Dagblaðið - 05.11.1981, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1981.
Gert er ráfl fyrir sufliœgri átt á land-
inu I dag og hlýtt vestanlands. Sífl-1
degis verflur komin hláka um landifl,
Iftils háttar rigning á Suflur- og
Vesturlandi en þurrt á Norflur- og
Austurlandi.
Kl. 6 var f Reykjavfk austnorflaust-
an 4, alskýjafl og 4, Galtarviti hœg-
viflri, alskýjafl og 8, Akureyri, skýjafl
og 2, Raufarhöfn austsuflaustan 3,
alskýjafl og —1, Dalatangi logn, létt-
skýjafl og —1, Höfn norflnorflvestan
3, alskýjafl og —2, Stórhöffli austsufl-
austan 8, alskýjafl og 4.
( Þórshöfn var lóttskýjafl og 2,
, Kaupmannahöfn láttskýjafl og 6,
Ósló, skýjafl og 6, Stokkhólmur lótt-
skýjafl og 4, London þoka og 3, Ham-
borg léttskýjafl og 7, Parfs þokumófla
og 9, Madrid heiðskfrt og 3, Lissabon |
hoiflskfrt og 14, New York skýjafl og
10.
Baldur Hjarlarson lézt 27. október.
Hann var fæddur 4. september 1910.
Foreldrar hans voru Hjörtur Cýrusson
og Soffía Jónsdóttir. Baldur var settur
í fóstur rétt eftir fæðingu og eignaðist
hann þá mörg fóstursystkin. Baldur
eignaðist einn son, Birgi, sem lifir nú
föður sinn. Baldur verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju í dag, 5. nóvember,
kl. 13.30.
Bogi Slefánsson, Kjalarlandi 23, lézt
29. október. Hann var fæddur 5. októ-
ber 1893 að Grásíðu í Kelduhverfi,
sonur hjónanna Margrétar Þórarins-
dóttur og Stefáns Erlendssonar. Bogi
ólst upp með ellefu systkinum. Hann
var kvæntur Sigurveigu Einarsdóttur,
þau eignuðust 2 börn. Fyrir tæpum
þrjátíu árum hóf Bogi störf hjá Þjóð-
leikhúsinu sem leiktjaldasmiður, við
það starfaði hann i 27 ár. Bogi fékk
meistararéttindi í söðlasmíði þegar
hann var um sjötugt og stundaði þá
iðju fram á síðasta dag. Bogi var
jarðsunginn í morgun kl. 10.30 frá
Fossvogskapellu.
Árni Ólafsson kaupmaður, Sólvalla-
götu 27 R. lézt aðfaranótt miðviku-
dagsins 4. nóvember.
Áslaug Ó. Stephensen, Hlaðavöllum 5
Selfossi, verður jarðsungin frá Selfoss-
kirkju, föstudaginn 6. nóvember kl.
14.00.
Ástríður Helga Petersen lézt á heimili
sínu 26. okt. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Birgir Kristjánsson járnsmiðameistari,
Álfhólsvegi 129 Kópavogi,verður jarð
sunginn frá Fríkirkjunni, föstudag 6.
nóvember kl. 3.
Jón Kaldal ljósmyndari verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 6. nóvember kl. 10.30.
Klara Bergsdóttir, Veghúsastig 9
Reykjavík, er látin og hefur útförin
farið fram.
Oddrún Elísdóttir, Nökkvavogi 14,
sem lézt í Landspítalanum þann 31.
okt. verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 6. nóv. kl. 16.30.
Rósa J. Guðlaugsdóttir, Kleppsvegi 40,
andaðist í Borgarspítalanum þ. 3.
nóvember.
Þorkell Sigurgeirsson frá Laufási,
Hellissandi, Hátúni 10A, R., sem lézt
þann 28. október, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 6.
nóv. kl. 13.30.
Jón Ólafsson frá Ytri Bakka andaðist í
Landspítalanum þriðjudaginn 3.
nóvember.
Árshátíð Átthaga-
félags Strandamanna
í Reykjavík verður haldin laugardaginn 7. nóvember
í Ártúni. Aðgöngumiðar verða seldir í, anddyri
Laugarnesskóla í dag, 5. nóvember frá kl. 17—19.
M.S.-fólag íslands
heldur fund í Hátúni 12, fímmtudagskvöld 5.
nóvember kl. 20.15. Sagt verður frá Japansferð.
Kvenfólag Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn
5. nóvember kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Að
loknum aöalfundarstörfum verður rætt um 40 ára
afmæli félagsins. Kaffíveitingar.
Kvenfélag Frlkirkjunnar
í Reykjavík
heldur fund að Hallveigarstöðura í kvöld 5.1
nóvember kl. 20.30. Gestur fundaríns verður
Halldór Rafnar lögfræðingur. Á fundinn koma
einnig vísnavinir.
Aðalfundur
Geðhjálpar
verður haldinn á geðdeild Landspítalans
í kvöld 5. nóvember kl. 20.30.
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í félagsheimili kirkjunnar
í kvöld, 5. nóvember kl. 20.30. Fjölbreytt
dagskrá. Að loknum kaffiveitingum verður vetrar-
hugvekja. Konur eru hvattar til að taka með sér
handavinnu.
Opinn félagsfundur
Freeportklúbbsins
Ný áfengismálastefna?
Nú liggur fyrir Alþingi að móta áfengismálastefnu.
Freeportklúbburinn hefur fengið til að hafa
framsögu á fundinum alþingismennina, Árna
Gunnarsson, Halldór Ásgrímsson, Helga Seljan og
Friðrik Sophusson.
Á eftir framsöguræöum verða almennar
umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn er öllum opin, meðan húsrúm leyfír,
og. hefst kl. 20.30 í Víkingasal Hótel Loftleiða,
fimmtudaginn 5. nóv.
Samtök gegn astma
og ofnæmi
Fræðslu- og skemmtifundur að Norðurbrún 1, laug-
ardaginn 7. nóvember kl. 13.30. Magnús B. Einars-
son læknir flytur erindi um heislusport og endur-
hæfíngu með íþróttum. Kaffiveitingar og spiluð fé-
lagsvist. Félagsmenn og aðrir áhugamenn vel-
komnir.
Verkakvennafélagið
Framsókn
heldur basar
Basar félagsins verður laugardaginn 7. nóvember í
Lindarbæ. Tekið á móti basarmunum á skrifstofu
félagsins, opið frá kl. 9—19, aðeins þessa viku.
Félag fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni
Nú líður óðum að basar félagsins, sem verður í
fyrstu viku desembermánaðar. Basarvinnan er
komin í fullan gang, komið er saman öll fimmtu-
dagskvöld kl. 20.00 í félagsheimilinu Hátúni 12.
Vonazt er eftir stuðningi frá velunnurum félagsins
eins og undanfarin ár.
Baháíar — Opið hús
Baháíar hafa opið hús að Óðinsgötu 20, öll fimmtu-
dagskvöld frá kl. 20.30. Frjálsar umræður, allir vel-
komnir. Umræðuefni kvöldsins verður friðarhreyf-
ing.
Snyrting '81
Kynnist haust- og vetrarlínunni í snyrtingu á glæsi-
legu fræðslu- og skemmtikvöldi í Súlnasal Hótel
Sögu, fimmtudagskvöld 5. nóvember kl. 20.30.
Húsið opnar kl. 19.30.
Tízkusýning, vörukynning og fleira í léttum dúr.
Nýjar myndir á Norrænu
kvikmyndahátíðinni
í dag fímmtudag verður skipt um myndir á kvik-
myndahátíðinni fyrir börn og unglinga í Regnbog-
Otrúlegur árangur
innlendra kvikmyndajöfra
Ekki er mér grunlaust um að kvik-
myndajöfrarnir í glansborginni
Hollywood yrðu hálfsneyptir ef þeir
kynntust því hvernig íslenzkir kvik-
myndaframleitíendur vinna verk sín
— og hve ótrúlega góðum árangri
þeir ná við frumstæðar aðstæður.
Mjög fróðlegt og skemmtilegt var að
fá að skyggnast inn í störf kvik-
myndaframleiðendanna.
Það er hreint ótrúlegt að þessir
fáu menn skuli geta framleitt kvik-
myndir sem standa erlendum kvik-
myndum fyllilega á sporði. Það er
enginn viðvaningsbragur lengur á
þessum. Ég verð að segja að ég
hlakka reglulega til að sjá nýju
myndirnar, þessa um tvíburana og
Útlagann og ég skora á alla sem
vettlingi geta valdið að drífa sig nú í
bíó. Þeir félagarnir Jón og Ágúst
minntust á að það þyrftu 160 þúsund
íslendingar að sjá Útlagann til þess
að þeir fengju aftur það sem þeir
hafa lagt í hana. Mér finnst að þeir
eigi skilið að fá gott betur en aðeins.
það sem þeir hafa lagt fram og vona
því að það verði miklu fleiri sem sjá
myndina.
Og svo kostaði ekki nema 6
milljónir að framleiða Útlagann. Jón
Hermannsson 'gat þess að um
þriðjungur af þeirri upphæð væri
fólginn í leikmyndunum. Þeir félagar
ættu því sem allra fyrst að ráðast í
annan „westra” til að dreifa
kostnaðinum. Til hamingju þið sem
að þessari mynd og öðrum íslenzkum
myndum stóðuð. Haldið áfram að
vinna þetta góða verk ykkar.
Og svo var Dallas í gærkvöldi. Æ-
i, hann J.R. er svo mikill ruddi að
allir aðrir ruddar blikna við hlið
hans. Hvernig er hægt að búa svona
karakter til? En eins og skrifað stóð í
þessum dálki fyrir nokkru, það góða
við þátt eins og Dallas er að maður
getur farið í burtu í svona tvö til þrjú
ár og komið aftur en hefur samt í
rauninni ekki misst neitt úr
myndinni. Það er alveg hábölvað
þegar margir framhaldsflokkar eru í
gangi í einu, þá er maður rígbundinn
öll kvöld yfir sjónvarpinu.
Annar þáttur um tryggingamál
var i gærkvöldi. Ég sá báða þættina,
en verð að játa, að ég var eiginlega
litlu nær um hver réttur fólks er. Það
rennur upp fyrir manni rétt á meðan
maður heyrir það, en svo er það
gleymt um leið. Þessir þættir voru
líkari útvarpsþáttum en sjónvarps, að
mínum dómi, og áttu raunar ekkert
erindi í sjónvarpið.
Vel má vera að hægt sé að mat-
reiða svona upplýsingar fyrir
sjónvarp þanTtig að fólk hafi af því
gagn en það er áreiðanlega ekki á
þennan hátt.
Á dögunum varð ég vitni að
umræðu um hvort íslenzka
sjónvarpsdagskráin sé leiðinlegri
heldur en sú^ norska, danska og
sænska. Sýndist hverjum sitt. Þó að
eflaust megi sitthvað að islenzka
sjónvarpinu finna þá held ég að þeim
serh þar ráða hafi tekizt blessunar-
lega vel að sigla á milli skers og báru.
Ég held að íslenzka sjónvarpið sé
bara með þeim skástu. Það er í það
minnsta mun skemmtilegra heldur en
það sænska og danska. Sjálf þekki ég
ekki það norska, en ég get varla
imyndað mér að það sé skemmtilegt,
það er að segja ef þeir bjóða upp á
norska skemmtiþætti. — Sjónvarp
eins og við þekkjum það á
Norðurlöndum og hér er ekki
sambærilegt við sjónvarp í Banda-
ríkjunum. Það er svo gjörólíkt. Þar
er hægt að vera „áskrifandi” að
kapalsjónvarpi fyrir vægt verð og eru
þar margir þættir sem við höfum ein-
mitt séð í okkar eigin sjónvarpi hér.
Auðvitað er að auki hægt að horfa á
allar hinar stöðvarnar, kannski allt
upp í 13 talsins og það allan sólar-
hringinn. En það er ekkert venjulegt
fólk sem gerir slíkt. En ef þú ert
sjónvarpssjúkur eða sjúkur í
einhvern ákveðinn þátt eins og t.d.
MASH geturðu „elt” hann uppi á
öllum mögulegum stöðvum. Ég man
eftir því í fyrravetur að ég átti þeSs
kost að horfa á MASH á sjö mis-
munandi stöðvum alla virka daga
vikunnar. En er það ekki fullstór
skammtur af MASH í einu, jafnvel
þótt þaðséfrábærþáttur?
-A.Bj.
AfmæJi
GENGIÐ
Sr. Erlendur Sigmundsson á 65 ára af-
mæli í dag. Foreldrar hans voru
Sigmundur Sigtryggsson og Margrét
Erlendsdóttir. Sr. Erlendur tók við
prestsembætti á Seyðisfirði árið 1942.
Hann stundaði kennslu- og skólastjóra-
störf á Seyðisfirði um árabil, einnig var
hann fulltrúi kaupstaðarins, frá 1942-
1965. Sr. Erlendur kvæntist Margréti
Sigríði Tómasdóttur, þau eignuðust
tvær dætur. Konu sína missti hann
snemma. Erlendur kvæntist aftur og
heitir síðari kona hans Sigríður
Símonardóttir.
Jungfrú Ragnheiður
— Skálholt
Leikfélag Akureyrar sýnir nú Jungfrú Ragnheiði —
Skálholt. Bríet Héðinsdóttir hefur samið nýja leik-
gerð upp úr verkum Guðmundar Kambans um bisk-
upsaotturina sem ef til vill hefur orðið fólki hug-
stæðust af öllum konum íslandssögunnar.
Guðbjörg Thoroddsen, Marinó Þorsteinsson og
SunnaBorg fara með aðalhlutverk. Bríet Héðins-
dóttir er leikstjóri en tónlist samdi Jón Þórarinsson.
Hún er flutt af kennurum við Tónlistarskóla Akur-
eyrar. Sigurjón Jóhannesson hannaði leikmynd og
búninga en David Walter lýsingu.
Næstu sýningar eru i kvöld, föstudags- og sunnu-
dagskvöld kl. 20.30. Miðasala er opin frá kl. 5—7 á
laugardag, hina dagana frá kl. 5 og fram til þess að
sýning hefst. Sími Leikfélagsins er 24073.
Búkollumyndir í
anddyri Norræna
hússins
Frummyndir Hrings Jóhannessonar að myndskreyt-
ingum við ævintýrið Búkollu hanga nú uppi í and-
dyri Norræna hússins. Upphaflega voru það Japanir
sem fengu Hring til að myndskreyta ^vintýrið. í
Japan kom bókin út í sumar og nú í byrjun vikunnar
kom Búkolla út á islenzku hjá Máli og menningu.
Sýningin á myndum úr Búkollu verður opin til
föstudagskvölds á opnunartíma Norræna hússins.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Galdrakarlinn Kuikka Koponen
anum, sýnd verður norska barnamyndin Atta böm
Dg amma þcirra I skóginum tekin eftir samnefndri
sögu Anne Cath.Vestly, sem allir krakkar kannast
við og bækur hennar Óla Alexander Filibomm-
bommbomm, Áróru, Stúf og alla hina. Fyrir
nokkrum árum var sýnd hér við miklar vinsældir
myndin Pabbi, mamma börn og bíll og þessi mynd
er framhald hennar. Hún verður sýnd kl. 15.00 og
17.00 fram á sunnudag.
Þá verður einnig hafin sýning á danskri unglinga-
mynd frá 1978 og heitir hún Þú ert ekki einn, þessi
mynd fjallar um vináttu og ást, uppreisn og sam-
stöðu unglinga og gerist í heimavistarskóla. Myndin
fékk mjög góða dóma í Danmörku. Hún verður
sýnd kl. 19.00, 21.00 og 23.00 í Regnboganum fram
ásunnudag.
í Norræna húsinu verður í dag kl. 17.00 sýnd
finnsk barnamynd á vegum kvikmyndahátíðarinnar
Galdrakarlinn Kuikka-Koponen. Teiknimynd sem
fjallar um furðufugl og töfralækni, sem uppi var á
19. öld. Einnig verður sýnd sænska kvikmyndin
Síflasta ópifl, verði hún komin til landsins, alveg ný
af nálinni, fjörug og fyndin, gerð af nemendum
Tannbergsskólans í Lycksele.
Talað verður á islenzku með barnamyndunum, en
fjölritað prógramm fylgir unglingamyndunum.
Væri vel ef kennarar og foreldrar vektu athygli á
þessum ágætumyndum.
Johannesson vifl eina af Búkollumyndum
sínum. DB-mynd: Einar Ólason.
Gengisskráning nr. 211 — Ferflamanna-
5. nóvember 1981 kl. 09.15. gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,815 7,637 8,400
1 Steriingspund 1436 14,327 15,759
1 Kanededollar 6,387 6,396 7,035
1 Dönsk króna 1,0690 1,0720 1.1792
1 Norsk króna 1.3006 1.3044 1.4348
1 Sænskkróna 1.3887 1.3927 1.5319
1 Finnsktmark 1.7494 1.7544 1.9298
1 Franskur franki 1.3650 1.3689 1.5057
1 Belg. fronki 0.2045 0.2050 0.2255
1 Svissn. franki 4.2566 4.2689 4.6957
1 Hollenzk florina 3.1251 3.1341 3.4475
1 V.-þýzktmerk 3.4410 3.4510 3.7961
1 ItötokllrB 0.00644 0.00646 0.00716
1 Austurr. Sch. 0.4908 0.4922 0.5414
1 Portug. Escudo 0.1190 0.1193 0.1312
1 Spánskur pesotj 0.0801 0.0803 0.0883
1 Japansktyen 0.03345 0.03355 0.0369
1 Irsktound 12.178 12.213 13.434
8DR (sérstök dráttarréttindl) 01/09 8.8703 8.8959
Sfmsvari vagna genglsskrénlngar 22190.
liiiiill