Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 10
10 /■ DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ1981. "" „Ráoherra segi af sér ef hann fer ekki að vilja Alþingis” — sagði Eyjólfur Konráð Jonsson í umræðum um ítrekaða fyrirspurn um rekstrarlán landbúnaðarins „Hafa verið settar reglur um greiðslu rekstrar- og afurðalána land- búnaðarins í samræmi við ályktun Alþingis frá 22. maí 1979 frá því að fyrirspurn um það mál á þingskj. 57 varsvarað?” Þannig hljóðaði fyrirspurn Eyjólfs Konráðs Jónssonar (S) sem tekin var fyrir í Sam. þingi í gær og varð nánast orsök eldhúsdagsumræðna um hugsanleg stjórnarskrárbrot ráð- herra í meðferð mála og flutningi frumvarpa. Eyjólfur hafði stutta framsögu með málinu og sagði að ef viðskipta- ráðherra hefði ekkert aðhafzt til að framkvæma vilja Alþingis i málinu, bæri honum að viðurkenna mistökin og segja af sér sem ráðherra. Alþingi samþykkti 22. maí 1979 þings- ályktunartillögu um að afurðalán landbúnaðarins skyldu greidd beint til bænda, en ekki til seljenda fram- leiðsluvara bænda. Tómas Árnason viðskiptaráðherra las upp gamla langa greinargerð til rökstuðnings því að jafnvel ófram- kvæmanlegt væri að greiða afurða- lánin beint til bænda. Landbúnaðar- nefndarmenn studdu álit ráðherrans. Margir þingmenn urðu til að benda Tómasi á að aðeins væri um að ræða hvort ráðherra hefði hug og þor til að stjórna eða léti stjórnast af öðrum. ATLI STEINARSSON ' Eyjólfur Konráð: Viðskiptaráðherra ber að viðurkenna mistökin og segja af sér. Var bent á að embættismannakerfið og bankamenn hefðu viijað hafa sama hátt á um afurðalán sjávarút- vegsins og enn gildir um afurðaián landbúnaðar. Þá hefði Matthías Bjamason þáverandi sjávarútvegs- ráðherra barið í borðið og skipað bankavaldi að hafa annan hátt á. Það gerðist síðan með öllu árekstra- og erfiðleikalaust að framleiðendur fengu afurðalánin greidd á sína reikninga. Tómas ráðherra lofaði endur- skoðun mála og Eyjólfur Konráð þakkaði þá viljayfirlýsingu. Inn í umræðuna spunnust fjörugar umræður um stjórnarskrárbrot við lagasetningar í ríkisfrumvörpum, m.a. í hinu nýja stjórnarfrumvarpi um verðlags- og efnahagsmál, og orðaskipti Jónatans Þórmundssonar prófessors og forsætisráðherra á nefndarfundi um það mál. -A.St. Norðmenn sagðir við sama heygarðshornið ískreiðarsölunni: ÍSLENZKIR SKREIÐAR- SALARFUNDUÐUí NÍGERÍU í GÆR —samningahorf ur taldar sæmilegar „Um verð og magn í skreiðarsölu- samningum við Nigeríumenn er naum- ast hægt eða rétt að segja mikið í þessari stöðu. Hitt er vist, að héðan fóru menn með vilja til að ná samningum og töldu vist, að á móti þeim væri tekið með sama hugarfari”, sagði Valgerður Björgvinsdóttir, framkvæmdastjóri út- flutningsdeildar Lýsis hf. í viðtali við DB í gær. Hún kvað sendinefnd kaupenda í Nígeríu hafa verið hér á dögunum. Nú væru íslenzkir seljendur og fulltrúi viðskiptaráðuneytisins komnir eða á leið til Nígeriu þar sem þeir hittast ásamt kaupendum í Lagos. „Þegar góður vilji er til samninga frá beggja hálfu, er viss ástæða til bjartsýni, þótt ekkert verði fullyrt frekar á þessu stigi”, sagði Valgerður. Samkvæmt heimildum, sem DB telur áreiðanlegar, hittust þessir fulltrúar íslenzkra seljenda í Lagos í gær: Stefán Gunniaugsson, deildarstjóri i við- skiptaráðuneytinu, Bragi Eiríksson, Skreiðarsamlaginu, Magnús Friðgeirs- son, sjávarafurðadeild Sambandsins, Jón Ármann Héðinsson, Lýsi hf., og Bjarni V. Magnússon, tsienzka umboðssalan hf. Óstaðfestar eru fréttir um, að Norð- menn hafi þegar náð samningum um hámarksverð, sem Seðlabanki Nígeriu getur failizt á. Sé það eitthvað lægra en það verð, sem íslenzkir seljendur hafa gert sér vonir um að fá. -BS. ALLIR LEGGJA HÖND A PLÓGINN Á Eskifirði er mikið fiskirí og kom Votabergið, sem er 130 tonna bátur, með 110 tonn eftir eina lögn. Skipstjóri á Votaberginu er ísak Valdimarsson. Nýlega var skipað út í Goðafoss 6000 kössum af frystum fiski í neytenda- pakkningum á Bandaríkjamarkað. Vegna þess hve mikið hafði borizt af fiski var enginn mannskapur til að skipa út, en þá brá Haukur Björnsson verkstjóri á það ráð að fá 14 unglinga úrGagnfræðaskólanum „lánaða”. Helgi sagði þetta duglegasta hóp sem hann hefði hingað til haft í vinnu. Útskipunin var unnin i akkorði, og fengu unglingarnir 680 kr. í kaup. -Regina, Eskifirði. VASAKLÚTA MEÐ í LEIKHÚSIÐ Leikfélag Eskifjarðar sýnir um þessar mundir gamanleikinn Markólfu eftir Dario Fo, sem í vikunni hlaut Sonning-verðlaunin dönsku. Hafa um 300 manns séð leikinn á Eskifirði og finnst fólki það endurnýjast eftir of- þreytuna sem þjáir fólk eftir mikla vinnu sl. sjö vikur. Leikritið er afar vel leikið og spreng- hlægilegt, svo ég vil ráðleggja leikhús- gestum að hafa marga vasaklúta með sér á leiksýningar. Leikstjóri er Jónína Kristjánsdóttir og leikendur eru sjö. Aðalhlutverkin leika Gunnlaugur Ragnarsson (formaður leikfélagsins) og Jórunn Bjarnadóttir. Aðrir leikarar eru Guðmann Þorvaldsson, Guðmundur Gíslason, Hólmfríður Garðarsdóttir, Jóhanna Smith og Ragnar Grétarsson. Leikritið verður sýnt á Breiðdalsvik á laugardaginn 9. maí, á Fáskrúðsfirði 10. maí, Egilsstöðum 13. maí og Borgarfirði eystra 16. maí. -Regina, Eskifírði Eyjajarlinn kennir frændum vorum sprang Nemendur og kennarar Blaða- mannaskólans í Osló eru hér á ferð til að kynna sér land og þjóð. Á sunnu- dag var hópurinn í Vestmannaeyjum og var Árni Johnsen blaðamaður á Morgunblaðinu leiðsögumaður. Hann sá fulla ástæðu til að kenna frændum vorum sprang og var gerður góður rómur að hæfni Árna í fþróttinni. Þeir hugrökkustu í röðum Norðmanna urðu einnig að prófa sig og á minni myndinni stekkur aðal- fararstjóri hópsins, Anders Helle- bust, fram af sillubrúninni. Hann er reyndar major í norska hernum og slapp frá þessu með sóma. (Ljósm. S.J.) Stjómarkjörið í Heimdalli: „HEIÐARLEG BARÁTTA HVAD SEM METORÐASTRITARAR ÆTLA SÉR” — yfirlýsing varaformannsefnis Gunnlaugur Snædal, viðskiptafræði- nemi, hefur beðið Dagblaðið fyrir birt- ingu á eftirfarandi: „I tilefni af viðtali í Dagblaðinu í gær, 5. maí, við Björn Hermannsson þar sem hann segir m.a. að ég hafi „lýst yfir” að ég myndi gefa kost á mér í stjórn Heimdallar, hvort sem hann eða Árni Sigfússon yrðu kjörnir for- menn, óska ég að eftirfarandi komi fram: ,,Ég er eindreginn stuðningsmaður Áma Sigfússonar í væntanlegum kosningum og tel mig eiga minn þátt í því að hann ákvað að bjóða sig fram. „Yfirlýsingin”, sem Björn Hermannsson hefur eftir mér er hliðrun á staðreyndum. í kokkteilboði hjá fráfarandi formanni Heimdallar, Pétri Rafnssyni, vék Björn sér að mér og spurði hvort ég myndi nokkuð hætta við að fara í stjórn þótt hann yrði formaður en ekki Árni Sigfússon. Vitnaði Björn um menn sem slíkt hefðu gert við svipaðar kringumstæður og sagði ég að slikt myndi ég ekki gera. bjöm virðist draga það i efa að ég sé eitthvert sérstakt varaformannsefni í stjóm Árna Sigfússonar. Hvorki hann né aðrir þurfa að efast um það sbr. viðtal við Árna Sigfússon á sömu síðu í Dagblaðinu. Því miður virðist enn einu sinni ætla að koma til harðrar baráttu um formannskjör í Heimdalli. Yngra fólkið í Heimdalli mun berjast heiðar- lega, hvað svo sem metorðastritarar ætla sér.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.