Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Qupperneq 17
19
Athugasemdir.
Þessi síðustu ár hafa verið viðreisnarár Söludeildarinnar eftir
styrjaldarárin og dýrtiðarkreppuna verstu árin, 1920 og 1921.
Veruleg viðreisn byrjar pó ekki fyrri en 1924. — í árslok 1923
er Söludeildin búin að eyða öllutn varasjóði sínum og 3ja—4ra
ára ágóða af verslunarrekstrinum, til þess að lækka verð dýr-
tíðarvaranna og reisa sig úr stríðsárarústunum. En pá hefir
hún líka komið ár sinni svo fyrir borð, að hún getur byrjað
árið 1924 með ósviknum kröftum, án pess að hafa sótt nokk-
urn styrk til annara en síns eigin varasjóðs, eða að hafa eytt
nokkrum eyri af stofnsjóðnum. — Þetta má nú raunar kalla
góða niðurstöðu, í samanburði við mörg önnur dæmi í versl-
unarheiminum, því fremur, sem verslunarveltan var — af sparn-
aðarástæðum - - ákaflega mikið minkuð á árunum 1921 og 1922,
eins og sjá má af síðasta ársriti K. Þ., svo að pá gat ekki
verið um nokkurn söluágóða að ræða. Árið 1923 var versl-
unin nokkuð aukin, svo að hún gaf sæmilegan ágóða, og pað
reið baggamuninn. Enginn tekjuafgangur gat samt orðið í
rekstursreikningnum pað árið, en í lok ársins 1924 er hreinn
tekjuafgangur orðinn kr. 6919,87. — Varlegra pótti samt, að
úthluta ekki pessum ágóða til viðskiftainannanna í árslokin,
heldur geyma hann par til reynt væri til fulls, að Söludeildin
stæði föstum fótum.
2*