Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 30

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Side 30
32 Fyrir búnaðarfélag skriðdalshrepps: séra Magnús BL Jónsson í Vallanesi. Þess skal getið, að aðal-starfsmaður Sambandsins, Benedikt G. Blöndal, gat ekki setið fundinn, sökum þess að hann er á búnaðarþingi í Reykjavík, sömuleiðis ritari. Formaður stýrði fundinum og féhirðir bókaði fundar- gjörðina. Var þá gengið til dagskrár, þannig: 1. Stjórn Búnaðarsambandsins hafði falið ráðunaut Benedikt G. Blöndal að halda fyrirlestur á þessum fundi um störf Búnaðarfélagsskaparins á Islandi. En þar eð hann var fjarstaddur, sendi hann fyrirlesturinn á fund- inn; var hann lesinn fyrir fundarmönnum af féhirði Sambandsins. Þá koinu á fundinn þeir Stefán Þórarinsson á Mýr- um og Finnur Bjömsson á Geirólfsstöðum, báðir fyrir búnaðarfélag Skriðdalshrepps. — Alls þá komnir 11 full- trúar. 2. Formaður las upp skýrslu stjórnarinnar og um störf hennar á umliðnu ári. frá síðasta aðalfundi. Lesin var upp skýrsla um störf ráðunautsins, frá síð- asta aðalfundi. Loks var lesin upp skýrsla um kynbóta- búið á Rangá. yfir tímabilið frá i. nóv. 1914 til 31. okt. 1915. Skýrsla um gróðrarstöðina var ekki lögð fram, en starfsmaður hennar. Sigmar Guttormsson, skýrði frá aðalefni hennar; en eldri skýrsla var við höndina. Hinar skýrslurnar voru lagðar fram til athugunar á fundinum.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.