Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1953, Blaðsíða 76
76
PÉTUR SIGURÐSSON
Gissur var sonur séra Bjarna skálds Gissurarsonar í Þingmúla. Brynjólfur biskup styrkti Gissur til
utanfarar; hann var skrásettur 1671, en dó í Höfn 1672.
7. (5)a. Latínukvæði, 16 Ijóðlínur. Upphaf:
Qvent Deus omnipotens Claro mactavit honore,
Hunc debent homines concelebrare Virum.
Debiti honoris ergo ita gratulabundus
vovebat.
Bernhardus Gislavius Isl:
Bjarni Gíslason prests á Bergsstöðum í Svartárdal Brynjólfssonar. Skrásettur 1671. Bjarni varð að-
stoðarprestur föður síns og andaðist um 1680.
8. (5)ab. Latínukvæði, 32 ljóðlínur. Upphaf:
Promicat totum variis per orbem
Jam dies felix radiis micante
Sole, Sed cæptis faveant suprema
numina nostris
Mæcenati suo plurimum honorando
ita gratulatur.
Jonas Hallgrimi. Isl:
Jón Hallgrímsson (d. 30. sept. 1693), sonur séra Hallgríms í Glaumbæ Jónssonar. Skrásettur 1671,
attestatus; vígðist aðstoðarprestur til föður síns 1674, fékk Glaumbæ að honum látnum 1681.
9. (5)b—(6)a. Latínustef, 6 ljóðlínur. Upphaf:
Inter aves dulci CantiIIat alauda susurro ...
Ferskeytla:
Biskups Naffnid bindist vid
Bæna heitur Ande
Hefiest tign med helgum Frid
Hellst a fpdurlande.
Ita gratulatur
Jonas Sigurdi Isl.
Enginn Jón Sigurðsson er skrásettur í háskólanum um þessar mundir, en þá dvöldust í Kaupmanna-
höfn Jónar tveir, synir Sigurðar lögmanns í Einarsnesi Jónssonar, er báðir höfðu stundað nám í Skál-
holtsskóla. Jón eldri, síðar klausturhaldari á Reynistað og sýslumaður í Húnavatnssýslu, fór til Hafnar
1669 og kvæntist þar danskri konu 1672 (Smævir I, 586). Hann andaðist 1678. Jón yngri (um 1649—
1718), síðar sýslumaður í Borgarfjarðarsýslu, veiktist í skóla 1669—70; varð rekistefna mikil af þeim
veikindum og kennt göldrum. „Jón var þar eftir litla hríð hjá föður sínum og fór síðan utan til meiri
frama sér.“ Kom út „nálægt 1675“ (Smævir III, 492). Það er ekki víst, að Jón yngri hafi verið kominn
til Ilafnar í ársbyrjun 1672. Sennilega er Jón eldri hér að verki, enda mætti gera ráð fyrir, að höfundur-
inn hefði auðkennt sig nánar, ef þeir hefðu báðir bræður verið þá í Höfn.
10. (6)a. Latínustef, 41jóðlínur. Uppliaf:
Te precor Omnipotens rutilo qvi nixus Olympo ...
Ferskeytla: