Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Síða 41
43
af fé, vinnu, hugviti og vandvirkni, sem unt er, og árangurinn
verður auðvitað i samrætni við ftað: ótraustir búnaðarhættir,
rýr og verðlítil frantleiðsla og óviss markaður.
Pað hefir áður verið bent á pað i ársriti K. Þ., að hvervetna
i heiminum, par sein kvikfjárrækt er stunduð scm mannleg
íprótt eða list, er ekki einungis kappkostað af fremsta megni
að proska og bæta kynferðið til pess að láta i té sem mest
og best af peim afurðum, sem sérstaklega er sóst eftir á hverj-
utn stað, hvort sem pað nú er kjöt, fita, mjólk, ull eða skinn,
heldur engu síður áhersla lögð á hitt, að pegar skepnunum er
slátrað, pá hafi pær náð sem fylstum proska og séu í pví
ástandi að öllu leyti, sem best getur verið að holdum og allri
velliðan, svo að afuröirnar verði sem mestar og bestar, verði
svo verðmætar sem unt er.
En hvað gerum vér? Slátrum 3ja—4ra mánaða gömlum
lambakreistum, sem ekkert hefir verið gert fyrir annað en að
„korna peini á spenann" og fela svo mæðrunum og afréttinum
eða heimahögunum að gera úr peim pað, sem auðnast vill og
orðið getur pennan stutta og stopula sumartíma, frá pví í júni
til gangnanna í miðjum september. Þá er eldinu undir slátr-
unina lokið, ræktuninni, friðinum og lifinu lokið. Þá er riðið á
stað í „göngurnar" með alla pá hunda, sem til eru, og fénað-
inuin „sigað“ saman með peim flýti, seni framast má verða.
Síðan er skepnunum pvælt i réttum og rekstrum, næringarlaus-
um að kalla í nokkra daga, og að pví búnu eru pær tafarlaust
reknar á „blóðvöllinn", sláturhúsin vildi ég sagt hafa. Þar er
pessum píslarvottum barbariskra búnaðarhátta slátrað, auðvit-
að á mjög svo mannúðlegan hátt, með skammbyssuskoti eða
helgrímu, en staðuppgefnuin, hröktum, meiddum og hungruð-
um og að öllu leyti sem verst á sig komnuin, gagnteknum af
preytu Og hungureitrun, Iambakreistunum nokkurra vikna, og
mæðrunuin með, horuðum og uppgefnum eftir fósturstörfin;
jafnvel fráfærnalömbum er einnig slátrað, sem tekin voru priggja
vikna gömul frá mæðrunum og látin sjá fyrir sér sjálf hverju
sem viðraði. Síðan er gerólíkum kroppum pessara skepna