Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 45

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 45
einstaklings og fá hann til aö sjá sjálfan nauösyn á and- legum og likamlegum framförum sínum, fá hann af sjálfsdáöum til aS bæta sjálfan sig og hag sinn. Og til þess aS örfa hann og styrkja enn betur til framsóknar aS settu marki, bjóða þeir honum liðveizlu sína, sem getur komið á margan hátt frarn i framkvæmdinni. Þessi hugs- un virSist mér aðalgrundvöllurinn undir öllum heilbrigö- um félagsskap og samtökum. Fyrir mína parta lít eg svo á, aö þessi grundvöllur sé sá eini, sem hefir verulega djúpgeng og heillavænleg áhrif á framþróun mannkynsins, og þar af leiöandi er hann sá lang-æskilegasti. En þaö er hvorki staður eöa stund til aö fara nánar út í þá sálma hér. Menn geta tekið höndum saman til samvinnu í margs konar tilgangi og til aö vinna aö margvíslegum umbót- um. Stundum er tilgangurinn aö vinna aö einhverju þvi markmiöi er snertir alt mannkyniö, stundum er markið heildarhagsmunir einhvers þjóöfélags, og loks getur markiö veriö að bæta kjör eöa hafa áhrif á hagsmuni einhverrar stéttar innan einhvers þjóöfélags eöa hluta af því. Meö eftirfarandi oröum skal gerð nokkur grein fyrir þeim félagsskap, sem hefir hag hinnar íslensku bænda- stéttar aö markmiði, hvort hann á nokkurn tilverurétt eða ekki, hvernig honum er fyrir komiö og hver verk- efni honum viröast liggja hendi næst. Það er ofureðlilegt, að við leggjum fyrst fyrir okkur þá spurningu, hvort í raun og veru sé þörf á nokkrum félagsskap til aö vinna að hagsbótum og farsæld hins íslenska landbúnaðar.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.