Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Blaðsíða 8
IO
Fé til sýninga þessara er áætlað kr. 1700.00, og er
íengið þannig:
a. Frá Búnaðarfélagi íslands (lofað).. kr. 465.00
b. — Norður-Múlasýslu ................... — 220.00
c. — Suður-Múlasýslu .................... — 300.00
d. — Austur-Skaftafellssýslu (umsótt) ... — 100.00
e. — bæjarsjóði Seyðisfjarðar ........... — 10.00
f. — Búnaðarsambandinu .................. — 36.00
g. — hreppasj. (ca. 3/3 móti kr. 1131.00) — 569.00
Kr. 1700.00-
Yfirlýsingar um það, að sýningarnar verði þegnar, eru
komnar til stjórnarinnar úr 22 hreppum.
3. Um kynbótabúið á Rangá vísast til skýrslu ráðu-
nauts um það.
4. Verðlaun fyrir góða hirðingu sauðfjár og nautgripa
voru ekki veitt.
5. Verðlaun fyrir áburðarhirðingu voru ekki veitt 1916,
en nú liggja fyrir 2 umsóknir úr Suður-Múlasýslu.
6. Plægingar áttu að fara fram sumarið 1916 í Borgar-
firði og Vopnafirði. Var byrjað í Borgarfirði og plægðir
28897 fermetrar eða um 9 dagsláttur, á 22 dögum, auk
plægingar fyrir skurði 7030 m. löngum og 1 m. breiðutn.
Til bans gekk nál. 1 dagsverk. Hefir plægingin tekið 21
dag, og þannig verið plægt á dag að jafnaði ca. 385 fer-
faðmar.
Að svo komnu starfi baðst plógmaðurinn, Jón A. Bene-
diktsson, lausnar, og sá stjórnin þann kost vænstan. að
veita hana, þar sent maðurinn engan veginn var starf-
anum vaxmn.