Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Blaðsíða 23
25
Athugasemdir.
Síðan 1922 hafa útlán úr sparisjóðnuin vaxið úr 68771 kr. í
73967 kr. eða aðeins uni 5196 kr. Samt hefir á þessum áruin
verið lánað út úr sparisjóðnum: á árinu 1922 kr. 18775,00, á
árinu 1923 kr. 29265,00 og á árinu 1924 kr. 21665,(X), eða sam-
tals 69705 kr. Þetta sýnir að afborganir eldri lána hafa gengið
mjög greiðlega og reglulega, par sem útlánaupphæðin í heild
hefir ekki hækkað meira en um ca. V16 hluta af pví, sem út
hefir verið lánað. Eðlilega hefir innstæðan i veltufé K. Þ.
porrið að sama skapi. Árið 1922 var hún 65478 kr., en i árs-
lok 1924 er hún 51364 kr.
Siðan 1922 hefir innstæðueigendum fjölgað um 10, en inn-
stæðuupphæðin pó lækkað úr tæpum 129 púsund kr. i rúmar
121 pús. kr. Þetta kemur auðvitað af pvi, að pótt innstæðu-
eigendum hafi fjölgað pessi ár, pá hefir rninna verið lagt í
sjóðinn en út hefir verið tekið af innstæðum, og er ekki um
að villast ástæðurnar til pess.
Varasjóður eða viðlagasjóður sparisjóðsins hefir á pessum
árum vaxið úr. kr. 7402,40 í kr. 10285,01 eða um kr. 2882,61.
Er hann nú orðinn ágæt trygging fyrir ekki stærri sparisjóð,
svo að ábyrgð kaupfélagsins á sjóðnum er ekki orðin teljandi.