Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Page 38
40
verstu tímum, farma, sem ekki eru nema að V6 hluta sauðir
eða minna, en að lang-mestu leyti ær eldri og yngri, jafnvel
mylkar mæður. Pað er gersamlega örvænt mál, að bjóða
breskum sláturhúsum slika farma nema við afarlágu verði, og
um annan markað fyrir lifandi sauðfé héðan er ekki að tala;
tilraunirnar með sölu t Belgíu og Frakklandi hafa sannað það
áþreifanlega.
En þetta alt saraan sannar alls ekkert unt hitt, fyrir hvaða
verð unt væri að selja í Bretlandi virkilega góða sauðafarma.
Líkurnar eru einmitt fyrir þvi, að þá inætti enn selja við háu
verði. Nýtt kjöt frá sláturhúsunum í Bretlandi er þar altaf í
mjög háu verði i samanburði við innflutt kælt kjöt, enda ekki
keypt af öðrum en efnaðri hluta þjóðarinnar.
Að öðru leyti þurfa þessar skýrslur engra skýringa við; töl-
ur þeirra eru svo „talandi".
B. J.