Ársrit Kaupfjelags Þingeyinga - 01.01.1924, Qupperneq 57
59
Athugasemdir.
Þessi tvö síöustu ár hefir stofnsjóður félagsmanna vaxið úr
kr. 155881,05 í kr. 174797,78, eða um kr. 21916,73, sem er sama
sem kr. 10958,36 á ári.
Hinn 31. des. 1922 áttu félagsmenn að meðaltati kr. 230,40
hver í sjóðnum, en 31. des. 1924 kr. 274,40. Hefir þá meðal-
eignin vaxið um 22 kr. á ári, og er það minna en meðalvöxt-
ur að undanförnu, enda hefir mikið verið útborgað af eignum
þessi árin, til dánarbúa og burtfluttra félagsmanna, og nokkuð
hefir verið tekið uþp i skuldir einstakra manna, setn hröklast
hafa úr félaginu eftir hið hóflausa aðstreynii á stríðsárunum,
einkum af Iausingjum og daglaunamönnum, sem ekki gátu full-
nægt félagsskyldum sinum, þegar til kom, enda reyndust lítt
félagsþroskaðir.
Þessi tvö ár hafa útborganirnar úr sjóðnum numið i heild-
inni nær þvi eins miklu og ársinnlögin, sVo að sjóðurinn hefir
vaxið litlu meira en rentunum nemur af honum, en þær eru nú
orðnar stærri (ipphæð en öll ársinnlögin, eins og skýrslan sýnir.
r