Dagblaðið - 27.04.1981, Qupperneq 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
Alþýðan situr sveitt og svarar spumingum:
STREITA OG VINNUÁLAG
IÐNAÐARMANNA SKOÐAÐ
— í könnun sem náms
menn og verkalýðs-
félögstanda að
ísameiningu
Þessa dagana sitja fjölmargir iðn-
aðarmenn sveittir yfir spurningalista
sem þeir hafa fengið senda til útfyll-
ingar. Eru það bifvélavirkjar, málarar,
jámiðnaðarmenn og smiðir af höfuð-
borgarsvæðinu og á Akureyri. Spurn-
ingarnar eru 73 talsins og fjalla um
vinnu viðkomandi, aðbúnað, heilsufar
og fleira. Það er 10 manna hópur is-
lenzkra námsmanna, sem flestir eru bú-
settir í Árósum í Danmörku, sem
stendur að þessari könnun, í samvinnu
viö nokkur verkalýðsfélög. Þeir kalla
sig Vinnuvemdarhópinn og segjast
vilja kanna vinnuálag, óheilnæm
starfsskilyrði, mengun á vinnustað og
streitu: með öðrum orðum samhengi
aldurs, vinnuálags og vinnuslits.
Köstnaður við könnunina er
áætlaður 400 þús. krónur. Áherzla
verður lögð á að vinna af krafti úr
gögnunum þannig að lokaniðurstöður
Iiggi fyrir ekki siðar en 9 mánuðum
eftir að tölvuvinnsla hefst. Niðurstöður
forvinnslu könnunarinnar verða gefnar
út í bæklingsformi en heiidarniður-
stöðurnar síðar í bók.
Gylfi Páll Hersir jarðeðlisfræðingur,
einn úr Vinnuverndarhópnum, sagði i
samtali við Dagblaðið að útfylltir
spurningalistar væm þegar farnir að
berast frá þeim er fengu þá senda.
Hann beindi þeirri áskorun til hinna, er
ekki hafa sent sina lista, aö gera þaö
hið fyrsta til að tilgangi könnunarinnar
væri náð. Hann vildi líka, að gefnu til-
efni, taka sérstaklega fram að fullkom-
in nafnleynd rikti í gerð könnunar-
innar. - ARH
Sinueldar og reykjarbólstrar huldu Suðurland
Suöurlandsundirlendið var nánast
„logandi” af sinueldum fyrir helgi.
Voru stórir reykjarbólstrar víða og á
milli huldi reykur útsýni með jörðu. Á
slíkum sinueldadögum er oft torvelt
yfirferðar um vegi á stórum köflum.
Litlu munaði að stórtjón yrði af eld-
um sem brunnu í sveitum á föstudag.
Þannig tókst á síðustu stundu að forða
því að eldur kæmist í hlöðu að Laugar-
dælum er verið var að brenna sinu eða
rusli.
Krakkar á Selfossi smituðust af
reykjarbólstrunum í fjarska, tóku að
kveikja í sinu í grasköntum og þurftu
lögregla og slökkvilið til að koma er
slíkir eldar bárust inn á lóðir við hús.
- A.St.
4C
Slökkviliðið í Reykjavik hefur orðið að
sinna sinubrunum þegar þeir magnast
um of og lögregla þarf viða að taka til
hendinni. Áldrei verður um of varað
við þvi að fara með gát þegar sina er
brennd.
DB-mynd S.
KLÆÐIN SKULU STÁSSLEG
' *
Um sýningu Textflfélags-
ins íListasafni Alþýðu
Það þarf varla að hafa mörg orð
um hinn mikla uppgang alls kyns vef-
lista á ísiandi undanfarinn áratug.
Um hann vitnar meðlimafjöldi
'extílfélagsins (er ekki einfaldlega
ægt að kalla féiagið Veflist?) sem
efur innan sinna vébanda 29 manns,
•tal sýningar heima og erlendis og
kki síst sú fjölbreytni og þroski sem
greina má í verkum þeirra sem orðnir
eru sjóaðir í greininni. Listafólk á
borð viö Ásgerði Búadóttur,
Guðrúnu Gunnarsdóttur, Hildi
Hákonardóttur og fleiri getur kinn-
roðalaust tekið sér stöðu við hlið
helstu veflistarmanna á Norðurlönd-
um.
Því er ekki nema sjálfsögð kurteisi
að fagna annarri félagssýningu
Textílfélagsins (stofnað 1974) sem
væntanlega stendur enn yfir i hinum
glæsilega sýningarsal Listasafns al-
þýðu við Grensásveg.
Hið íslenska
í veftunum
Þar sýna 22 veflistarkonur 64 verk:
ullarvefnað, tauþrykk, myndvefnað,
fatahönnun, prjón og skúlptúra og
sýningunni fylgir falleg skrá á þrem
tungum sem jafnframt er upplýsinga-
rit um meðlimi félagsins.
Menn gera stundum að gamni sinu
aö Iýsa heildaráhrifum þeim sem þeir
veröa fyrir af samsýningum sem þess-
ari, einkum og sérílagi ef í hlut á
harður kjarni listafólks í einhverri
grein. Sjálfur ætti ég i stökustu vand-
ræöum væri mér uppálagt að hafa
upp á þjóðlegum einkennum verk-
anna á þessari sýningu, hinu islenska
í veftunum, og út frá stílfræðilegu
sjónarmiði er ég lika efins um að
hægt sé að skoða hana í einhvers
konar norrænu samhengi. Ef eitt-
hvað er, er sýningin býsna alþjóðleg,
enda hjó ég eftir því að listakonurnar
eru ekki aöeins menntaöar í Svíþjóð,
Noregi, Danmörku og Finnlandi,
heldur einnig í Skotlandi, á Spáni, i
Kanada og Mexíkó.
Og ég held að þetta sé heilbrigð
þróun sem ætti að koma í veg fyrir
alla útkjálkamennsku i veflistinni.
Þorbjörg Þórðardóttir — Klettarýnl, handspunnlnn hör & ull.
V
Sigríður Jóhannsdóttir & Leifur Breiöfjörð — Metamorphoses.
(DB-myndir Sig. Þorri)
Hvar er
metnaðurinn?
Annað af þessari sýningu er það að
segja að tæknilega er hún nær óað-
finnanleg. Það sem listakonurnar
takast á hendur leysa þær skamm-
laust. Hins vegar fannst mér þær alls
ekki nógu stórtækar, metnaðarfullar,
nýjungagjarnar, og hér á ég bæði við
höfunda myndverka og klæða.
í stað þess að prófa sig áfram með
ný efni, ný viðhorf, nýjar stærðir og
nota út i ystu æsar snertigildi efnisins
(og kannski læra af austantjalds-
þjóðum) þá er verið að gera róman-
tískar smámyndir, prjóna svolitla
pottaleppa og innramma þá, nostra
við blúndur og pífur. Þar sem einhver
nýsköpun er fyrir hendi, t.d. í verk-
um Guörúnar Marínósdóttur, Rögnu
Róbertsdóttur, Salóme Fannberg,
Sigurlaugar Jóhannesdóttur og Stein-
unnar Pálsdóttur, þar er eins og lista-
konumar gæti sin um of, treysti sér
ekki til að leiöa verk sín til lykta á
lógískan hátt þótt það þýði áhættu-
spil.
Valgerður Erlendsdóttir — Vorhugur, ull
r i
Myndlist
K Á
Ný rómantík
En innan þeirra takmarka sem lista-
konurnar setja sér, má vissulega
njóta handbragðs þeirra. Aðalheiður
Skarphéöinsdóttir er t.d. ný stærð í
tauþrykki og hefur til að bera talsvert
kapp sem vel nýtist. Fast á hæla
henni fylgir Ina Salóme Hallgríms-
dóttir, sömuleiðis ný og bráðefnileg í
greininni.
Gengi vefmynda Ásgerðar Búa-
dóttur fellur varla i bráð, þó hefði ég
viljað sjá fleiri ný og stór verk eftir
hana. Guðrún Gunnarsdóttir gerir
einnig vönduð verk með þeim hætti
sem hún er vön og það er auðvelt að
falla fyrir sjarma og nýrómantík
mynda Hitdar Hákonardóttur. Hin
stranga geómetria í myndum j)eirra
Sigríðar og Leifs Breiðfjörð hvílir
augað, en mundi sennilega hvíla alla
sálarkirnuna ef verkin væru meiri um
sig. Og gjaman vildi ég klæða dætur
mínar 1 föt Sigrúnar Jóhannesdóttur
(Sifu ).
- AI
Steinunn Pálsdóttir ásamt verki sinu
Spegilmynd, úr næloni og kopar.