Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Page 34
36
Það virðist svo, sem slikt ætti að vekja eftirtekt pjóðarinn-
ar, og hrinda á stað einhverjum athöfnum frá hálfu [)ings og
stjórnar.
Hverjar eru aðalorsakirnar til þessarar óvissu á ullarmarkað-
inum? Hvað getur þjóðin gert til þess að tryggja sér markað
fyrir ullina? Hvað geta framleiðendurnir gert til þess að gera
vöru sina útgengilegri? Hvað mikinn þátt á verkun ullarinnar,
flokkun hennar og allur frágangur í verðgildi hennar og áliti?
Er hægt að breyta ullarfari sauðfjárins hér svo, að ullin verði
útgengilegri og eftirsóttari vara? Þessum spurningum verður
að svara, ekki með getgátum eða bollaleggingum út i bláinn,
heldur með fullri vissu, eftir ítarlega rannsókn, gerða af skyn-
berandi og vönduðum mönnum.
Það verður alveg órannsakað mál, hve miklu strangt mat
og nákvæm og rétt flokkun ullurinnar gæti orkað, bæði út á
við á markaðinn og inn á við á framleiðendurna; ef t. d. að
ullin væri metin og flokkuð eins stranglega og fiskurinn er met-
inn og flokkaður.
Þetta alt er mikið verkefni og afarnauðsynlegt, og ullarfram-
leiðendurnir verða sjálfir að hrinda pví til framkvæmda.
B J.