Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1986, Page 4
II. flokkur. Jarðir þar sem hefðbundin búfjárframleiðsla er
snar þáttur í búrekstri en jafnframt hafa ábúendur þó
verulegar tekjur af atvinnu annarri en búrekstri.
III. flokkur. í þessum flokki teljast jarðir þar sem áformað
er að búrekstur, annar en hefðbundin búfjárframleiðsla,
sé meginstoð búskapar. Þetta er því mjög breytilegur
flokkur en flest búin eru þó loðdýrabú og garðyrkjubýli.
Einnig eru nokkur bú með alifugla- og svínaframleiðslu,
einhliða nautakjötsframleiðslu og mikla hlunnindanýt-
ingu.
IV. flokkur. Jarðir án umtalsverðrar framleiðslu í hefðbund-
num búrekstri (búsetubýli). í flestum tilfellum er um
að ræða launafók með fasta búsetu á jörðinni.
V. flokkur. Jarðir sem þegar eru fallnar úr ábúð, eða sýnt
virðist að svo verði á allra næstu árum, (innan 5-6 ára).
VI. flokkur. í þessum flokki eru örfáar jarðir þar sem stund-
uð er búvöruframleiðsla í hefðbundnum greinum án
fastrar búsetu. Þetta eru jarðir í nágrenni þéttbýlis.
1. TAFLA. Flokkun jarða í könnuninni í aðalflokka. Sjá skýr-
ingu á flokkun í texta. Sýnd er skipting eftir sýslum.
Sýsla Flokkur
i ii iii IV V VI Samtals
V-Húnav.s 113 10 5 10 14 2 154
A-Húnav.s 123 13 7 8 23 1 175
Skagafj.s 190 47 26 12 40 4 319
Eyjafjarðars 225 20 23 39 12 1 320
S-Þingeyjars. ... 210 48 21 32 16 327
N-Þingeyjars. .. 70 7 6 16 12 1 112
SamtaH 931 145 88 117 117 9 1407
Hlutfall % 66,2 10,3 6,3 8,3 8,3 0,6
Jarðir sem falla í I. flokk eru langflestar og jafnframt burð-
6