Dagblaðið - 20.03.1981, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981.
DAGBLADIÐ. FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1981.
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Úrslitakeppni
yngri flokkanna
Eftirtalin félög hafa tryggt sér rétt til þess aö
keppa í úrslitakeppni yngri aldursflokka á islands-
mótinu 1981.
2. fl. kvenna
Haukar, ÍR, Víkingur, Fram, Þór Akureyri.
3. fl. kvenna.
Fylkir, Grótta, FH, ÍR, UMFG, Víkingur, Þór Ak.
3. fl. karla.
Valur, KR, Týr, Stjarnan, Þróttur, Þór AK.
4. fl. karla
Valur, Stjarnan, UBK, Ármann, Þór VE, Þór AK,
UMFN.
5. fl. karla.
Valur, FH, Víkingur, Leiknir, KR, HK, Þór Ak.
Ursiitakeppnin mun fara fram nú um helgina, 21.
og 22. marz, og veröur leikið á eftirfarandi stöðum:
2. fl. kvenna Laugardalshöll:
laugardagur kl. 13.00—16.00
sunnudagur kl. 17.30—21.00
3. fl. kvenna Seltjarnarnes:
laugardagur kl. 14.00—19.00
sunnudagur kl. 13.00—17.00
3. flokkur karla
laugardagur kl. 13.00—21.00 Hafnarfjörður
sunnudagur Kl. 13.00—17.30 Laugardalshöll
4. fl. karla Ásgarður, Garöabæ,
laugardagur kl. 15.00—20.00
sunnudagur kl. 13.00—17.00
5. fl.karla Varmá, Mosfellssveit
laugardagur kl. 14.30—19.30
sunnudagur kl. 14.30—18.30
Umsjón HK.
Mögulegt er að leikur i annarri deild karla milli
HK og KA verði annaðhvort á laugardeginum eða
sunnudeginum og verður þá töf á keppni yngri
flokkanna sem því nemur.
Keppni í öðrum flokki karla frestast þar sem úr-
slit liggja ekki fyrir og dómstóll hefur ekki afgreitt
kærumál vegna þess flokks.
Dómaranámskeið
Dómaranámskeið verður lialdið í Haukahúsinu
Halnarfirði 21. og 22. marz. Leiðbeinandi verður
Kristbjörn Albertsson.
í Reykjavík (Vörðuskóla) 28. og 29. marz.
Leiöbeinandi verður Jón Otti Ólafsson.
í Njarðvik (Barnaskólanum) 28. og 29. marz.
Leiðbeinandi verður Kristbjörn Albertsson.
Á Akureyii 4. og 5. apríl. Leiðbeinandi verður
Hörður Tuliníus.
Þátttökugjald er kr. 100,00 og er allt námsefni
innifaliö. Þátttökutilkynningar berist skrifstofu KKÍ
sem fyrst.
íslandsmót
íbadminton
á Akranesi
íslandsmeistaramót verður haldið á Akranesi, í
íþróttahúsi Akraness, dagana 4.-5. apríl.
Mótið hefst ki. 12 á hádegi laugardaginn 4. apríl.
Keppt er í öllum greinum og eftirtöldum
flokkum:
Meistaraflokki, A-flokki, öðlingaflokki (40—49
ára), og æðsta flokki (50 ára og eldri).
Spilað verður fram í undanúrslit á laugardag.
Kl. 10 á sunnudag verða spiluö undanúrslit og kl.
2 o.h. verður keppt til úrslita.
Mótsgjald er:
kr. 65,00 fyrir einliöaleik
kr. 55,00 fyrirlvíliðaleik
kr. 55,00 fyrir tvenndarleik.
Þátttökutilkynningar skulu berasl stjórn BSÍ
fyrir 25. marz.
Víðavangshlaupi
íslands f restað
Þar sem mikill klaki og snjór er enn yfir öllum
túnum hefur verið ákveðið að fresta Viðavangs-
hlaupi íslands sem vera átti á Selfossi nk. laugardag
til sunnudagsins 12. apríl. Þær þátttökutilkynningar
sem nú þegar hafa verið sendar inn gilda áfram, en
tekið verður við nýjum fram til 6. apríl.
Álafosshlaup UMf. Aftureldingar sem vera átti
11. april hefur verið fært fram i staðinn og verður
það haldið nk. laugardag, 21. marz, og hefst kl.
14.30. Keppt verður í þremur flokkum karla og
kvenna, þ.e. fæddir 1968 og síðar, fæddir 1965—67
og fæddir 1964 og fyrr. Keppendur mæti við íþrótta-
húsið að Varmá til skráninga eigi siðar en kl. 14
sama dag og verður þeim ekið að upphafsstað
hlaupsins. Áætlunarbifreið fer frá Umferðar-
miðstööinni kl. 13.15 og frá Hlemmi nokkrum
minútum siðar. Nánari upplýsingar um hlaupið
gefur Jóhann S. Björnsson, sími 66377.
Keppendur i 50 m grindahlaupi á íslandsmótinu í Baldurshaga.
DB-mynd S.
Setti íslandsmet í langstökki
og sigraði í fjóram greinum
—Stefán Stefánsson, ÍR, mestur afreksmaður í keppni í yngrí flokkunum ífrjálsum
íslandsmeistaramót yngri flokkanna
í frjálsum íþróttum innanhúss var háð
um siöustu helgi. Keppt var á þremur
stöðum. í Laugardalshöll, Baldurshaga
í ÍR-húsinu. Frjálsiþróttadeild ÍR sá
um mótið og þátttaka var mikil.
Keppni er þó ekki alveg lokið. Eftir er
að keppa í stangarstökki og kúluvarpi.
Stefán Stefánsson, ÍR, var mestur
afreksmaður á mótinu. Setti íslands-
met i langstökki og sigraði i mörgum
greinum.
Úrslit í einstökum greinum urðu
þessi.
Meyjaflokkur
50mhlaup.
1. Jóna Björk Grétarsd., Á 6,6
2. Bryndís Hólm ÍR 6,8
3. Svava Grönfeldt UMSB 7,0
4. Kristbjörg Helgadóttir Á 7,1
50 m grindahlaup
r. Kristbjörg Helgadóttir A 7,9
2. Anna B. Bjarnadóttir UMSB 8,5
3. Guðrún Sveinsdóttir Afteld. 9,0
4. Kristín Símonard., UMSB 9.2
Langstökk
1. Bryndis Hólm IR 5,50
2. Jóna B. Grétarsd., Á 5,41
3. Svava Grönfeldt UMSB 5,31
4. Kristbjörg Helgad., Á 5,00
5. Þórdís Hrafnkelsd., UÍA 4,92
6. Aðalheiður Hjálmársd., Á 4,92
Hástökk
1. Bryndís Hólm ÍR 1,55
og Guðrún Sveinsdóttir, Afteld.1,55
3. Þórdís Hrafnkelsd., UÍA 1,55
4. Hafdís Helgad., UMSB 1,50
5. Kristbjörg Helgadóttir Á 1,50
6. Dagbjört Leifsdóttir HVÍ 1,45
Langstökk án atrennu
1. Jóna Björk Grétarsd., Á 2,55
2. Kristbjörg Helgadóttir Á 2,47
3. Guðrún Harðard., ÍR 2,45
4. Þórdis Hrafnkelsd., UÍA 2,40
5. Erna Gísladóttir Afteld. 2,37
6. Alfa R. Jóhannsd., Afteld. 2,35
Stúlknaflokkur:
50 m hlaup
1. Helga B. Árnad., UBK 6,7
2. Ragnheiður Jónsd., HSK 6,9
3. Kolbrún Sævarsd., ÍR 7,2
4. Élísabet Sveinsd., ÍBK 7,5
50 m grindahlaup
1. Arney Magniisdóttir UÍA 8,4
Langstökk
1. íris Grönfeldt UMSB 5,10
2. Helga B. Árnad., UBK 4,88
3. Fjóla Lýðsdóttir HSS 4,62
Hástökk
1. Arney Magnúsd., UÍA 1,55
2. Sigríður Valgeirsd., ÍR 1,55
3. íris Jónsdóttir UBK 1,50
4. lris Grönfeldt UMSB 1,45
Hástökk án atrennu
1. Ólafur Óskarsson UDN 1,40
2. Þröstur Sigsteinsson UDN 1,35
Langstökk án atrennu
1. Hörður Harðarson UDN 2,78
2. Gunnar Kristjánsson KR 2,75
3. Þröstur Sigsteinsson UDN 2,73
4. Finnbogi Harðarson UDN 2,73
5. Einar Gunnarsson UBK 2,70
Þrístökk án atrennu
1. Gunnar Kristjánsson KR 8,02
2. Finnbogi Harðarson UDN 7,92
3. Ólafur Óskarsson UDN 7,91
4. Guðmundur Pálmason HSS 7,89
Drengjaflokkur:
50 m hlaup
1. Guðni Tómasson Á 6,1
2. Jóhann Jóhannsson ÍR 6,2
3. Stefán Þ. Stefánsson ÍR 6,3
4. Kristján Harðarson UBK 6,3
50 m grindahlaup
1, Stefán Þ. Stefánsson ÍR 7,2
I.angstökk
1. Stefán Þ. Stefánsson ÍR 6,90
2. Kristján Harðarson UBK 6,33
3. Agnar Steinarsson ÍR 6,00
4. Guðmundur Gunnarsson UBK 5,79
5. Tómas Jónsson KR 5,38
6. Björn Sveinsson FH 5,18
Langstökk án atrennu
1. Fjóla Lýðsdóttir HSS 2,49
2. Bryndís Bjarnason Afteld. 2,45
3. Amey Magnúsd., UÍA 2,37
4. íris Grönfeldt UMSB 2,36
5. Kolbrún Sævarsdóttir ÍR 2,33
Sveinaflokkur:
50 m hlaup
1. Karl Þráinsson ÍR 6,3
2. Einar Gunnarsson UBK 6,3
3. Þorsteinn Sigmundsson UBK 6,4
4. Gunnar Kristjánsson KR 6,4
50 m grindahlaup
1. Gunnar Kristjánsson KR 7,7
2. Ólafur Óskarsson UDN 8,8
3. Finnbogi Harðarson UDN 10,1
Langstökk
1. Einar Gunnarsson UBK 6,13
2. Karl Þráinsson ÍR 5,83
3. Sigurjón Valmundsson UBK 5,81
4. Hörður Harðarson UDN 5,69
5. Hreiðar Gíslason FH 5,35
6. Viggó Þ. Þórisson FH 5,30
Hástökk
1. Páll Jóhann Kristinsson UBK
2. Þorsteinn Sigmundsson UBK
3. Finnbogi Harðarson UDN
4. Jón Rúnar Hilmarsson ÍBK
5. Ólafur Óskarsson UDN
Sigurbjörn Þorgeirsson, slgurvegari i 9 ára flokki, i brautinni. DB-mynd GSv.
Hástökk
1. Stefán Þ. Stefánsson ÍR
2. Hafliði Maggason ÍR
3. Hafsteinn Þórisson UMSB
4. Tómas Jónsson KR
Hástökk án atrennu
1. Stefán Þ. Stefánsson ÍR
2. Sigsteinn Sigurðsson UDN
1,57
1,25
Langstökk án atrennu
1. Guðm. Engilbertsson USVH 8,97
(Islandsmeistari)
2. Sigsteinn Sigurðsson UDN 2,94
3. Jóhann Einarsson USVH 2,88
4. Stefán Þ. Stefánsson ÍR 2,80
5. Jóhann Jóhannsson ÍR 2,74
Þrístökk án atrennu
1. Sigsteinn Sigurðsson UDN 9,01
2. Guðmundur Engilbertsson USVH
3. Stefán Þ. Stefánsson ÍR 8,84
4. Jóhann Einarsson USVH 8,22
5. Jóhann Jóhannsson ÍR 8,03
Agabrotin eru innanhússmál
—segir Júlíus Hafstein, formaður HSÍ, í viðtali við Iþróttablaðið
„Agabrot voru ekki orsök ófar-
anna” er fyrirsögn á viðtali, sem Ingvi
Hrafn Jónsson frétttamaður á við
Júlíus Hafstein, formann Handknatt-
leikssambands íslands. Það er birt
í nýju hefti íþróttablaðsins, sem kom
út í gær. Langt og að ýmsu leyti
fróðlegt viðtal. Þó kemur þar á óvart
að formaðurinn segir að agabrotin séu
innanhússmál HSI. Við grípum hér
niður í kafla i viðtalinu.
— Áður en við höldum lengra
langar mig til að spyrja þig hreint út —
var fyllirí á liðinu í Frakklandi? Sögur
ganga um það og ég veit, að það
gerðust atvik, sem þið flokkið undir
agabrot. Misstuð þið stjórn á liðinu?
— Nei, við misstum ekki stjórn á
liðinu og um fyllirí var ekki að ræða.
Vandamál komu upp, það er annað
mál, þau þarf að fyrirbyggja, en ég álit
þau innanhúsmál HSÍ, þau eru ekki
alvarlegri en það.
— Þú heldur þvi fram, að frá þvi að
þið hélduð utan 19. febrúar og þar til
að þið lékuð síðasta leikinn 28.
febrúar, hafi ekki verið um vínneyslu
að ræða hjá leikmönnum?
— Okkur sem stóðum að ferðinni er
ekki kunnugt um það, og ekkert bendir
til að svona hafi verið. Ég hafna svona
sögusögnum alfarið.
— Tölum ekki bara um vínneyslu
leikmanna, en þeir fóru í bjórinn?
— Ekki er mér kunnugt um það.
— Það var sem sagt engum leik-
manni refsað eða hann settur út úr
liðinu vegna neyslu áfengra drykkja,
víns eða bjórs?
— Nei.
— Fullyrðir þú fyrir hönd HSÍ að
um slíkt hafi ekki verið að ræða?
— Að sjálfsögðu fullyrði ég það,
meðan ég veit ekki annað.
— Ég veit, að það kom fyrir oftar
en einu sinni, að leikmenn laumuðust
út og laumuðust heim undir morgun.
— Það er ekki rétt að það hafi
komið fyrir oftar en einu sinni og að
þeir hafi komið heim undir morgun er
heldur ekki rétt. Þetta vandamál sem ég
var að tala um var á þá leið, að nokkrir
leikmenn fóru í gönguferð seint um
kvöld og komu flestir fljótlega heim, en
þeim síðasta mætti ég sjálfur klukkan
hálffjögur.
— Kallar þú ekki hálffjögur um
nótt.rétt fyrir leik, að koma heim undir
morgun?
— Jú, vissulega, énda voru þeir
síðast komu heim ekki með í leiknum
um kvöldið.
— Sást þú vin á þessum manni?
— Nei.
— Nú veit ég að eitt sinn er þú varst
Hörkukeppni hinna
yngstu í Hlíðarfjalli
Akureyrarmót í svigi fyrirl2 ára og
yngri var háð í Hlíöarfjalli um síðustu
helgi. Keppni í yngstu aldursflokkun-
um fer síharðnandi enda æfingar
stundaðar af miklu kappi. Krakkarnir,
sem tóku þátt í mótinu, stefna á þátt-
töku í Andrésar-andar-leikunum.
Úrslit í einstökum aldursflokkum
urðu þessi.
11 — 12 ára drengir
Hilmir Valsson 60,86
Gunnar Reynisson . 63,68
Aðalsteinn Árnason 63,93
11 — 12 ára stúlkur
Gréta Björnsdóttir,
Anna ívarsdóttir
Helga Sigurjónsdóttir
10 ára drengir
Jón I. Árnason
Jón Harðarson
Kristinn Svanbergsson
10 ára stúlkur
Sólveig Gísladóttir
Þorgerður Magnúsdóttir
Jórunn Jóhannsdóttir
9 ára drengir
Sigurbjörn Þorgeirsson
Vilhelm Þorsteinsson
Viðar Einarsson
9 ára stúlkur
Rakel Reynisdóttir
69,20
69,84
70,71
62.52
67,12
68.52
66,60
70,46
78,78
67,43
69,54
71,48
72,45
Ása S. Þrastardóttir 73,19
Sigríður Þ Harðardóttir 74,01
8 ára drengir
Sævar Guðmundsson 69,40
Magnús Karlsson 72,59
Birgir Ö. Tómasson 78,57
8 ára stúlkur
María Magnúsdóttir 71,60
Mundína Kristinsdóttir 93,50
Harpa ÖrlygSdóttir 112,04
7 ára drengir og yngri
Gunnlaugur Magnússon 72,68
Stefán Þ. Jónsson 77,13
Gunnar Ellertsson 77,46
8 ára stúlkur og yngri
Harpa Hauksdóttir 73,43
Linda B. Pálsdóttir 91,01
Sísí Malmquist 95,11
Þá var göngumót. Svokallað marz-
mót.
15—16 ára 5 km.
Björgvin Birgisson 24,01
Jón Einarsson 25,08
13—14 ára 5 km.
Jón Stefánsson
Gunnar Kristinsson
11 ára 2,5 km.
Ásgeir GuðmundsSon
20,08
22,35
15,08
-GSv.
að fara á veitingahús með fréttamönn-
unum sem fylgdu liðinu, til þess að
rabba við þá, að þá voru tveir leikmenn
þar fyrir, en þeim var gert viðvart og
þeir flýttu sér út um bakdyrnar?
— Já, þetta er rétt, en hverjir gerðu
þeim viðvart og hvers vegna? Og hver
er ástæðan fyrir því að formanni HSl
var ekki sagt frá þessu?
— Því get ég ekki svarað, en
óneitanlega læðist sá grunur að, er
menn eru að stelast út og læðast heim í
skjóli nætur að þeir hafi eitthvað að
fela, svona eins og óþekkir strákar?
— Það má kannski segja um suma
að þeir séu eins og óþekkir strákar, en
það er annað að vera svolítið óþekkur,
eða sitjaað sumbli.
Ljómamót (A
Ljóma-badmintonmótið sem haldiö
er árlega á Akranesi i meistaraflokki
karla og kvenna, fer fram sunnudaginn
22. marz kl. 12 árdegis.
Mótið fer fram í iþróttahúsinu við
Vesturgötu. Allt bezta badmintonfólk
landsins kemur til keppni.
Smjörlíki hf. hefur styrkt þetta mót
á rausnarlegan hátt og gefið veglega
verðlaunagripi.
Keppni badmintonfólks hefur aldrei
verið jafnari og tvisýnni en nú eins og
sézt bezt á því hvað sigrar skiptast
jafnara nú á milli manna en áður.
Július Hafstein
— Það var haft eftir Hilmari
þjálfara, er verið var að ræða þessi aga-
brot, sem þú svo nefnir, að hann væri
kominn til Frakklands með tuttugu
menn, sem vissu að þeir væru þar til að
keppa í nafni íslensku þjóðarinnar og
hann gæti ekki né vildi gæta þeirra eins
og smábarna. Er þetta ekki rangt, þarf
ekki að halda uppi járnaga í svona liði,
eins og flestir kunnustu íþróttaþjálf-
ararnir gera?
— Það eru til gamlar sögur af ævin-
týralegum ferðum íslenskra íþrótta-
manna og það er einu sinni svo, að
menn halda lengst á lofti gömlum
sögum. Ég get aðeins sagt, að við hjá
HSÍ höfum ekki þurft að hafa áhyggjur
af þessu undanfarin ár. Ég er að mörgu
leyti sammála Hilmari um það, að ef
við treystum þessum mönnum til að
koma fram fyrir íslands hönd í heims-
meistarakeppninni þá hljótum við að
treysta þeim persónulega.
— Hversu stór hópur átti þátt í
þessu agabroti, sem þú kallar svo?
— Það voru sex menn.
— Þriðjungur landsliðsins?
— Já.
— Áttu þessi agabrot þátt i
Valssigur á Akranesi
—Valur sigraði ÍA 20-13 íbikarkeppni HSÍ ígærkvöld
Valsmenn tryggðu sér rétt í átta-liða
úrslit bikarkeppni handknattleiks-
sambandsins i gærkvöld, þegar þeir
sigruðu Akurnesinga 20—13 í ákaflega
slökuin leik í íþróttahúsinu i gærkvöld.
Öruggur sigur Valsmanna en þeir hafa
þó varla leikið lakari leik í vetur þótt
það nægði gegn Skagamönnum. ÍA
hefur misst fjóra sterka leikmenn að
undanförnu og skýrir það nokkuð
frammistöðu liðsins.
Valur byrjaði vel. Komst í 4—1, en
ÍA minnkaði muninn í 5—3 eftir 18
mín. Staðan i hálfleik var 10—6. Vals-
menn skoruðu fimm fyrstu mörkin i
síðari hálfleik, 15—6, en lokakaflann
skoruðu heimamenn fleiri mörk.
Þorlákur Kjartansson, markvörður.
íþróttasamband fatlaðra sendir nú þátttakendur i fyrsta sinn á Norðurlandamótið
í bogfimi fatlaðra, sem verður í Horten í Noregi 11. apríl nk. íslenzku þátt-
takendurnir, Elisabet Vilhjálmsson, Jón Eiríksson, bæði Reykjavik, og Rúnar
Björnsson, Akureyri, munu taka þátt í einstaklingskeppni og sveitakeppni. Farar-
stjóri verður Magnús H. Ólafsson íþróttakennari. Myndin að ofan er af Rúnari í
var langbezti leikmaður Vals í leiknum.
Varði samtals 18 skot meðan ÍA-ntark-
verðirnir vörðu aðeins sex. Hjá ÍA var
landsliðsmaðurinn í knattspyrnunni,
Siggi Donna, áberandi beztur en
heldur lítið bar á Pétri ingólfssyni.
Dómarar Björn Jóhannesson og Árni
Sverrisson og ekki var laust við að þeir
væru heimamönnum hagstæðir.
Mörk ÍA skoruðu Sigurður
Halldórsson 4/2, Hlynur Sigvaldason
2, Gunnlaugur Sölvason 2, Pétur
lngólfsson 2, Kristján Hannibalsson,
Ólafur Engilbertsson og Þorleifur
Sigurðsson eitt hver.
Mörk Vals skoruðu Bjarni
Guðmundsson 5, Stefán Halldórsson 5,
Brynjar Harðarson 4/4, Jón Pétur
Jónsson 2, Steindór Gunnarsson 2,
Þorbjörn Guðmundsson 1 og Þorbjörn
Jensson 1. -SSv.
útreiðinni sem við fengum?
— Nei, mér er alveg sama hversu
hátt menn hrópa um það, ég vísa því
algerlega á bug.
— Ef við þá ljúkum þessum kapítula
og göngum út frá þvi að aðeins hafi
verið um saklaust og vinlaust agabrot
aðræða. . .
— Ég sagði aldrei að agabrot væru
saklaus.
Unglingamót
íbadminton
Meistaramót TBR í unglinga-
flokkum verður haldið i húsi félagsins
28. og 29. marz nk.
Mótið hefst kl. 2 laugardaginn 28.
marz en úrslitaleikir verða spilaðir
sunnudaginn 29. marz og hefjast þeir á
sama tima.
Keppt verður i cftirtöldum
flokkum:
Hnokkar-tátur (f. '69 og síðar)
Sveina-meyjar (f. '67 og ’68)
Drengir-telpur (f. '65 og ’66)
Piltar-stúlkur (f. ’63 og ’64).
Mótsgjald er sem hér segir:
Hnokkar-tátur
30 kr. einll. og 20 kr. tvll. og tvenn.
Sveinar-meyjar
40 kr. einll. og 30 kr. tvll. og tvenn.
Drengir-telpur
50 kr. einll og 40 kr. tvll. og tvenn.
Piltar-stúlkur
60 kr. einll. og 50 kr. tvll. og tvenn.
Þátttökutilkynningar skulu hafa
borizt unglingaráði TBR fyrir
miðvikudaginn 25. marz.
Morten Frost
í úrslitin
1 undanúrslitum i einliðaleik karla á
opna, sænska meistaramótinu í
badminton í Malmö í gær sigraði
Morten Frost, Danmörku, Kevin Jolly,
Englandi, 15—9 og 15—5. Lius
Pongoh, lndónesíu, sigraði Ray
Steveris, Englandi, 14—15, 15—6 oj>
15—8 og leikur við Frost í úrslitum. í
einliðaleik kvenna ieika Sunai Hwang,
S-Kóreu, og Lie Ing Ivana, Indónesiu, í
úrslitum. Lena Köppen keppti ekki. í
undanúrslitum i tvíliðaleik sigruðu
Stefan Karlsson og Thomas Kilhström
Flemming Delfs og Stcen Skovgaard
15—7 og 15—10. Svíarnir leika við
Ertanto og Hadibowo, Indónesiu, i úr-
slitum. Indónesarnir sigruðu landa sína
Hartono og Herryanto 10—15, 15—9
og 17—15 í gær.
Real Madrid
íll.skipti
í undanúrslitin
—sigraði Spartak Moskvu 2-0 í gærkvöld
Sjaldan eða aldrei hafa frægari lið
komizt í undanúrslit Evrópubikarsins í
knattspyrnu og að þessu sinni. í gær
vann Real Madrid (sex sinnum sigur-
vegari) öruggan sigur á Spartak
Moskvu og leikur því ásamt Bayern
Miinchen (þrisvar sigrað), Liverpool
(tvisvar sigrað) og Inter Milano (tvisvar
sigrað) i undanúrslitum
Evrópubikarsins.
Yfir 110 þúsund áhorfendur sáu leik
Real Madrid og Spartak í gærkvöld.
Uppselt og spenna var mikil. Jafntefli
0—0 i fyrri leik liðanna j Tblisi, þar
sem áhorfendur fögnuðu spánska
liðinu. Allir áhorfendur voru líka á
bandi’ þess í gær og lengstum buldu
sóknarloturnar á vörn Spartak.
Vestur-þýzki landsliðsmaðurinn, Uli
Stielike, aðalmaður Real. En leik-
mönnum liðsins gekk illa að brjóta
niður varnarvegg Spartak og sovézku
leikmennirnir voru hættulegir í skyndi-
sóknum. Um miðjan siðari hálfleikinn
komst Yuri Gavrilov frír að marki Real
en tókst ekki að skora hjá Garcia
Remon. Þremur mín. síðar fékk
Spartak annað færi en Gavrilov spyrnti
framhjá markinu.
Þetta reyndist Spartak dýrt. Loka-
kafla leiksins varð sókn Real enn
þyngri og á 69. min. tókst Isidro Diaz
að skora fyrir Real. Kom kneltinum
framhjá fjölmörgum varnarmönnum
Spartak og í netið. Átta mín. siðar
skoraði Diaz aftur. Rinat Dasaev,
markvörður Spartak, tókst ekki að
halda knettinum eftir skalla Carlos
Santillana og Isodro Diaz sendi
knöttinn í markið af stuttu færi. Gífur-
legur fögnuður og Real Madrid er nú
komið í ellefta skipti í undanúrslit þess-
arar merkustu knattspyrnukeppni
félagsliða í Evrópu. Sigraði í fimrn
fyrstu skiptin eða frá 1956-1960 og svo
ísjötta sinn 1966. -hsím.