Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 53
55
meS nál. 3300 meölimum. Er það nál. helmingur allra
bænda í landinu. Af þessum 180 félögum eru um 130 í
BúnaSarfélagi íslands, sem sérstakir meðlimir.
Menn fundu það, að hreppsbúnaðarfélögin fullnægðu
ekki þörfum manna og að nauðsyn bar til stofnunar
stærri félaga. Þessi hugsun hefir sennilega vakað fyrir
stofnöndum Ræktunarfélags Norðurlands, er var stofnað
13. júní 1903. Félag þetta hefir til þessa eingöngu verið
jarðræktarfélag. Það nær yfir allar sýslur í hinum forna
Norðlendingafjórðungi.
Næst í röðinni kemur svo Búnaðarsamband Austur-
lands. Fyrsti vísir þess var stofnaður 8. október 1903 af
nokkrum búnaðarfélögum á Fljótsdalshéraði. Síðan hafa
flest búnaðarfélög í Múlasýslum og Austur-Skaftafells-
sýslu gengið inn í það. Félag þetta hefir frá upphafi
haft öll algeng búnaðarmál á stefnuskrá sinni.
Nú er svo komið, að stærri og smærri búnaðarsambönd
eru mynduð um land alt. Lúta þau öll fjármálalega undir
Búnaðarfélag íslands. En að öðru leyti hafa þau full-
komna sjálfstjórn í málum sínum, og þurfa ekki að
standa neinum reikningsskap ráðsmensku sinnar, er
nokkrum fjárveitingum er slept.
Með þessu má segja að grindin sé reist í búnaðar-
félagsbyggingu okkar, en hún er enn sem komið er laus-
lega telgd saman. Verður það verkefni næstu ára að
koma betra og fastara skipulagi á í þessum efnum. Finst
mér, að sú alda ætti helzt að ganga út frá Búnaðarfélagi
Islands; mundi samræmið þá verða mest. En finni það
ekki köllun hjá sér til að breyta til og bæta um, verða
^ðrjr að hefjast handa í þeim efnum.