Dagblaðið - 05.11.1981, Síða 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1981.
Sjávarútvegur að sligast undan fjármagnskostnaði en eigið f é
Seðlabanka nær þrefald-
aðist milli 1979 og ’80
— reikningar þriggja f irma í sjávarútvegi óhæf ir til
viðmiðunar á úttekt á taprekstri skipa
„Það er ekki nýtt að atvinnurekst-
ur á íslandi eigi í vanda og þessi
vandi og erfiðleikar hafa samkvæmt
skýrslum oft verið meiri en nú er,”
sagði Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra er hann svaraði gíf-
uryrtri ræðu Sverris Hermannssonar
(S) um vanda atvinnuveganna og úr-
ræðaleysi rikisstjórnarinnar i vanda-
málum þeirra. „Meðalstaða atvinnu-
veganna var þolanleg um sl. ára-
mót,” sagði Steingrímur, en hún
hefur „raskazt og spillzt á þessu ári.
Útgeröin er rekin með 0,7% tapi
þegar á heildina er litið. Ef vandinn
nú er borinn saman við vanda fyrri
ára þá er hann nú í betra falli,” sagði
ráðherrann.
Sverrir sagði í átöluræðu sinni að
„ríkisstjórnin reyndi að gera sig
ósýnilega og vefa áfram sama blekk-
ingarvefinn og ofinn hefur verið frá
því hún var stofnuð. Ótta vekti að
vefurinn nú væri ofinn af ráðnum
hug því ráðherrar vissu betur um
ástand mála en þeir viðurkenndu.
Má óttast að þeim hafi tekizt að
blekkja sjálfa sig, þeir trúi lyginni,”
sagði Sverrir.
Sverrir ræddi síðan atvinnuástand-
ið og nefndi í þeim kafla ræðu sinnar
Keflavík, Bíldudal, Patreksfjörð og
Skagafjörð þar sem fiskvinnsla væri
að stöðvast eða þegar stöðvuð.
Þá ræddi hann um skýrslu um út-
tekt á afkomu 19 togara. Kvaðst
hann trúnaðar vegna ekki geta getið
dæma úr skýrslunni en skoraði á ráð-
herra að birta niðurstöður hennar.
Loks ræddi Sverrir sérstaklega vaxta-
málin og þann bagga sem þau væru
útgérðinni. Bauð hann fram aðstoð
stjórnarandstöðu við lausn vandans
því erfiðara yrði að láta hjólin snúast
Sverrír telur að atvinnurekstur á ts-
landi sé kominn í eða um það að
komast í kalda kol.
á ný ef þau stöðvuðust alveg, eins og
nú horfi.
Steingrímur ráðherra þakkaði um-
hyggju Sverris og tilboð um aðstoð
en kvað þingmanninn Sverri Her-
mannsson eiga ýmisleguvantalað við
kommissarinn Sverri Hermannsson.
Steingrímur kvað vanda atvinnu-
veganna og þá einkum sjávarútvegs
tvíþættan, annars vegar rekstrar-
grundvöll og hins vegar sérstök
vandamál.
Á árinu 1980 hefðu minni háttar
ráðstafanir verið gerðar til að laga
stöðu þessarar atvinnugreinar. Mest
hefði munað um 52% gengissig.
Síðan hefðu afurðalán verið hækkuð
í 85%. Felld hefðu verið niður að
flutningsgjöld á mikilvægum mála-
flokkum og 3,6 milljörðum gkr. af
gengishagnaði Seðlabanka verið
varið til endurgreiðslu til atvinnu-
vega.
Skuldum útgerða hefði verið breytt
hjá sjóðum, t.d. varið 65 milljónum
nýkr. til lækkunar skulda hjá Fisk-
veiðasjóði. 62 lán hefðu verið veitt og
37 aðilar væru nú í athugun en stæði
ágögnum frá þessum aðilum.
Steingrímur sagði að með sama
aflamagni og á sl. ári væri spáð 3,2%
meðaltapi í sjávarútvegi á þessu ári:"
Hann kvað fjármagnskostnað
skipa mjög ráða afkomu þeirra. Út-
tektarskýrslan, sem unnin hefði
verið, væri góð en hún yrði ekki birt
á Alþingi heldur afhent sjávarútvegs-
nefndum og sjóðsstjórnum sem trún-
aðarmál.
Úttektin hefði leitt í ljós, m.a. að
reikningar fyrirtækja væri misjafn-
lega unnir og sumir svo illa að furðu
gegndi að menn stæðu i rekstri með
þann leiðarvísi að baki sem í þeim
fælist. -Hefðu reikningar þriggja
fyrirtækja verið ónothæfir við út-
tektina.
Steingrímur sagði að taprekstur 19
nýjustu togara sýndi 20,9% taprekst-
ur en 68 skipa úrtak Þjóðhagsstofn-
unar sýndi hins vegar 6,8% tap-
rekstur. Þó væri staðreynd að tekjur
togaranna 19 í minna úrtakinu væru
hærri en meðaltekjur skipa í stærra
úrtakinu. Mestu munaði á vaxta-
greiðslum. Vextir næmu allt frá 3%
af aflaverðmæti upp í að nema 30—
40% af aflaverðmæti. Aflinn væri og
mjög misjafn, allt frá 3200 lestum
upp í 6400 lestir. Vandamál 16 af 19
skipum tilheyrðu ekki rekstrargrund-
velli heldur sérstökum vandamálum.
Steingrímur sagði að söltun og
herzla væru rekin með ágóða þó tap-
Steingrímur ráðherra telur Sverri Her-
mannsson alþm. eiga ýmislegt vantalað
við Sverri Hermannsson kommissar.
rekstur væri á frystingu. Heildarút-
koman væri um eða ofan við núllið.
Steingrimur vék að eiginfjárstöðu
Seðlabankans. Hún hefði vaxið úr
2,7 milljörðum króna árið 1977 í 36,5
milljarða á sl. ári. Þar af hefði hún
tæplega þrefaldazt milli áranna 1979
til 1980 eða aukizt úr 13,3 í 36,5 millj-
arðagkr.
Kvað hann nú í grundvallarskoðun
að tryggja Seðlabanka gengistryggða
arðsaukningu en arður umfram það
rynni til atvinnuveganna eins og
gerist víða í nágrannalöndum okkar
með ýmsu móti.
-A.St.
Kvikmyndahús opna videoleigur:
Laugarásbíó í næstu viku —
Regnboginn um mánaðamótin
— íslenzkur texti með myndunum
„Ætli ég opni ekki í næstu viku,”
sagði Grétar Hjartarson, forstjóri
Laugarásbíós, er DB innti hann eftir
því hvenær hann hygðist opna video-
leigu á vegum kvikmyndahússins.
Videoleiga Laugarásbíós verður
starfrækt í anddyri kvikmyndahússins
og verður leiguverð svipað og hjá
öðrum videoleigum. Að sögn Grétars
verður fyrst um sinn eingöngu um
spólur i VHS-kerfi að ræða en ætlunin
er að vera éinnig með Betamax og V-
2000 í framtíðinni.
Fyrst um sinn verða myndirnar leigð-
ar út án íslenzks texta en Grétar sagði
að stefnt væri að því að texta allar
myndir. Mun fyrirtækið Texti hf.
annast það verk.
Regnboginn opnar videoleigu um
næstu mánaðamót, að sögn Jóns Ragn-
arssonar, forstjóra kvikmyndahússins.
Sagði hann að verið væri að setja ís-
lenzkan texta á kvikmyndirnar á vegum
EMI í Englandi.
„Ég geri ráð fyrir að leigan verði eitt-
hvað dýrari en gengur og gerist vegna
textans og höfundarréttar sem við að
sjálfsögðu greiðum fyrir. Ég býst við
að daggjaldið verði í kringum 55
krónur,” sagði Jón Ragnarsson.
Videoleiga Regnbogans verður i
húsakynnum við hliðina á bíóinu. Er
stefnt að því að bjóða upp á spólur
fyrir öll kerfin þrjú, VHS, Betamax og
V-2000.
-KMU.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Nemendur öldungadeildar krefjast
þess að njóta greiddrar kennslu
Nemendafélag öldungadeildar Fjöl-
brautaskólans á Suðurnesjum vill
koma eftirfarandi á framfæri vegna
þeirrar óreiðu og óvissu sem rikir um
framtíð og tilvist öldungadeildarinnar:
Öldungadeildarnemar hafa nú þegar
greitt sinn hluta, sem er 1/3 af rekstrar-
kostnaði öldungadeildarinnar, á móti
ríki og sveitarfélögum. Niðurfelling
kennslu bitnar því fyrst og fremst á
nemendum og öll sú vinna, sem þeir
hafa lagt fram er virt að vettugi og að
engu gerð, verði ekki komizt að sam-
komulagi hið bráðasta.
Því krefjast nemendur þess að þeim
verði gert kleift að starfa áfram, að þeir
fái að njóta þeirrar kennslu sem þeir
hafa þegar greitt fyrir og hafa fullan
rétt á.
-JH.
Kostaboð f rá KJÖTBORG
/ tilefni 25 ára afmœlis
" verzlunarinnar 7. nóvember
seljum við nœstu daga ýmsar matvörur og
hreinlætis vörur^^
KJÖTBORG
—----- Ásvallagötu 19.
Símar 14925 og 15690
Afsláttur
allt að
AðalfundurVerndar:
„STEINRUNNIN
BÓKSTAFSMEÐ-
FERD Á UFANDI
FÓLKI í
BLÓMA UFS”
— sagði Guðmundur J. Guðmundsson
um fangelsismál á íslandi
„Ísland á að verða fyrsta landið i
heiminum sem verður án fangelsa.
Það er göfugt markmið að stefna
að,” sagði séra Árelíus Nielsson á
aðalfundi Verndar í fyrrakvöld.
Hann bætti við: „Jslenzk hegningar-
lög og framkvæmd refsinga er byggð
á aldagömlum fordómum. Ég var um
10 ára skeið með annan fótinn inni á
Litla-Hrauni. Égget staðfest það sem
allir þeir, sem gerzt þekkja til, halda
fram, að fangelsi bæti engan mann.”
„Hjá okkur heita þetta betrunar-
hús. Ég er sannfærður um að i ákaf-
lega mörgum tilvikum séu fangelsanir
til bölvunar ef ekki hreinnar tortím-
ingar,” sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson alþingismaður.
„Það er auðvélt að gagnrýna og
manni hættir til stórra orða i við-
kvæmum málum en í okkar litla sér-
stæða islenzka þjóðfélagi, landi
kunningsskaparins, finnst mér
stundum að fullnustunefnd ætti
miklu fremur heima á Litla-Hrauni
en mennirnir sem hún er að senda
þangað,” sagði Guðntundur J. „Er
það ekki verkefni þessara samtaka að
breyta þessari steinrunnu bókstafs-
meðferð á lifandi fólki, æði oft í
blóma lífsins þótt á bjáti, meðal
annars vegna aðstæðna sem þetta
fólk hefur engin áhrif haft á að
skapa?”
Formaður trúnaðarráðs fanga á
Litla-Hrauni sótti um leyfi til þess að
sækja þennan aðalfund samtaka uni
fangahjálp. Dómsmálaráðuneytið sá
sér ekki fært að leyfa það.
Fundurinn fagnaði framkominni
þingsályktunartillögu þriggja alþing-
ismanna, sem gerir ráð fyrir heildar-
úttekt á fangelsismálum. Skorar
fundurinn á alþingismenn að
samþykkjahana.
Hilmar Helgason, formaður
Verndar, flutti skýrslu um blómlegt
starf samtakanna síðasta starfsár.
Venjuleg aðalfundarstörf voru
unnin, svo sem kosning i stjórn og
önnur trúnaðarstörf. Umræður urðu
miklar og stóð fundurinn' fram yfir
miðnætti.
-BS.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - 5imi 15105