot skoraði úr
víti fyrir A-Þ. eftir að leiktíma lauk,
18—15.
Ekki villulaust
Auk þeirra Bjarna, Páls og Einars
markvarðar, sem áður eru nefndir, átti
Ólafur H. snjallan leik í vörninni. Þeir
voru fleiri góðir þar, Þorbjörn Guð-
mundsson, sem skipti við Sigga Sveins
eða Axel, komst vel frá sínu hlutverki
— en ég er ekki frá því, að Bjarni og
Páll Bj. hafi einnig verið beztu varnar-
mennirnir. Aldrei skoraði úr horninu
hjá Bjarna og Páll var fremstur varnar-
manna. Truflaði sóknarleik gestanna
mjög. Stefán Halldórsson lék vel eins
og í fyrri leiknum. Steindór og Axel
sæmilegir. Ekki atkvæðamiklir. Flest-
um leikmönnum liðsins urðu á villur,
skiljanlega, en langverst var þó útkom-
an hjá þeim Sigga og Páli Ólafssyni. Þó
byrjaði Palli svo vel í leiknum. Skoraði
tvö mörk fljótt eftir að hann kom inn á
í stað Stefáns. Lokaði hægra horninu
líka betur. Það er talsvert vandamál í
vörninni. Pester skoraði þar þrjú mörk
— Dreibrot komst þar einnig í gegn.
Þetta verður minnisstæður leikur — í
heild frábær leikur íslenzka liðsins, sem
gefur vonir um góðan árangur í B-
keppninni í Frakklandi, sem hefst um
næstu helgi. Ef til vill tvíeggjaður eins
og Óli fyrirliði sagði eftir leikinn — en
sigur, sem þarf að fylgja eftir. Sigurinn
enn athyglisverðari fyrir þá sök hve
sænsku dómararnir, Johansson og
Eliasson, voru hliðhollir þýzka liðinu.
Þáð fékk fimm vítaköst i leiknum — ís-
land ekkert. Fjórum leikmönnum ís-
lands vikið af velli, Steindóri, Óla H.,
Þorbergi og Páli en aðeins tveimur
Þjóðverjum. Það munar um minna í
dómgæzlunni.
Mörk íslands í leiknum skoruðu Páll
Bj. 6, Bjarni 4, Siggi Sveins 2, Páll Ól.
2, Stefán, Óli H., Axel og Steindór eitt
hver. Dreibrot skoraði flest mörk A-Þ.
eða 7/3. Annar heimsfrægur kappi,
Frank Wahl skoraði 3 — Pester einnig,
en frægasti leikmaður A-Þýzkalands,
Peter Rost, skoraði aðeins eitt mark.
Wolfgang Schmidt einnig eitt. Peter
Hoffmann varði mikið fyrsta stundar-
fjórðunginn. Síðan kom Jtirgen
Rohde, sá snjalli markvörður í markið.
Wieland Schmidt, frægasti mark-
vörður Austur-Þýzkalands kom hins
vegar ekki hingað.
-hsim.
JÖtóyc
PARIS
Sothys
útsö/ustaðir
Snyrtistofan Afrodita
Faxastíg 7, Vestmannaeyjum
Simi 2314.
Apótekið Vestmannaeyjum
Vestmannabraut 24
Sími 1116.
Snyrtistofan Ásýnd
Garðastræti 4. R.
Sími 29669.
Evfta, snyrtivöruverzlun
Laugavegi 41, R.
Sími 28828.
Snyrtistofa Gróu
Vesturgötu 39, R.
Sími 16508.
Snyrtistofan Hótel Loftlciðum
Sími 25320.
Snyrtistofa Ingu
Stóragarði 11, Húsavík
Sími41837
Topptízkan, snyrtivöruverzlun
Miðbæjarmarkaðinum R.
Simi 13760
Ölfusapótek
Breiðumörk 23. Hveragerði
Sími 4197.
Hinar þekktu frönsku snyrti'vörur SOTHYS eru nú
komnar á markaö hér. SOTHYS snyrtivörurnar eru of-
nœmisprófaðar, án ilmefna og aðeins búnar til úr efnum
náttúrunnar. SOTHYS snyrtivörurnar eru visindaleg
framleiðsla, þar sem strangt eftirlit rannsóknarstofu á hrá-
efnum og endanlegri framleiðslu tryggir gæðin. I upphafi
lagði SOTHYS aðaláherzlu á að framleiða fyrir snvrli■
stofur, hafa þeir þar 30 ára reynslu að baki og eru braut-
ryðjendur á mörgum sviðum. Til eru ýmsar meðferðir
(kúrar) sem þér getið fengið á snyrtistofum og viðhaldið
siðan heima. SOTHYS snyrtivörurnar eru mjög virkar
ogfjölbreyttar. þar œttu allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. SOTHYS tekur tillit til hinna ýmsu húðgerða.
m.a. má þar nefna:
FONDAMENTALK Lína fyrir unga og blandaða húð.
SUPER VISAGE fyrir húð sem þarfnast raka, stvrkir
einnig og nærir.
EQUILIBRANTE með coUageni fyrir þurra. viðkvæma
ogþreytta húð.
GRAND AIR fyrir viðkvæma rjóða húð og húð með hár-
æðasliti.
PEA UX GRASSES erfyrirfeita og bólótta húð (acne).
I öllum þessum linum er boðið upp á hreinsimjólk, andlits-
vatn, krem, maska og ampellumeðferð (kúra) an auk þess
er hægt að fá enn meiri fjölbreytni með COMPLI-
MENTARE-linu sem inniheldur t.d. djúphreinsikrem
(peeling) I mjúku kremformi, CREME 163 sportkremi.
sem er mjög verjandi og tilvaliðfyrir alla sem stunda sport
eða eru mikið úti við t.d. ifrosti. MASQUE 270, sem er
skyndimaski og góður ef þér eruð þreyttar og þurfð á
skömmum tima að hressa og slétta úr þreytumerkjum
húðarinnar, t.d. fyrir samkvæmi. Sérstaklega viljum við
benda á CREME PLACENTYL sem er sérstaklega
græðandi og nota má fyrir allar húðgerðir. SOTHYS
hefur einnig sent frá sér nýja, mjögfallega litalínu í miklu
úrvali.
Ef þér viljið viðhalda húðinni eða eigið við húðvandamáI
að stríða, leitið þá upplýsinga og ráðlegginga hjá snyrti-
stofum og verzlunum, sem bjóða upp á SOTHYS—
þjónustu. Ef langt er I nœstu SOTHYS-þjónustu, skri/ið
og snyrtifræðingur okkar mun veita yður allar nánari
upplýsingar.
Einkaumboð ó íslandi.
Efnaverksmiðjan
cillci/ hf
Box 411,121 Reykjavík.
„Geturverið
tvíeggjað”
„Þetta getur verið tvieggjaður sigur
— en sætur var hann,” sagði Ólafur H.
Jónsson, fyrirliði islenzka liðsins, eftir
leikinn. „Bjartsýni manna fyrir B-
keppnina verður auðvitað mikil eftir
þennan sigur — en við getum ekki
byggt á honum þar. Það verður barizt
um hvert stig í B-keppninni.
Leikurinn i heild er einn albezti
leikur, sem ég hef leikið með fslenzku
landsliði. Engar sveiflur — það gekk
allt upp og markvarzlan var frábær. En
ég vara við of mikilli bjartsýni. Pössum
okkur á henni,” sagði Ólafur H.
- hsím.
„Þetta var
frábærsigur”
„Þetta var frábær sigur og áhorfend-
ur áttu ekki svo litinn þátt í honum.
Stuðningur þeirra var stórkostlegur,”
sagði Páll Björgvinsson, ein af hetjum
íslands f leiknum i gærkvöld.
„Við lékum skynsamlega, yfirvegað
og barátta var mikil allan timann.
Markvarzlan var mjög góð hjá okkur.
Jú, ég er sæmilega ánægður með
minn hlut. Er maður það ekki alltaf
þegar vel gengur? — En það er ekki
nóg að vinna þennan leik. Við verðum
að fylgja þessu eftir i B-keppninni. Að
þvi verðum við að stefna,” sagði Páll.
- hsím.
ísland vinnur
Svíþjóð
— í B-keppninni með slík-
um leik, sögðu sænsku
dómaramir
„Ef íslenzka liðið nær slíkum leik
gegn Svium í B-keppninni f Frakklandi
þá erum við vissir um að ísland vinnur
þar,” sögðu sænsku dómararnir, Lars
Erik Johansson og Kjell Elíasson, eftir
sigurleik íslands á A-Þjóðverjum í gær-
kvöld.
„En þessir tveir leikir islenzka liðsins
gegn A-Þjóðverjunum voru eins og
dagur og nótt. Svo miklu betri nú hjá
fsl. liðinu. Leikmenn liðsins börðust
mjög vel og Iéku handbolta eins og bezt
gerist i Jieiminum. íslenzka liðið er
„bra lag”, það fer ekki á milli mála.
Markvörðurinn, Einar Þorvarðarson,
snjall og beztu útispilararnir voru nr. 7,
Páll Björgvinsson og nr. 2, Ólafur H.
Jónsson,” sögðu dómararnir ennfrem-
ur.
-hsim.
Heimsmet
Sören Schlegel setti heimsmet í 100
yarda hlaupi innanhúss i gær er hann
hljóp vegalengdina á 9,50 sek. Gamia
metið var i eign Bandaríkjamannsins
Harvey Glance og var 9,54 sek. Schleg-
el er A-Þjóðverji. Þá jafnaði Marita
Koch heimsmet landa sins, Marlies
Göhr, i 60 metra hlaupi kvenna -
hljóp á 7,10 sek.
Sigurður
Sverrisson
Ármenningur-
innsigraðií5
afsexgreinum
Davíð Ingason, Ármanni, var mjög
sigursæll á meistaramótinu í fimleikum ;
i gær, 17 ára og eldri. Sigraöi i fimm
greinum af sex í karlaflokki. Krist-
mundur Sigurðsson, Ármanni, sigraði i
einni grein. í kvennaflokki voru
Gerplu-stúlkurnar Vilborg Nielsen og
Björg Ólafsdóttir sigurvegarar. Nánar:
síðar.