Dagblaðið - 08.05.1981, Síða 24
DB ræðir við herforingja í Norfolk og Washington:
„Svekktur yfir að missa
AWACS-þoturnar frá íslandi”
„Ég var mjög svekktur yfir að
missa hinar fuúkomnu AWACS-þot-
ur frá Islandi. Vegna ástandsins i
Póllandi voru þær færðar annað,.”
sagði Train flotaforingi, einn æðsti
herforingi Nato, i viðtali við blaða-
mann DB og nokkra aðra evrópska
blaðamenn i Norfolk fyrir nokkrum
dögum.
Þessar flugvélar voru i staðinn sett-
ar niður á flugvelli í Vestur-Þýzka-
landi eftir að PóUandsmálið blossaði
upp. t staðinn komu til Islands ófull-
komnari flugvélar, svokaliaðar E2C-
vélar.
,,Ég féll á kné til að reyna að
hindra þetta,” sagði Train.
Herforingjar i Norfolk og Wash-
ington lögðu áherzlu á að „Island og
Azoreyjar” lékju lykUhlutverk i
vörnum Atlantshafsbandalagsins. I
striði yrði Nato að geta varizt fram-
rás sovézka kafbátaflotans frá Mur-
mansk-svæðinu til suðurs beggja
vegna íslands. Varnir Nato væru i
þessu tiUiti of veikar sem stendur.
Þessar varnir, einkum flotann, yrði
Nato að byggja upp hið skjótasta.
Bowman herforingi sagöi i viðtaU
við þessa blaðamenn i Washington,
að Sovétrikin hefðu siðustu ár náð
yfirburðum á flestum sviðum her-
mála, nema hvað jafnræði væri i
flugvélastyrk. Raunveruleg aukning
Nato tU hermáia yrði á næstu árum
að nema 3—4 prósentum til að halda
i horfinu gagnvart Rússum.
-HH.
Train flotaforingi: veiktar varnir ís-
landssvæðisins.
Séð yflr fundarsalinn i Breiðholtlnu.
40—50 manns mættu á staðinn, fæst af
þeim fólk sem sótti sams konar fund
hjá Gunnari Thoroddsen á sama stað
fyrir skömmu. Hins vegar var fritt
pepsi i boði á báðum fundum og
fundarstjóri ýtti óspart undlr linnulaust
pepsiþamb! Á innfelldu myndinni eru
Geir Hallgrimsson, Ásgeir Hannes
Eiriksson og Dóra Gissurardóttir, þau
síðarnefndu ritarar fundarins.
DB-myndir Einar Ólason.
Geir Hallgrímsson um stef nu ríkisst jórnarinnar:
„Forskrift að atvinnuleysi”
— „það á að svara klof ningsmönnum á því máli sem þeir skilja”
„Stefna ríkisstjórnarinnar er for-
skrift að atvinnuleysi. Með verðlags-
höftum er afkomu fyrirtækjanna
stjórnað ofan frá og þau þannig upp á
náð ríkisvaldsins komin. Annaðhvort
stöðvast fyrirtækin og fólki verður sagt
upp eða ríkisstjórnin gefst upp og verð-
hækkanastíflan brestur. Lausn okkar
sjálfstæðismanna á vandanum er frjáls
samkeppni, frjáls verðmyndun.”
Þannig fórust Geir Hallgrimssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins, efnis-
lega orð á fundi með sjálfstæðismönn-
um I Breiðholti i gærkvöldi. Fundinn
sóttu 40—50 manns, talsvert færri en
hlýddu á boðskap forsætisráðherra á
sama stað fyrir fáeinum vikum.
Geir lagði út af þeirri fullyrðingu í
ræðunni að nú byggju tsiendingar við
„stöðnun í góðæri”. Á sama tíma og
möguleikar væru til betra lífs vegna
aukins sjávarafla, minnkaði þjóðar-
framleiðsla. í orkumálum ríkti líka
stöðnun:
„Hjörleifur Guttormsson er á góðri
leið með að koma í veg fyrir Fljótsdals-
virkjun með tómlæti sinu í stóriðjumál-
um á Austurlandi. Hann hefur jafnvel
spillt fyrir því að laða erlend stórfyrir-
tæki að með klaufalegum framgangi
sinum gagnvart Álverinu í Straumsvík.
Og Páll Pétursson virðist á góðri leið
með að koma í veg fyrir Blönduvirkjun
með þvi að torvelda samninga við land-
eigendur.” Geir sagði sjálfstæðismenn
vilja ákveða alla þrjá virkjunarkostina:
Blöndu, Fljótsdal og Sultartanga. í til-
lögu þeirra þar að lútandi á þingi væru
verkefnin ekki sett í forgangsröð en
hægt væri að vinna að tveimur stór-
virkjunum í einu. Virkjanafram-
kvæmdir þyrftu þó að haldast í hendur
við uppbyggingu orkufreks iðnaðar.”
Formaður Sjálfstæðisflokksins benti
oft á sterka stöðu Alþýðubandalagsins
í ríkisstjórninni, bæði í efnahags- og
utanrikismálum. Framsóknarflokkur-
inn 'léti sér vel Iíka forræði Alþýðu-
bandalags „á meðan þeir geta tryggt
hagsmuni Sambandsins.” Um sjálf-
stæðismennina í rikisstjórninni hafði
formaðurinn ekki mörg bein orð. Sagði
að þeir færu „villir vegar”, en myndu
hins vegar uppskera virðingu og
„styrkja stöðu sina innan Sjálfstæðis-
flokksins ef þeir sprengdu ríkisstjóm-
ina eins og séra Gunnar Gislason í
Glaumbæ ráölagði Pálma Jónssyni.”
Margir ræðumenn lýstu stuðningi
við Geir, beint eða óbeint. Enginn
talaði máli ríkisstjórnarinnar.
„Það á að svara klofningsmönnun-
um á því máli sem þeir skilja. Á ísafirði
á Geir Hallgrimsson fylgi svo að segja
hvers einasta sjálfstæðismanns,” sagði
Ólafur Þórðarson,- sem sagðist ný-
fluttur til höfuðborgarinnar frá ísa-
firði.
Annar ræðumaður, Steingrímur að
nafni, kvaðst „vona heitt og innilega
að Albert Guðmundsson tæki höndum
samanvið okkuráný.” -ARH
frfáJst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 8. MAÍ1981.
Lögin um
fóðurbætis-
skattinn
andstæð
stjórnar-
skránni
— eins og mörg önnur
lög, segir
lagaprófessorinn
Loks í gær fékkst staðfesting í Neðri
deild Alþingis á bráðabirgðalögum
þeim sem ríkisstjórnin setti 23. júní í
fyrra og fjölluðu um fóðurbætisskatt,
sem strax varð umdeildur og óvinsæll.
Stefán Valgeirsson form. landbúnað-
arnefndar kvað mikla misklíð um
málið í nefndinni. Lýsti hann þvi að
prófessor Jónatan Þórmundsson hefði
látið svo ummæit á fundum með
nefndinni að hann teldi bráðabirgða-
lögin ekki samrýmast 40. grein stjóm-
arskrárinnar. t sama farveg félli áiits-
gerð Helga V. Jónssonar sem gerð var
fyrir Verzlunarráð tslands. Prófessor
Jónatan teldi þó óliklegt að lagagreinin
yrði ógilt fyrir dómi því íslenzkir dóm-
stólar væru linir í þessum efnum.
Benda mætti og á mörg önnur lög þar
sem samsvarandi ákvæði órkuðu tví-
mælis.
í umræðum um máiið vakti Steinþór
Gestsson athygli á að þingmenn væru
eiðsvarnir til að hlýða stjórnarskrá ís-
lands. Þeir ættu því ekki að láta hafa
sig til þess að samþykkja lög sem menn
greindi á um að samrýmdust stjórnar-
skrá.
Landbúnaðamefnd breytti bráða-
birgðalögunum vegna ofangreindra tvi-
mæla og era lögin nú I þeim farvegi
sem meiri hluti nefndarinnar mótaði
þeim. Þannig voru þau í gær afgreidd
til Ed. með 23:0 atkvæðum.
Bráðabirgðalög sem sett voru í
september vora einnig til umræðu í Nd.
í gær. Þar greinir þingmenn veralega á.
En einnig þau lög voru afgreidd til Ed.
með 23 atkv. gegn engu.
-A.St.
Brotizt inn í
10 geymsl-
urífjöl-
býlishúsi
Tvö þjófnaðarmái era nú ný í með-
ferð rannsóknarlögregiu rikisins. Var í
gærkvöldi brotizt inn i tíu geymslur í
Kríuhólum 10. Ekki er ljóst ennþá að
hverju var helzt leitað né hvað tekið var
en mikið var rótað til.
Þá var brotizt inn í Sindrastál við
Sigtún. Náðist annar innbrotsmanna
nálægt innbrotsstað. Var hann undir
áhrifum áfengis. Félaga hans i innbrot-
inu er nú leitað.
- A.St.