Dagblaðið - 08.05.1981, Blaðsíða 14
22,
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 8. MÁÍ 1981.
Spáð er hmgri norðanátt og látt-
skýjuðu á Suður- og Vssturlandl sn
skýjuðu fyrir norðsn, smáál á Austur-
Isndi. Þykknar upp sunnanlands í
nótt
Kkikkan 6 var norðan 1, skýjað og
—2 stig í RsykJavBc; austan 5, látt-
skýjað og —3 sdg á Gufuskálum;
norðaustan 2, léttskýjað og —4 Btig á
Galtarvita; norðnorðaustan 3, skýjað
og —6 stig á Akurayri; norðvastan 3,
skýjað og —5 stlg á Raufarhðfn; norð-
norðaustan 6, ál og —2 stig á Dala-
tanga; norðnorðvestan 3, skýjað og
—1 stig á Hðfn og norðan 7, létt-
skýjað og —2stigá Stórhðfða.
I Þórshðfn var rigning og 6 stig,
skýjað og 10 stig í Kaupmannahðfn,
skýjað og 5 stlg í Osló, haiðrflct og 9
stig í Stokkhólml, skýjað og 10 stlg (
London, skýjað og 11 stlg í Hamborg,
skýjað og 13 stig í París, skýjað og 10
stig í Madrld, skýjað og 10 stlg f
Ussabon og haiörflct og 12 stig í Naw
Haraldur Magnússon, sem lézt 29.
apríl, fæddist 7. ágúst 1926 á Siglu-
firði. Foreldrar hans voru María
Erlendsdóttir og Magnús Jónsson.
Haraldur stundaði sjómennsku allt sitt
líf, síðast var hann á mb. Skagaröst.
Árið 1948 giftist Haraldur Guðbjörgu
Einarsdóttur og áttu þau 4 börn. Ha'nn
verður jarðsunginn í dag, 8. maí, kl.
13.30 frá Fossvogskapellu.
Jón Kristinn Kristjánsson, sem lézt 2.
maí, fæddist 21. júlí 1926 í Hafnar-
firði. Foreldrar hans voru Þóra Guð-
laug Jónsdóttir og Kristján Benedikts-
son. Jón vann í nokkur ár í Vélsmiðju
Hafnarfjarðar en árið 1956 réðst hann
sem bifreiðarstjóri hjá Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli og starfaði þar til
dauðadags. Árið 1947 kvæntist Jón
Rósu Ingibjörgu Jafetsdóttur, áttu þau
6 börn og bjuggu lengst af í Hafnar-
firði. Jón verður jarðsunginn í dag, 8.
maí.
Ólafur Halldór Þorbjörnsson, Stangar-
holti 20, lézt í Borgarspítalanum 6. maí
sl.
Hjörtur Þórðarson frá Hjörsey, Vatns-
nesvegi 21 Keflavík, lézt 6. maí sl.
Friðrik Jóhannesson fyrrverandi toll-
vörður, Hlíðargötu 10 Fáskrúðsfirði,
verður jarðsunginn frá Búðakirkju
laugardaginn 9. maí kl. 15.
Kristrún Friðfinnsdóttir, Þórshöfn
Innri-Njarðvík, lézt í Borgarspítalan-
um 30. apríl sl. Jarðarförin fer fram frá
Innri-Njarðvikurkirkju laugardaginn
9. maikl. 14.
Björgvin Emilsson, Fögrubrekku 1
Kópavogi, lézt af slysförum 5. maí sl.
Sigurður Vilhjálmsson, sem lézt 28.
apríl sl., fæddist 1. apríl 1914 í Nes-
kaupstað. Foreldrar hans voru Kristín
Árnadóttir og Vilhjálmur Stefánsson.
TiSkynnmgar
Vigdis Sigurðardóttir, sem lézt 3. mai
sl., fæddist 21. desember 1920 að öxl í
Húnaþingi. Foreldrar hennar voru
Sigurður Jónsson og Þuríður Sigurðar-
dóttir. Um tvítugt stundaði Vigdís nám
í Kvennaskólanum á Blönduósi en fór
síðan fljótlega til Reykjavíkur og
starfaði þar við ýmis verzlunarstörf.
Árið 1950 giftist hún Steinari Björns-
syni. Dvöldust þau í Danmörku um
tíma en árið 1953 komu þau heim og
settust að í Kópavogi. Árið 1963
fluttust þau til Neskaupstaðar og bjó
Vigdís þar til ársins 1967 er maður
hennar lézt. Fluttist hún þá til Reykja-
víkur og stundaði ýmis verzlunar- og
þjónustustörf. Vigdís og Steinar áttu 5
börn. Vigdís verður jarðsungin frá
Hallgrimskirkju í dag, 8. maí, kl.
13.30.
ftjlKlÍÍ
Kvenfólag
Bústaðakirkju
heldur fund mánudaginn 11. maí nk. kl. 20.30 1
safnaðarheimilinu. Kvenfélag Garðabæjar kemur í
heimsókn.
Umræðufundur um varnar-
og herstöðvarmál á ísafirði
1 tilefni af 30 ára hersetu á íslandi efna herstöðvar-
andstæðingar á ísafirði til fundar laugardaginn 9.
maí kl. 16 í Sjómannastofunni. Frummælendur
verða Ari Trausti Guömundsson, Hallur Páll
Jónsson og vonandi herstöðvarsinni.
Úthlutað úr Minningarsjóði
Barböru
Á póskadag, 19. april, var úthlutað úr Minningar-
sjóði Barböru Moray Ámason, en þann dag heföi
listakonan 'orðið sjötug. Sjóðnum er ætlað að
styrkja myndlistamenn til kynnisferða vegna listar ■
sinnar. Á þessu ári nemur styrkurinn 8000 krónum
og hlaut hann að þessu sinni Guðmundur Benedikts-
son myndhöggvari.
{ sjóðsstjóm em Vífill Magnússon arkitekt, Sig-»
rún Guðjónsdóttir myndlistamaður, formaður Fé-
lags islenzkra myndlistamanna, Þóra Kristjánsdóttir
listfræðingur, listrænn forstjórí Kjarvalsstaða, og
Thor Vilhjálmsson rithöfundur, forseti Bandalags
íslenzkra listamanna.
Sjóðsstjórnin hefur ákveðið að framvegis skuli
sjóðurinn vera kenndur við þau merkishjón bæöi og
heita Minningarsjóður Barböru og Magnúsar Á.
Árnasonar, en Magnús lézt á síðastliðnu sumri, eins
og mönnum er kunnugt.
Ráðgerð er yfirlitssýning á verkum Barböm og
Magnúsar og væri kærkomið að fá upplýsingar um
verk þeirra 1 eigu manna, en þau munu vera viða
dreifð. Þessum upplýsingum má koma til ofan-
greindra i stjórn sjóðsins.
Sigurður stundaði nám i Héraðsskólan-
um að Laugarvatni. Hann lagði sjó-
mennsku fyrir sig. Fyrst reri hann á
bátum og togurum, siðan var hann um
tíma með sína eigin útgerð en lengst af
starfaði hann á netaverkstæði hjá
bróður sínum. Sigurður verður jarð-
sunginn í dag, 8. maí, frá Norðfjarðar-
krikju.
Nokkuð gott fimmtudagskvöld
Á vettvangi er nokkuð gloppóttur
þáttur, eins og við má búast. Þáttur-
inn í gær var alveg sæmilegur, þó er
ég algjörlega ósammála stjórnendum
þáttarins að það sé nauðsynlegt að
vera með svokallað „alþýðuskáld”.
Kveðskapurinn er yfirleitf hrfoð sem
lítið erindi á í útvarp.
Ég hafði mikið gaman af Alfreð,
smásögu eftir Finn Söeborg -sem
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir las. Það
var ekki sízt vegna þess að ég hafði
sjálfur lesið þessa sögu i dönsku les-
hefti i skóla. Það hlýtur að hafa verið
dýrðlegur svipur sem móðir Ibs og
frænka settu upp þegar Alfreð kom í
afmæli Ibs. Sagan var skemmtilega
þýdd og vel lesin. Kom vel í ljós
barnsleg einfeldni Ibs og standandi
vandræði móður Ibs þegar hún sá að
Alfreð var ekki lítill fátækur drengur
heldur róni.
Útvarp frá tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands fmnst mér vera
eina efnið af þessu tagi sem á að vera
í útvarpi. Áilii landsmenn borga
þessa hljómsveit og eiga því rétt á að
heyra hana spila. Á tónleikunum í
gær var flutt Minni Islands eftir Jón
Leifs, stórgott og kraftmikið verk og
Píanókonsert Edvards Grieg, einn al-
skemmtilegasti píanókonsert sem ég
hef heyrt.
Að loknum tónleikunum, sem ég
get þó ekki sleppt án þess að minnast
á frábærar kynningar Jóns Múla sem
gæða tónleika Sinfóníuhljómsveitar-
innar lifi, var flutt fimmtudagsleikrit
útvarpsins, Ræsting
Höfundur leiksins er Erlendur
Jónsson. Ekki minnist ég þess að
hafa heyrt frá honum áður í leikrits-
formi en mér fannst honum bara
takast nokkuð vel. Gamli maðurinn,
vel túlkaður af Val Gíslasyni, fékk
dótturbörn sín í heimsókn þar sem
hann dvaldist á stofnun. Þau sögðu
honum ýmislegt af högum dóttur
hans sem gamla manninum líkaði
ekki alls kostar, og vill hann koma í
veg fyrir að vildarjörð sem hann á
lendi í höndum dóttur hans. Það er
hægara sagt en gert, þvi konan sem
hreinsar hjá honum vill ekki þiggja
jörðina að gjöf, því hún er hrædd um
að hún þurfi að gera hitt með gamla
manninum. 1 lokin leysist leikurinn
hálfgert upp, sem var ágætt, því þetta
var vandræðamál.
Félagsmál og vinna er alveg bráð-
nauðsynlegur þáttur en heldur er ég
hræddur um að hann nái ekki nógu
vel til þeirra sem á hann þyrftu að
hlusta. Væri ekki ráð að flytja þátt-
inn fyrr á kvöldin?
Þáttur Jóns Ásgeirssonar um
hjálparstarf Rauða krossins byrjaði
ágætlega en ég sofnaði út frá honum.
Er ekki að efa að Rauði krossinn
vinnur þarft starf víða í heiminum en
miklu finnst mér það gæfulegri
stefna að þjálfa fólk og senda á stað-
inn en senda „bara” peninga. Ef
einhver varanleg bót á að verða á því
hörmungarástandi sem víða ríkir er
það fyrst og fremst þekking sem
getur bætt úr því.
Sveitakeppni í skák
milli Reykjavíkur og
„Landsins"
Um helgina efnir Skáksamband Islands til sveita-
keppni í skák milli Reykjavíkur og „Landsins”.
Hvor sveit verður skipuð 25 skákmeisturum ásamt
varamönnum og mætast þær i tvígang, fyrst á laug-
ardaginn 9. maí og síðan aftur á sunnudaginn. Sú
sveitin hlýtur sigur sem fær fleiri vinninga samanlagt
úr báðum umferðunum.
Keppnin fer fram á Hótel Esju, 2. hæð, og hefst
fyrri umferðin kl. 14 á laugardaginn.
Sveit Reykjavikur verður valin af taflfélögunum i
Reykjavik en sveit ..Landsins” af nefnd sem Taflfé-
lag Kópavogs, Skákfélag Hafnarfjarðar og Taflfélag
Seltjamarness hafa skipað. Búast má við skemmti-
legri og tvisýnni keppni milli sveitanna því báðar
hafa á að skipa sterkum skákmönnum. Skáksam-
bandið stefnir að því að keppni þessi verði árlegur
viðburður.
Sumardvöl sykursjúkra
Siöastliðið sumar efndu Samtök sykursjúkra i
Reykjavik til sumardvalar fyrir sykursjúk börn og
unglinga. Var það i fyrsta skipti sem til sllkrar starf-
semi var stofnaö.
Árangur þessarar sumardvalar var mjög góöur og
þvi verður nú i sumar aftur efnt til sumardvalar. Að
þessu sinni verða sumarbúðirnar að Reykholti í
Borgarfirði, þar sem er hin ákjósanlegasta aðstaða
eins og kunnugt er. Verður þetta frá 23. til 29. júní.
Eins og sl. sumar verður starfsemin rekin undir
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
Nr. 86 — 7. maf 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarlkjadollar 8,787 8,806 7,486
1 Sterlingspund 14,329 14,367 16,804
1 Kanadadollar 5,664 5,669 6,238
1 Dönsk króna 0,9608 0,9633 1,0486
1 Norskkróna 1,2141 1,2174 1,3391
1 Sœnskkróna 1,3986 1,4022 1,6424
1 Hnnsktmark 1,6921 1,6963 1,7669
1 Franskur franki 1,2648 1,2682 1,3960
1 Belg. franki 0,1839 0,1844 0,2028
1 Svissn. franki 3,2843 3,2930 3,6223
1 Hollonzk florijia 2,7009 2,7081 2*9789
1 V.-þýzktmark 2^963 3,0042 3,3046
1 ítölsk llra 0,00601 0,00603 0,00663
1 Austurr. Sch. 0,4238 0,4249 0,4674
1 Portug. Escudo 0,1127 0,1130 0,1243
1 Spónskur posoti 0,0750 0,0752 0,0829
1 Japanskt yon 0,03123 0,03131 0,03444
1 frskt Dund 10,964 10,993 12,092
SDR (sórstök dráttarréttindi) 8/1 8,0360 8,0663
Sfemsvari vegna gengisskráningar 22190. 1
í
GÆRKVÖLDI
stjórn sérfróðra manna hvað viðvíkur sérþörfum
barnanna um hjúkrun, mataræði og annaö. öllum
sykursjúkum bömum og unglingum á landinu er
boöin þátttaka og verður kostnaði haldið i lágmarki
þar sem Samtök sykursjúkra í Reykjavík munu með
beinum fjárframlögum bera uppi hluta af dvalar-
kostnaðinum.
Nánari upplýsingar veita: Steinunn Þorsteins-
dóttir, sími 21779, Snorri Snorrason, simi 75129,
Þór Þorsteinsson, sími 86166 (36904), örlygur
Þórðarson, sími 16811 (38829).
Eru aðstandendur sykursjúkra bama og unglinga
hvattir til að hafa samband við þau hið allra fyrsta.
FrϚslufundur
f blikksmíðaiöninni
Félög blikksmiða og blikksmiðjueigenda efna til
sameiginlegs fræöslufundar að Hótel Esju þriðju-
daginn 12. mai kl. 20 um byggingareglugerðina,
námsskrá og „Reglugerð um sveinspróf i blikk-
smiði”.
A fundinum verða flutt fjögur stutt framsögu-
erindi en að öðru leyti sitja framsögumenn fyrir
svörum og er það markmið fundarins að ná sem bezt
til þeirra manna í atvinnulifinu sem fundinn sækja
og gefa þeim kost á aö koma með spurningar um
það sem þeir vilja og þurfa að fá svör við.
Framsögumenn verða: Gunnar Sigurðsson bygg-
ingafulltrúi er kynnir félagslega hlið byggingareglu-
gerðarinnar, Friðrik S. Kristinsson byggingatækni-
fræðingur er kynnir tæknihlið reglugerðarinnar,
Þuríður Magnúsdóttir fulltrúi Iönfræðsluráðs er
kynnir námsskrár í blikksmíði og Einar Þorsteins-
son byggingatæknifræðingur er kynnir reglugerð um
sveinspróf í blikksmiði. Einnig mæta til bygginga-
fulltrúaembættinu i Reykjavik Hallgrímur Sandholt
deildarverkfræöingur og Ragnar Gunnarsson tækni-
fræðingur. Fundarstjóri verður Kristján Ottósson
blikksmiður og ritari Sveinn Á. Sæmundsson blikk-
smiðameistari.
Blikksmiðir og nemar eru sérstaklega hvattir til að
mæta á fræðslu(undinn.
Ýmislegt
Veitt úr Menningar-
sjóði Þjóðleikhússins
Á afmælisdegi Þjóðleikhússins þann 20. apríl sl. var
venju samkvæmt úthlutað viðurkenningum úr
Menningarsjóði Þjóðleikhússins og hlutu þær að
þessu sinni Carl BiUich og Guðrún Þ. Stephensen.
Carl BiUich hefur starfað við Þjóðheikhúsið 1 á
þriðja tug ára sem hljómsveitarstjóri, kórstjórnandi
og söngæfingastjómandi. Guörún Þ. Stephensen
hefur verið fastráðin leikari við Þjóðleikhúsið frá ár-
inu 1974 og hefur þegar leikið hátt á þriðja tug hlut-
verka í sýningum hússins. Nú I vetur hefur hún t.d.
leikið Steinvöru í Smalastúlkunni og útlögunum eftir
Þorgeir Þorgeirsson og Sigurð Guðmundsson,
Geske könnusteypisfrú í Könnusteypinum pólitiska
eftir Ludvig Holberg og nú siðast frú Bláza í tékk-
nesku einþáttungunum Haustið í Prag sem nú er
verið að sjma á Litla sviði leikhússins.
Afhendingin fór fram að aflokinni sýningu á La
Bohéme.
GENGIO