Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1986, Page 100
Helstu stærðir sem meta þarf og skammstafanir þeirra
(enskar í sviga) eru:
1. NAM (AAT), nýtanlegar aminósýrur í mjógirni. Amínó-
sýrur eru grunneiningar í eiginlegu próteini. A þessu eina
formi er prótein nýtanlegt í efnaskiptum skepnunnar
sjálfrar.
2. HP (CP), (hrá) prótein, eða mælt köfnunarefni x 6,25.
3. MKOL (DEXHO), meltanleg kolvetni. Hér er átt við
köfnunarefnis-, fitu- og öskufrítt þurrefni í fóðri sem melt-
ist í vömb.
4. LP (DG), leysanlegt eða niðurbrotið prótein í vömb.
5. PJV (PB V), próteinjafnvægi í vömb.
6. ONP (UCP), óniðurbrotið fóðurprótein.
HVAÐ ER MÆLT MEÐ HINNI NÝJU AÐFERÐ?
Grunneiningar próteina eru aminósýrur. Uppsog próteina
frá meltingarveginum fer fram í formi aminósýra, sem sam-
kvæmt framansögðu koma frá tveim uppsprettum. Annars
vegar úr óniðurbrotna hluta fóðurpróteinsins og hins vegar
úr próteinverksmiðju örveranna í vömbinni. Fyrir skepnuna
skiptir máli hversu mikið af aminósýrum er í hvorum þætti
og hversu mikið af þeim meltist í þörmunum og sogast upp.
Ómeltanlegar aminósýrur svo og köfnunarefnissambönd sem
ekki teljst til eiginlegra próteina nýtir skepnan ekki og berast
þau frá skepnunni með saur.
Við þróun aðferðarinnar er gengið út frá að próteinum-
setningin í skepnunni eigi sér stað í tveim þrepum; Annars
vegar ummyndun próteina í vömb og hins vegar í sjálfum
efnaskiptum skepnunnar. í samræmi við þessa tvískiptingu
þarf að mæla tvo meginþætti við próteinmatið:
a) magn aminósýra sem sogast upp í mjógirni, NAM (AAT)
b) próteinjafnvægi í vömbinni, PJV (PBV)
102