Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
DB á neytendamarkaði
28 TAXTARIHDMIUSTÆKJA-
VIÐGERDUM í GANGINÚNA
Málið hef ur verið einfaldað til muna því áður voru taxtamir milli 50 og 60, segir Ámi Brynjólf sson
formaður Landssambands rafverktaka
,,Nú eru í gangi tuttugu og átta
taxtar i heimilistækjaviðgerðum. Er
það talsvert einfaldara frá því sem
áður var þegar taxtarnir voru milli 50
og 60,” sagði Árni Brynjólfsson, for-
maður Landssambands rafverktaka í
samtali við DB.
Lægsta tímakaup inni á verkstæði
er 57,30 kr., en það hæsta 82,10 kr.,
en það er meistarakaup. Ef um er að
ræöa að fá viðgerðarmanninn heim
gilda aðrar reglur. Miðað er við aö
viögeröarmaðurinn standi við I allt
að 10 mínútur, hálfan klukkutima
eða heilan tima. Er þrenns konar
kaup innan hverra tímamarka.
í fyrsta lagi er miðað við laun á
verkstæði þar sem engin yfirvinna er
unnin. i öðru lagi þar sem unnin er
ein klukkustund I yfirvinnu á dag og i
þriðja lagi er miðað við laun á verk-
stæði þar sem unnar eru tvær yfir-
vinnustundir á dag til jafnaðar. Ofan
á allar launagreiðslurnar bætist 15,75
kr. þjónustugjald og síðan sölu-
skattur.
Samkvæmt upplýsingum Árna
Brynjólfssonar eru einnig 1 gildi mis-
munandi verð fyrir akstur, eftir því
hve löng vegalengd frá verkstæði er
ekin.
í fyrsta lagi er miðaö við að við-
gerðarstaðurinn sé „innan borgar-
markanna”. Borgarmörk rafverk-
taka eru Vegamót á Seltjarnamesi,
Fossvogslækur og EUiðaár, þó telst
Breiðholtið ekki innan borgarmark-
anna. I öðru lagi er sérstakt aksturs-
gjald fyrir viðgerðarstaöi sem eru I
allt að 5 km „fjarlægð frá verk-
stæði”, þar með talinn Árbær,
Kópavogur, Breiðholt og Seltjamar-
nes. Enn annað gjald gUdir fyrir staði
sem „eru í allt að 8—12 km fjarlægð
frá verkstæðinu”. Virðist alltaf
reiknað með þvi að verkstæðið sé til
húsa í gamla miðbænum I
Árni sagði að þegar viðgerðar-
menn fara í hús tU þess að gera við
heimiUstæki, eigi þeir 'að hafa með-
ferðis það sem þeir þurfa að nota,
þannig aö þeir eiga ekki að þurfa að
fara sérstaka ferð eftir varahlutum.
Kostnaöur
skiptir ekki máli
„Mestu máli skiptir að sá sem á að
gera við tækiö viti hvað hann er að
gera, frekar en kaupið sem hann
fær,” sagði Árni Brynjólfsson.
Sjá verðtöflur annars staðar á síð-
unni.
-A.Bj.
Hvað kostar að fá
viðgerðarmann heim?
Lágmarksútkall, 10 mín. M/sölusk. og þjónustgj. Verö Helga m/sölusk. og þjónustugj.
Laun nr. I. 71,00 107,15 107,15
l.aun nr. 11. 73,35 110,05
Laun nr. III. 75,35 112,50
Vinna i hálfa klukkustund
Laun nr. I 106,50 150,95 150,95
Laun nr. II 110,00 155,30
Laun nr. III 113,00 159,00
Vinna i klukkustund
Laun nr. I 142,00 194,80 194,80
Laun nr. II 146,70 200,60
Laun nr. III 150,65 205,50
1 fyrsta dálkinum er verðiö an sölu-
skatts og þjónustugjalds, sem reiknað
cr á verðið í miðdálkinum. I aftasta
Klukkutíma útkall innan borgar
markanna getur farið upp i 247 kr., og
hálftlminn fcr rétt yfir 200 kr., eða
201,50 kr. Ef hins vegar er um útkall
alli að 8—12 km leið frá verkstæði
eins og til Hafnarfjarðar eða í Mos-
fellssvcit geta 10 mín. kostað 171,67,
hálftiminn 227,85 kr. og klukkutíminn
274,35 kr. Þá er reiknað með launum
III í öllum tilfellum.
Árni sagði aðerfitt væri aðáætla
hvað viðgcrð á vcrkstæði kosti. Sagði
hann það stafa af því að ekki er til
ákvæðistaxti í slíkum viðgerðum.
dálkinum er verð Helga, en hann
hefur aðeins eitt verð innan tímamark-
anna.
Lengri lífdagar hér
Hér á landi virðast heimilistæki eiga
lengri lífdaga heldur en í nágranna-
löndunum.Bendir það til þess að
mikið sé gert við heimilistæki hér.
miklu meira heldur en eðlilegt er talið
crlendis. Stafar þaðsennilega af því að
opinber gjöld af heimilistækjum hér á
landi eru svo óhðfleg að slikt þekkist
hvergi annars staðar I heiminum, þar
sem heimilistæki eru á annað borð
notuð.
- A.Bj.
HeimiUstæki eiga
iengri iífdaga hér
á iandi en í ná-
grannalöndunum,
þrátt fyrir að það
kosti skildinginn
að fá þau við-
gerð. Óhófieg
skattheimta ríkis-
ins ræður hér
sennilega mestu
um.
Akstur innan borgarmarka
vegna lágmarksútkalls 21,10
vegna lengri viðgerðar 42,50
Allt að 5—6 km fjarlægð frá verkstæði
vegna lágmarksútkalls 23,90
vcgna lengri viðgerðar 59,45
Allt að 8—12 km fjarlægð frá verkstæði
vcgna lágmarksútkalls 59,25
vegna lengri viðgerðar 68,85
Akstur Helga
42,50
42,50
42,50
Nýtt íslenzkt grænmeti
Nýtt íslenzkt grænmeti er nú að
byrja að koma á markaðinn. Fyrstar
komu agúrkurnar og í kjölfar þeirra
fylgdi salat, steinselja og örlítið af
hreðkum.Tómatarnir eru hins vegar'
ekki komnir enn. Það fer nokkuð
eftir tíðarfari hvenær við megum eiga
von á þeim en mönnum hjá Sölu-
félagi Garðyrkjumanna fannst ekki
ólíklegt að það yrði um miðjan maí.
Verðið á agúrkum er núna 27
krónur kílóið. Salatið kostar 5,10
búntið, steinseljan 3,60 og radísurnar
það sama.
Hollustu þessa nýja grænmetis
ætti að vera óþarft aö taka fram. Það
er auöugt af C-vítamíni og þar eð það
er alveg fitusnautt er það upplagt
fyrir þá sem eru að passa upp á lín-
umar.
Meðan okkur munar í þetta græn-
meti svona alveg nýtt er bezt að
borða það eins og það kemur fyrir.
Niðursneidd gúrka með fiskinum,
salat með fiski og kjöti og hreðkur,
bæði sér og með öðru, eru hreinn
hunangsmatur. Með hreðkurnar má
hafa i huga að liggi þær í ísköldu
vatni í klukkustund verða þær sérlega
stökkar og góðar.
Úr agúrkum má búa til margs
konar salat með mat. T.d. gúrkur í
jógúrti án ávaxta með dilli. Magn
hvers af þessum þáttum fer eftir því
hvað hverjum finnst bezt.
Þess má vænta að verð á þessu
grænmeti eigi eftir að lækka eitt-
hvað. Þá er um að gera að grípa tæki-
færið og sulta og sjóða niður. Við
segjum nánar frá því þegar að verð-
lækkuninni kemur.
- DS
Hún brosir blitt þessi með þvottavélina i góðu lagi. En bilaði hún og þyrfti við-
gerðarmann til að koma og laga hyrfi brosið liklega fljótt.
DB-mynd Einar.
Blöskraði hár
viðgerðartaxti
notar sjálf ur að-
eins lægstu taxtana
„Oft heyrist fólk kvarta yfir því að
það fái ekki viðgerðir á ýmsum teg-
undum heimilistækja. Einnig má
heyra fólk kvarta yfir þvi hve dýrt
það sé að fá viðgerðarmann heim til
sln. Mér hefur lika blöskrað hve hár
taxti er ríkjandi I heimilistækjavið-
gerðum, þannig aö ég nota aðeins
allra lægsta taxtann sem I gildi er,”
sagði Helgi Sigurðsson löggiltur raf-
verktaki, búsettur í Hafnarfirði í
samtali við DB.
„Manni ofbýður að taka fullan
taxta af t.d. gömlu fólki, sem hefur
lítið milli handanna. Ég minnist þess
að ég fór eitt sinn heim til gamallar
konu en hún bað um viðgerðarmann
vegna bilaðrar ljósakrónu. — Þegar
til kom var ein peran i ljósakrónunni
laus, en ekki annað að. ’ ’
Helgi sagðist jafnan taka lægsta
taxta Landssambands rafverktaka ,
sem er 71 kr. fyrir lágmarksviðgerð
allt að 10 mín., 106,50 fyrir 1/2 tíma
viðgerð og 142 kr. fyrir klukkutima-
viðgerð. Allir verða að greiða 15,75
kr. í svokallað þjónustugjald, ofan á
þessar tölur bætist 23,5% söluskatt-
ur. Fyrir aksturinn tekur Helgi 42,50.
Skiptir þá ekki máli hvar á Stór-
Reykjavikursvæðinu viðskiptavinur-
inn er búsettur. Sama gildir um þá
' sem búsettir eru í Breiðholti, Arbæ,
Seltjamarnesi, Mosfellssveit, Kópa-
vogi eða Hafnarfirði.
Ef Helgi þarf að fara aukaferð
eftir varahlutum tekur hann ekki
aukalega fyrir það. Ekki breytist
verðið hjá honum þótt komið sé fram
á kvöld, því hann vinnur fyrir sama
verð eftir klukkan fimm á daginn.
- A.Bj.