Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 58

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1916, Síða 58
félag, hér um bil öll meö sömu meÖlimunum. Því aö reyndin mun vera sú, að mestu áhugamennirnir i hverri sveit eru í öllum þessum félögum, ef þau eru á annað borð til. Slægju þau sér öll saman, eru líkur til að þau yröu þróttmeiri og gætu látið meira til sín taka. Þá eiga búnaðarfélögin mikið verk fyrir hendi með þvi, að vekja áhuga fyrir góðri hirðingu búfjár og hagkvæmari fóðrun en verið hefir. Margt fleira gætu þau gert búpeningsræktinni til gagns, þó ekki verði gengið nánar inn á það hér. 3. Að leggja stund á að safna drögum að íslenzkri bú- fræði með búskýrslu- og búreikningahaldi. Kæmist það í framkvæmd, mundi það verða ein drýgsta menningar- lind búnaðarfélaganna. Enn má nefna eitt mál, sem búnaðarfélögin ættu að leggja meiri stund á, en víða mun hafa tíðkast hingað til, það er að koma sér upp ofurlitlum sjóðum. Félögin geta haft talsverðar tekjur af þeim og á þann hátt aukið og bætt verksvið sitt. T. d. vil eg geta þess, að sam- kvæmt skýrslu Búnaðarfélags Svínavatnshrepps hefir hér um bil helmingur af tekjurn þess, á umræddum 50 árum, verið vextir af eignum, og hafa þeir til samans numið rúmum 5000 kr. Þetta atriði er ekki lítils vert, enda mun sannast hið gamla spakmæli, að ,,holt er heima hvat“. Þessi mál, sem hér hafa verið nefnd að framan, virð- ast mér eiga að skipa öndvegi hjá búnaðarfélögunum. Tækju þau málin að sér fyrir alvöru, er eg sannfærður um, að nýr þróttur færðist í þau, því að þá er sennilegt, að hver meðlimur gæti fengið sitt áhugamál að vinna

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.