Dagblaðið - 05.11.1981, Page 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1981.
Gott er að skríða undir sæng í vetrarkulda og myrkri
v
Hreinsun á dúnsæng kostar
jafnmikið og ný sæng úr gerviefni
Torgið
í Torginu og öðrum verzlunum
Sambandsins (þar á meðal
kaupfélögunum út um land) voru til
sængur úr draloni á 385 krónur. Þar
fengust einnig svonefnd kembugarns-
teppi, ullarteppi, frá Sambandinu,
sem ég veit að margir hafa keypt í
stað sængur og verið ánægðir með.
Þau kosta 305 krónur.
Hagkaup
Að síðustu skal svo nefna Hag-
kaup þó ugglaust séu margar aðrar
búðir á landinu sem selja sængur. í
Hagkaupum voru til tvær gerðir af
sængum frá Magna. Annars vegar
ullarsængur og hins vegar diolin
sængur og kosta hvorar tveggja 395
krónur.
Hreinsun
Það eru ekki allar hreinsanir sem
taka að sér að hreinsa sængur úr
gerviefnum eða ull. Mér var einna
helzt bent á Hraðhreinsunina í Súðar-
vogi. Þar eru teknar 75 krónur fyrir
að hreinsa sæng. Munar þar ögn á
því sem kostar að láta hreinsa-
dúnsæng, enda ekki nærri þvi eins
mikiðverk. -DS.
3-
Gerviefni i sængur eru margskonar.,
Oft má hreinlega þvo sængina með öllu
saman f þvottavél, og ef ekki, þá má
þurrhreinsa hana. DB-myndir Bj.Bj.
Núna þegar myrkrið og kuldinn
eru bæði komin til að vera, langar
margan manninn helzt til þess að lúra
daglangt uppi í rúmi og undir sæng.
Sængin manns öðlast einhvern
veginn annað og meira gildi á veturna
en á sumrin. Þó að svo þyrfti ekki að
vera eins og við kyndum húsin okkar.
Okkur lék hugur á því að komast að
því hvað fengist af sængum í bænum,
hvað þær kostuðu og hvað kostaði að
hreinsa þær.
Úrvalið var fjölbreytt og verðið
einnig. Sem dæmi má nefna að fyrir
það sem kostar að hreinsa dúnsæng,
getur maður keypt sér sæng úr ullar-
flóka eða gerviefni. Hvort þær
sængur eru eins góðar skal ekki
dæmt um. Þeir sem eiga dúnsængur
vilja oft ekki annað og sama má segja
um þá sem eiga gerviefnis- eða ullar-
sængur. Það er ekki alltaf það sama
sem fólk er að leita að. Ullar-
sængurnar eru yfirleitt þungar og
auðvitað hlýjar. Gerviefnið og
dúnninn er hins vegar létt, en ekki
síður hlýtt. Kostur og galli dúnsins,
fram yfir gerviefnið, er hins vegar í
rauninni sá sami. Dúnninn er
raunveruleg náttúruleg afurð og sem
slík auðvitað mýkri, rafmagnast
minna og er loftkenndari. En
dúnninn slitnar líka fyrr ef ekki er
vel með hann farið og hann er ekki
hægt að þvo í þvottavél eða senda í
þurrhreinsun eins og gerviefnið. Það
er því dýrt að láta hreinsa hann.
Gert er ráð fyrir að með venjulegri
notkun endist ver utan um sængina í
ein 10 ár. Ef ekkert kemur fyrir að
segja og eigandinn liggur ekki því
meira í rúminu. Dúnsængur eru
yfirleitt ekki hreinsaðar oftar en
skipt er um verið þannig að þegar á
heildina er litið er kostnaðurinn
kannski ekki mikill. Ullar- og
gerviefnissængur eru hins vegar
hreinsaðar eftir þörfum og líklega
mun oftar en dúnsængur. Enda ekki
nærri því eins <iýrt. Svo er náttúrlega
um að gera aö viðra sængurnar úti
eins oft og unnt er, þó ekki sé færi á
öðru en að dusta þær rétt út um
dyrnar. En lítum aðeins nánar á
verðið.
Fatabúðin
Óhætt er að segja að Fatabúðin
var með mesta úrvalið af sængunum
af þeim verzlunum, sem við höfðum
samband við. Þar fengust sængur úr
gerviefnum, jafnt sem dún, á
verðbilinu frá 350 krónum og upp í
5000 krónur. Verð á fullorðins
sængum er eftirfarandi: Draion 525,
gæsadúnn 595, andadúnn 850,
svanadúnn 1050 og æðardúnn um 5
þúsund krónur. Æðardúnsængur
eru hvergi, þar sem við höfð .m
samband, til á lager því lítið er keypt
af þeim og erfitt að liggja með svo
Dúnsængur eru, ef vel er farið með þær, lífstlðareign. En þær krefjast góðrar
meðferðar. Til dæmis er aldrei sniðugt að reykja liggjandi i rúminu og ef legið er
undir dúnsæng getur það kostað bæði hana og eigandann lífið.
dýra vöru. En þær fást með stuttum
afgreiðslufresti. í eitt kíló af æðar-
dúni þarf dún úr 60—80 hreiðrum
þannig að ekki er furða þó þær séu
dýrar. Um kíló er í hverri sæng. Til er
efni í ver utan um sængina, ef fólk
leggur í það að sauma það sjálft.
Kostar metrinn af því 48—80 krónur.
Einstaka sinnum fást einnig saumuð
veriFatabúðinni.
Vörumarkaflurinn
í Vörumarkaðnum var til ein gerð
af sængum úr gerviefninu decon
holyfill sem afgreiðslustúlkan sagöi
mér að væri sáralítill munur á og
dúni. Fullorðins sæng úr tvöföldu
slíku efni kostar 516 krónur. Þvo má
sængina með öllu saman í þvottavél.
Til eru stök ver utan um sængur og
kosta þau 282 krónur.
Dún- og fiflur-
hreinsunin
í Dún- og fiðurhreinsuninni
fengust eingöngu dúnsængur.
Svanadúnsæng kostar þar 1050 fyrir
fullorðna, gæsadúnsæng 645 og
æðardúnsæng um 6 þúsund krónur.
Hreinsun á sæng og nýtt ver, sem
sett er á um leið, kostar 320 krónur,
þar af kostar hreinsunin, ef hún er
keypt ein, 70 krónur og verið 270 ef
það er keypt án þess að hreinsun
fylgi með. Mér var sagt að ef vandaður
dúnn væri í sænginni og vel með
hana farið ætti hún ekki að rýrna
neitt með tímanum, þannig að ekki á
aðvera þörf á að bæta i hana dúni.
Því er um að gera að drífa sig með
sængina strax og hún fer að gefa sig.
Sængurfatagerðin
í Sængurfatagerðinni á Baldurs-
götu, var, eins og í Fatabúðinni, til
mikið úrval af sængum. íslenzkar
ullarsængur (frá fyrirtækinu Magna)
kosta þar 350 krónur, sængur úr
gerviefninu diolin kosta 403, gæsa-
dúnsængur 595 og andadúnsængur
822,50. í báðum þeim síðasttöldu er
1,150 kg af dúni. Svanadúnsængur
eru til með tveim grófleikum af dúni.
Þær, úr finni dúninum, kosta 1112
krónur og þær úr grófari dúninum
973,50 krónur. í þeim er 1 kg af dúni.
Æðardúnsæng kostar um 5800
krónur. Sængurfatagerðin hreinsar
einnig sængur. Það kostar með veri
320 krónur. Hreinsun án nýs vers
kostar 50 krónur.
Uppíýsingaseðíll
til samanburóar á heimiliskostnaði!
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamltga sendið nkkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar |
fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Sundurliðun á matardálknum
Margrét skrifar:
Hér kemur þá septembereyðslan.
Ég er nokkuð ánægð með þetta, 876
krónur á mann í mat og hreinlætis-
vörur. Það er líka sparað eins og
hægt er, peningar til matarkaupa
voru í minnalagi.
Nú, þegar mánuðurinn er upp
gerður, get ég samt ekki alveg áttað
mig á því hvar dregið hefur verið úr
eyðslu. í því sambandi kæmi
sundurliðun í heimilisbókinni að
góðum notum. Á ég þar við sundur-
liðun á matvælum í stórum dráttum
t.d.
1. mjólkurvörur
2. smjörogostar
3. kjötvörur
4. fiskur
5. grænmeti o.s.frv.
10—12 línur væri nóg. Aftur á
móti mætti minnka plássið á kostn-
Raddir
neytenda
aðarliðir undir sérstöku eftirliti. Sá
hluti síðunnar hefur reynzt mér illa.
Við dálkinn annað skrifa ég alltaf
fyrir framan hverja upphæð hvað er
hvað þannig að ég held að það muni
ekki svo miklu hvort maður
sundurliðar matvöru um leið og heim
er komið eins og að skrifa heildar-
upphæð.
Liðurinn annað var hár í þessum
mánuði og kemur til með að vera það
áfram. Sundurliðun er svipuð og
siðast þannig að ég er ekkert að
tíunda það frekar núna.
Svar:
Þessi hugmynd um sundurliðun á
matardálknum hefur ekki borizt
okkur fyrr, það veit ég. Satt bezt að
segja hygg ég að mörgum fyndist hún
erfið í framkvæmd, þvi þegar komið
er með pokana heim úr kjörbúðinni
eru fæstir nógu glöggir til að sjá
hvaða verð á strimlinum á við hvaða
hlut.
Maður sér iðulega, t.d. á
föstudögum, fólk að kaupa fullar,
stórar innkaupakörfur og þá er
sannarlega erfitt að fylgjast með því
hvað hver hlutur kostar. En auðvitað
er það nauðsynlegt fyrir þá sem ætla
virkilega að spara. Hugmynd þinni,
Margrét, verður komið á framfæri
við þá sem eru að vinna þókina. En
ég er hálfhrædd um að hún komi of
seint til þess að geta verið með í
næstubók. -DS.
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks____
Kostnaður í októbermánuði 1981
i Matur og hreinlætisvörur kr._
i Annaö ' kr.___
| Alls kr...
\W YIKAX