Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1983, Blaðsíða 79
LANDSBÓKASAFNIÐ 1982
79
Þessar bækur voru léðar: Lögbók íslendinga, prentuð á Hólum
1578, Summaria yfer þad Nyia Testamentid og Gamla Testamentid,
hvortveggja prentuð að Núpufelli, hin fyrri 1589, en hin síðari 1591,
Graduale, Ein Almenneleg Messusöngs Bok, prentuð á Hólum 1594,
Schedæ Ara prests froda um Island [þ. e. íslendingabók], prentuð í
Skálholti 1688, og loks Lijtid wngt Stofunar Barn, prentað í
Hrappsey 1782.
Handritsblöðin léðu voru 4 blöð úr Eiríks sögu rauða í handritinu
Lbs. 1573 4to með hendi Þorsteins Gíslasonar á Stokkahlöðum frá
öndverðri 19. öld.
Undirritaður samdi dálítinn þátt um prentverk á íslandi á 16. og
17. öld, er birtur var í sérstakri sýningarskrá, Icelandic Sagas, Eddas,
and Art, er prentuð var hér heima. Skýringar við rit þau, er léð voru,
samdi Ólafur Pálmason, og voru þær jafnframt prentaðar í skránni.
Nokkrar myndir voru teknar úr gömlum bókum í Landsbókasafni
og þær stækkaðar vegna sýningarinnar.
Til handrita- og bókasýningarinnar í Pierpont Morgan Library var
mjög vandað, enda húsakynni þar hin glæsilegustu, og sóttu sýning-
una rúmlega 18.000 gestir að sögn forstöðumanns safnsins, Charles
Ryskamps.
í tilefni af viðgerð þeirri hinni miklu á húsi Stephans G.
Stephanssonar skammt frá Markerville í Albertafylki í Kanada, er
sögustaðanefnd fylkisstjórnarinnar gekkst fyrir í samvinnu við ís-
lendingafélögin í Alberta og ýmsa áhugamenn og samtök á íslandi,
sendi Landsbókasafn sérstaklega útbúna bók með myndum af
ýmsum kunnum kvæðum skáldsins og verði bókin höíð til sýnis í
húsinu. En meginhluti handrita Stephans G. Stephanssonar er
varðveittur sem kunnugt er í Landsbókasafni. Var í upphafi bókar
gerð grein fyrir handritum skáldsins.
Hús Stephans G. Stephanssonar var vígt við hátíðlega athöfn 7.
ágúst, og voru Ingvar Gíslason menntamálaráðherra og frú þar
sérstakir heiðursgestir.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐS- Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs veitti Landsbóka-
STYRKUR safni á árinu 40 þús. króna styrk til
viðgerðar á gömlum íslenzkum bókum.
Unnið var fyrir helming upphæðarinnar á árinu, en síðari helmingn-
um verður varið á árinu 1983.