Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 35
37
ekki sé rétt að bæta við sérstökum dálkum, fyrir síld,
ufsa og steinbít, svo og dálki fyrir sáðgras. — Stjórn-
inni er falið að gera jrær breytingar á skýrsluformum
þessum, sem henni kynni að þykja nauðsynlegar. Siðan
sendi hún þær til búnaðarfélaga, til reynslu og umsagna,
áður en þær verða gefnar út og teknar til notkunar.
19. Fundurinn samþykkti eftirfarandi fundarályktun
með 9 samhljóða atkvæðum:
„Fundurinn telur stjórn Sambandsins hafa beitt
réttri aðferð í hestakaupamáli við Jón bónda Jóns-
son á Þorgrímsstöðum, og felur henni að framfylgja
rétti Sambandsins fyrir dómstólunum."
20. Fundurinn samjrykti eftirfarandi tillögu með 6
samhljóða atkvæðum:
„Fundurinn lætur í ljósi það álit sitt, að hin mesta
nauðsyn sé á, að vandað sé, svo sem verða má, val
á forgöngumanni íslenskra búnaðarmála, er til kosn-
ingar kemur á forseta Búnaðarfélags íslanuds, ef
forsetaskifti verða á næsta Búnaðarþingi, þannig,
að til starfans veljist framkvæmdasamur og dugleg-
ur búnaðarmálamaður."
21. Sem varafulltrúi til Búnaðarþings var kosinn sira
Magnús Bl. Jónsson í Vallanesi með 6 atkvæðum. Gildir
kosning hans fyrir það, sem eftir er af kjörtíma hins
látna varafulltrúa, Gísla sál. Högnasonar á Búðum.
22. í stjórnarnefnd Sambandsins voru endur-
kostiir; séra Magnús Bl. Jónsson í Vallanesi með 10 at-