Dagblaðið - 08.05.1981, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981.
5
Áskrifendahappdrætti síðdegisbiaðanna:
Brot á lögum um
viðskiptahætti
—að mati samkeppnisnef ndar
Útbreiðsluherferðir síðdegisblað-
anna, þar sem áskrifendum er boðið að
taka þátt í happdrættum um stóra
vinninga, brjóta í bága við lög um sam-
keppnishömlur og ólögmæta viðskipta-
hætti. Það er að minnsta kosti álit
manna er sitja i samkeppnisnefnd.
Björgvin Guðmundsson, formaður
nefndarinnar, sagði i morgun að nefnd-
in hefði nýlega fengið umsögn neyt-
endafulltrúa Verðlagsstofnunar um
málið og nefndarmenn lýst þeirri
skoðun sinni að umræddar söluað-
ferðir blaöanna væru ekki lög-
legar.Dagblaðið Vísir er með i gangi
slikt áskrifendahappdrætti, þar sem
dregiö er um bíla og sumarbústað.
Fyrir nokkrum árum voru bæði Dag-
blaðið og Visir með hliðstætt happ-
drætti með bíla „í pottinum”.
„Samkeppnisnefnd kvað ekki upp
beinan úrskurð f málinu,” sagði Björg-
vin. „Hins vegar var það álit okkar að
leita bæri eftir friðsamlegri lausn við
forráðamenn blaðanna og fá þá til að
hætta þessu. Verðlagsstjóri hefur með
höndum að framkvæma þann vilja
nefndarinnar.” -ARH
LJ ÓSMYNDAÞJ ÓNUSTA
KLAPPARSTÍG 16 - SÍMI 14044
Auglýsinga- og iðnaSarljásmyndir.
Barna- og fjölskylduljósmyndir.
Brúðkaups- og fermingarljósmyndir.
Myndir frá Islandi — London — Paris
fyrir útgefendur og til veggskreytinga
Tómas Á. Tómasson, eigandi Tomma-hamborgara, og Guðgeir Leifsson. eigandi
Hjóla og vagna, með vinningsgripinn, reiðhjól. DB-mynd Bjarnleifur.
Verðlagsstofnun
stöðvar happ-
drætti hjá Tomma
—vfsar til laga um ólögmæta viðskipta
hætti
„Jú, það er rétt. Það kom hingað
kona frá Verðlagsstofnun og stöðvaði
happdrættið þar sem það reyndist ólög-
legt. Ég taldi að þar sem engin skuld-
binding fylgdi happdrættinu, þ.e.a.s.
að allir gátu fengið miða hvort sem þeir
keyptu eða ekki, væri þetta i lagi. Svo
reyndist ekki vera svo nú horfi ég bara
á happdrættismiðana fyrir framan mig.
Ekki skil ég hvaða máli það skiptir þó
maður gefi eitt hjól. Ég mátti hins
vegar selja miðana svo framarlega sem
ágóðinn rynni til góðgerðarstarfsemi.
Hvað verður um hjólið veit ég ekki,”
sagði Tómas Á. Tómasson, eigandi
Tomma-hamborgara, í samtali við
blaðamann DB í gær.
Tómas hafði haft happdrætti i gangi
um nokkurt skeið er Verðlagsstofnun
stöövaði það. f boði var reiðhjól auk
hamborgara og gosdrykks. Sigríður
Haraldsdóttir, deildarstjóri hjá Verð-
lagsstofnun, sagði að samkvæmt
lögum væri bannað að örva sölu með
þvi að úthluta vinningum. Hún sagði
að Verðlagsstofnun hefði haft afskipti
af nokkrum verzlunum sem byðu upp á
happdrætti en alltaf hefðu eigendur
lofað aö stöðva happdrættin svo til
frekari aðgeröa heföi ekki verið gripið.
Hins vegar sagði Sigríður að í Dan-
mörku væri beitt háum sektum gegn
happdrættum sem notuð væru til að
örvasölu. -ELA
Alþjóöleg kvikmyndahátíð f Seattle
íBandaríkjunum:
KLAPPAÐ FYRIR
LANDIOG SONUM
— sem er önnur af tveimur myndum frá
Norðurlöndum
Frá Sigurði Jenssyni, fréttaritara DB
i Seattle:
í gærkvöldi var íslenzka kvik-
myndin Land og synir sýnd hér á al-
þjóðlegri kvikmyndahátið sem
stendur yfir allan þennan mánuð.
Aðeins tvær myndir frá Norðurlönd-
um eru á hátiðinni, ein frá Svíþjóö og
Land og synir. Kvikmyndasalurinn
var fullsetinn i gærkvöldi og fékk
myndin frábæra dóma. Gestir klöpp-
uðu ákaft i lok myndarinnar og það
fólk sem ég ræddi við var mjög
ánægt meö hana.
Alls eru sýndar 107 myndir frá 29
löndum á hátiöinni og er íslenzka
myndin ein af fáum sem verða sýndar
tvisvar. Kvikmyndahátiðin er helguð
Ken Russell og eru 15 af myndum
hans sýndar á hátíðinni. Þá má geta
þess að sú mynd sem fékk óskars-
verðlaun sem bezta erlenda mynd
1981, Moskva trúir ekki á tár, verður
sýnd í íslenzka sjónvarpinu í kvöld.
-ELA
Hjúkrunarheimilis
aldraðra í Kópavogi
Háskólabíó
laugardaginn 9. maí kl. 14.30
Dagskrá
Samleikur á tvö pianó
Gísli Magnússon
Halldór Haraldsson
Listdans
Birgitte Heide
Guðrún Pálsdóttir
Ingibjörg Pálsdóttir
Samleikur á flautu og píanó Tvísöngur
Upplestur
Arnar Jónsson, leikari
Einsöngur
Sigurður Björnsson
Undirleikur: Agnes Löve
Manuela Wiesler
Snorri Sigfús Birgisson
Sieglinde Kahlmann
Sigurður Björnsson
Samleikur á selló og pianó
Gunnar Kvaran
Gísli Magnússon
Upplestur
Ævar R. Kvaran, leikari
Kynnir
Gunnar Eyjólfsson, leikari
Gunnar
Ævar
Manuela
Sieglinde
Gunnar
Snorri Sigtús
Forsala aðgöngumiða
verður í Háskólabíói, Bókabúð Lárusar Blöndal, Blómahöllinni í Kópavogi,
Hljóðfærahúsi Reykjavíkur og á skrifstofu Hjúkrunarheimilsins í Hamraborg 1
Hittumst í Háskólabíói, leggjum góðu máli lið
Starfshópur listamanna