Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Qupperneq 56
56
BRÉF WILLARDS FISKES
Much of my time is spent in the enjoyment of gout and other
ailments appertaining to old age, which, however, I trust you are
entirely free from.
I remain
Always your old friend,
Willard Fiske
On looking through what has been written I am very much afraid
that I am asking you to do too much for me. But remember that if
there be not the proper kind of young man in Akureyri to interview
the postmaster, and if there be no person who has visited Grímsey
and can reply to me queries, you are to give yourself no further
trouble about either matter. I repeat that for the services I want I
shall be most glad to pay well, provided they be well rendered. I
don’t care whether the information be communicated in Icelandic or
Danish.
I am especially anxious to know whether my books and packages
have reached Grímsey.
W. F.
Kæri sr. Matthías.
Það var gleðilegt að fá hið ágæta bréf yðar og enn gleðilegra að sjá það í blöðunum,
að þér haldið enn áfram að leggja drjúgan skerf til íslenzkra bókmennta. Ég þarf ekki
að taka það fram, að ég les með ánægju allt, sem frá yðar hendi kemur, og vona, að
yður auðnist enn mörg ár að veita svo mörgum mikla gleði.
Mér virðist þér hafa lagt mjög traustan grunn að íslenzkri leikritagerð.
Gaman væri að koma til Akureyrar og staldra lengi við hjá yður. Ég á mjög
ánægjulegar minningar um staðinn, og hann stendur mér mjög lifandi fyrir
hugskotssjónum. Ég sé af ljósmyndum, sem ég á, hve staðurinn hefur vaxið og sér-
staklega, hve geysimikill bær Oddeyrin er orðin. Það er gott að finna, að vöxtur þessa
bæjar er ekkert einsdæmi, heldur að um alla eyna er nú að heíjast tímabil viðgangs
og farsældar.
Þó að ég geti ekki heimsótt yður, sjáið þér af bréfi þessu, að ég get að minnsta kosti
angrað yður með mörgum spurningum. Ég legg hér með spurningalista, sem mér
þætti vænt um, að póstmeistarinn á Akureyri svaraði. E. t. v. yrði bezt að biðja hann
að svara þeim munnlega og fá einhvern greinargóðan ungan mann til að skrifa svör
hans á íslenzku og senda mér þau síðan. Ég skyldi glaður greiða honum fyrir ómakið.
Ég treysti því, að þér bakið yður enga fyrirhöfn vegna þessara spurninga, heldur fáið
einhvern til þess að skrifa svör póstmeistara. Þér biðjið hann og innilega fyrirgefning-
ar fyrir það ónæði, er ég veld honum.