Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Síða 75
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
75
Landsbókasafn flytur þakkir öllum þeim, er gefið hafa því handrit
eða beint þeim til safnsins með öðrum hætti.
ÞJÓÐDEILD Ólafur Pálmason tók 1. ágúst aftur að
fullu við stjórn deildarinnar. Um annað
starfslið hennar og breytingar á því skal vísað til kaflans um starfslið
síðar í þessu yfirliti.
Tveir starfsmenn Háskólabókasafns, Þórir Ragnarsson deildar-
bókavörður og Sigurbergur Friðriksson bókavörður, unnu á vegum
Landsbókasafns stuttan tíma hvor að hinu svonefnda ís-MARC sniði
í samráði við Ólaf Pálmason. Fenginn var á árinu til ráðuneytis um
það verkefni Mogens Weitemeyer, einn helzti sérfræðingur Konungs-
bókhlöðu í Kaupmannahöfn í tölvumálum, og kom hann hingað og
dvaldist eina viku í Reykjavík á vegum Landsbókasafns, 1 .-7. júlí, en
Konungsbókhlaða léði Landsbókasafni hann umræddan tíma endur-
gjaldslaust. Mikill styrkur var að komu sérfræðingsins.
Ekki tókst að koma út á árinu íslenzkri bókaskrá og hljóðritaskrá
1981, og sýnir það bezt hve fáliðuð Þjóðdeildin er. Bókaútgáfa á
íslandi hefur um það bil tvöfaldazt á árabilinu 1974—1982, á sama
tíma og starfslið safnsins hefur staðið að kalla í stað. Sótt var á árinu
um viðbótarstöðu í deildinni, en fékkst ekki í það skipti.
Vinna við íslenzka bókaskrá, samsteypuskrána 1974—78, lá niðri á
árinu og stendur blýföst inni í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg.
Vonandi rætist úr því máli áður en langt um líður, enda ekki seinna
vænna að koma þeim áfanga frá. Svipað er að segja um skrá urn
íslenzk blöð og tímarit á sama árabili. Vegna liðsskorts hefur ekki enn
tekizt að koma skránni saman, en menn að vonum orðnir langeygðir
eftir henni.
DEILD ERLENDRA Starfslið deildarinnar sinnir fjölþættum
RITA verkefnum, sér um flokkun og skráningu
erlenda ritaukans, en vinnur jafnframt að
endurskoðun spjaldskrárinnar. Það annast — í samvinnu við önnur
söfn og stofnanir — um tvenns konar samskrá, þ. e. samskrá um
erlendan ritauka íslenzkra rannsóknarbókasafna og samskrá um
erlend tímarit.