Vísbending


Vísbending - 19.12.1994, Síða 6

Vísbending - 19.12.1994, Síða 6
an samþykkt 1. mars 1950 og mun það hafa verið í fyrsta sinn síðan 1911 að stjórn féll fyrir vantrausti. Það mun hafa verið í þessu brambolti öllu að Sveinn Björnsson sneri sér til Vilhjálms Þórs og bað hann að reyna að mynda blandaða stjórn þingmanna og utanþingsmanna. Ekki kom þó til þess því að Framsókn og Sjálf- stæðisflokkur komu sér loks saman um stjóm- armyndun undir forsæti forseta Sameinaðs þings, Steingríms Steinþórssonar, en þeir Hermann og Olafur Thors féllust báðir á að taka sæti í henni, Hermann sem landbúnaðar- ráðherra og Olafur fór með sjávarútvegsmálin. [1 Islandssögu Sögufélagsins er komist svo að orði að hastarlegasta efnahagsaðgerð þess- arar stjórnar hafi verið gengislækkun sem nam 42,6% og samsvaraði 74,3% hækkun á erlend- um gjaldeyri í íslenskum krónum talið. Og að þessar aðgerðir, sem áttu að bæta hag sjávarút- vegsins hafi naumast borið tilætlaðan árangur. Hafi um hríð flest verið andstætt útvegsmönn- um, svo sem langvinn togaraverkföll, verð- hækkanir á erlendum rekstrarvörum og fleira.] Mér finnst nú hafa gætt nokkurrar tilhneig- ingar til að vanmeta árangurinn af þessum til- lögum Benjamíns og mín. Menn mega alls ekki gleyma að höftin og skömmtunin voru aldrei endurreist í þeirri mynd sem verið hafði. Á árunum 1950 og ‘51 var gefinn út svonefndur frílisti og urðu með honum um 40% innflutningsins frjáls og óháð leyfisveit- ingum. Bakhjarlinn fyrir þessu var þátttakan í Marshallaðstoðinni og Greiðslubandalagi Evrópu. Meira að segja vinstri stjórn Her- manns Jónassonar 1956-’58 skirrðist við að endurreisa höftin. Verstu mistök hennar voru þau að skilja ekki, að það var grundvallarskil- yrði fyrir frjálsri verslun að gengið væri eitt. Hún hafði sér reyndar málsbætur í því að báta- gjaldeyriskerfinu var komið á í tíð stjórnar Olafs Thors með Framsóknarflokknum, en vorið 1958 hafði það snúið svo upp á sig að í Alþýðublaðinu var fullyrt að 40 gengi væru í gangi samtímis. Annað sem menn gjarnan gleyma er það að þessi stóra gengisfelling ruddi frysta fiskinum okkar braut inn á Bandaríkjamarkað, sem um þrjá næstu áratugi var okkar stærsti og örugg- asti markaður fyrir sjávarafurðir. Þessar til- lögur okkar mörkuðu því örugglega rétta braut fram á við þótt á ýmsu gengi um framkvæmd- ina. Eitt var það þó sem skorti átakanlega á þessa tillögugerð, það að engar ráðstafanir voru gerðar í peningamálum. Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur voru nokkuð sammála um að vöxtunum yrði að halda í lág- marki og voru lítt tilbúnir til að hlusta á hagfræðinga sem litu á gengi og vexti sem hagstjómartæki. Helsti galli á tillögugerð okkar var kannski sá að við urðum að byggja á mjög ófullkomn- um upplýsingum um ástand þjóðarbúskapar- ins. Eg man að við Benjamín kölluðum fyrir okkur atvinnurekendur úr sjávarútvegi og öðr- um greinum. Þeir voru því mjög mótfallnir að gefa nokkrar upplýsingar um afkomu sína og töldu fráleitt að reikningar fyrirtækja sinna gætu orðið aðgengilegir fyrir almenning. Það sem úrslitum réði þó var að í hönd fór tímabil stórlega versnandi viðskiptakjara fyrir landið. Kóreustyrjöldin braust út 25. júní 1950 og hækkaði snögglega verð á öllum helstu innflutningsvörum okkar á sama tíma og út- flutningsafurðir lækkuðu í verði og urðu erfið- ari í sölu. Um mitt ár 1952 skall á löndunar- bann í Bretlandi, sem hafði tekið við fjórðungi af botnfiskafla landsmanna og jókst þá út- flutningurinn til jafnkeypislandanna í Austur- Evrópu að sama skapi, og komst síðar á ára- tugnum - á dögum vinstri stjórnar Hermanns - upp í og yfir 50% af verðmæti og magni heildarútflutningsins. Á þeim grundvelli urðu að sjálfsögðu hvorki byggð upp frjáls við- skipti, né frelsi í gjaldeyrismálum. Með vinstri stjóminni unnu ýmsir færir hagfræðingar. Jónas Haralz var efnahagsráðu- nautur ríkisstjórnarinnar. Ásamt Jóhannesi Nordal og Klemens Tryggvasyni vann hann hagfræðiálit sumarið 1958, en engin samstaða varð í ríkisstjórninni um neina þá leið, sem þar voru taldar koma til greina. Að lokum voru tillögur lagðar fyrir Alþýðusambands- þing í nóvember 1958 og felldar þar með at- kvæðum bæði krata og kommúnista. Verka- lýðshreyfingin gat ekki á þessum árum hugsað sér að viðurkenna þær staðreyndir efnahags- lífsins, sem viðurkenndar eru með gengisfalli. í staðinn aðhylltust verkalýðsforingjarnir ein- hverskonar millifærslustefnu, sem fyrr eða síð- ar komst alltaf í þrot með tilheyrandi falli þeirra ríkisstjórna, sem þessir aðilar stóðu að. Þorri framsóknarmanna var í raun sama sinnis. Við fall vinstri stjórnarinnar tók við milli- bilsástand, sem brúað var með minnihluta- stjóm Alþýðuflokksins. í efnahagsmálum fór hún eins konar niðurfærsluleið og tókst með því að halda verðlagi allstöðugu út árið 1959. Þá erum við komnir að viðreisninni, sem nú er almennt talin hafa markað þáttaskil í hagsögu landsins. Gunnar Helgi Kristinsson gekk svo langt áfundi ífyrra að kalla þá ríkis- stjórn sem nú situr 13. viðreisnarstjórnina og á sennilega við með því að engin ríkisstjórn síðan hefur stigið skref til baka frá þeim ferli sem þar var markaður. Allar hafi þœr stigið skreffram á við á viðreisnarbrautinni - misstór að vísu. Hvað hafði breyst á liðnum áratug? Það fyrsta var að pólitíska andrúmsloftið hafði gerbreyst. Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki axlað ábyrgð á stjórn landsins í þrjú og hálft ár og rekið harða stjórnarandstöðu gegn öllum ráðstöfunum vinstri stjórnarinnar. Hann var því móttækilegri fyrir nýjum hugmyndum en verið hafði um áratugi. Alþýðuflokkurinn hafði dregið þá lærdóma af stjórnarþátt- tökunni að lengra yrði ekki gengið á braut allsherjar stjórnvaldsforsjár. Kjördæmabreyt- ing og niðurstaða kosninga eftir hana hafði gert samstjórn þessara tveggja flokka mögu- lega. Verkalýðshreyfingin hafði fengið að spreyta sig á stjórn landsins - og fallið á því prófi. Alþjóðlega umhverfið var líka annað. Vestur-Evrópa var risin úr rústum styrjaldar- innar á grunni frjálslyndari stefnu í efnahags- málum, markaðsbúskapar og frjálsra milli- ríkjaviðskipta. Útfærsla landhelginnar var að skapa grunn að öruggari afrakstri fslendinga sjálfra af auðlindinni í hafinu umhverfis landið. Það sem „viðreisnin" fól í sér í upphafi var einhver róttækasta breyting á skipan efna- hagsmála, sem gerð hafði verið í 30 ár: Raunhæf skráning gengis samfara afnámi útflutningsbóta og innflutningsgjalda, þar sem svo hafði litið út fyrir að það væri innflutning- urinn, sem stæði undir útflutningnum. Jafn- framt voru vextir hækkaðir, tollar lækkaðir og innlent verðlag leiðrétt á margan hátt. Þau ströngu höft sem verið höfðu á stórum hluta innflutningsins og hvers konar notkun gjald- eyris voru afnumin í áföngum. Vísitölubind- ing launa var afnumin svo að helstu hagstærð- ir gætu leitað jafnvægis. Jafnframt var stefnt að því að ísland gæti orðið aðili að þeirri við- skiptasamvinnu sem var að komast á laggirnar um vestanverða Evrópu. Það, sem olli úrslitum að mínu mati um að í þetta skipti heppnuðust aðgerðirnar, var, auk þeirrar hugarfarsbreytingar sem ég nefndi áðan og umskipta á pólitískri vígstöðu, að í þetta sinn var skrefið stigið til fulls og gerðar markvissar ráðstafanir í peningamálum. Síðan kom til að í þetta sinn breyttust aðstæður okkur í hag en ekki óhag, viðskiptakjör bötnuðu og það framtak sem athafnafrelsið leysti úr læð- ingi fékk að njóta sín og fékk skjóta umbun. Milli áranna 1961 og 1966 jókst verðmæti þjóðarframleiðslunnar á mann um 143%. Við erum að tala hér um framleiðsluaukningu, sem fer langt fram úr því sem er að gerast í Kfna þessa dagana og talið til „efnahagsundurs" á borð við það sem gerðist hjá Vestur-Þjóðverj- um á tímum Erhards og Adenauers. En einhvern veginn finnst mér að hugsunin sem lá að baki viðreisninni hafi ekki náð inn á svið grunnatvinnuveganna, landbúnaðar og sjávarútvegs. Þar voru það opinberar nefndir og stofnanir, sem ákváðu allt verðlag frá frumframleiðslu til smásalans? Það er rétt, að við þessu kerfi varð ekki hróflað í neinum aðalatriðum og menn horfðu á landbúnaðarkerfið fara alveg úr böndunum með lögskipuðu útflutningsbótakerfi, sem hafði verið sett á við allt aðrar aðstæður, en nú voru uppi í heiminum. Fyrir kreppuna 1930 fluttum við út landbúnaðarvörur án uppbóta. Þegar útflutningsbætur voru fyrst ákveðnar var verðmunur innanlands og erlendis ekki sá sem síðar varð. Hins vegar var það öllum ljóst að það var ekki meirihluti á Alþingi til að grípa í taumana. Sama gilti um sjávarútveginn. Það var talað hástöfum af ýmsum stjórnmálamönnum á vinstri væng um einokun sölusamtaka fisk- framleiðenda. Það voru liins vegar aldrei fluttar tillögur um breytingar og hafa þó allir hávaðaseggirnir komist til valda um lengri eða skemmri tíma. Okkur hinum fannst margt brýnna en að hrófla við þeim sölusamtökum, sem höfðu unnið sér ágætan sess erlendis. Samkeppni pfnir verð niður. Samkeppni í inn- flutningi kemur íslenskum neytendum til góða. En ef enginn kvartar, hvers vegna ættum við að amast við því að innlendir framleiðend- ur fyrir erlenda markaði haldi verðinu uppi með samtökum og skipulagðri sölu? Ætli við verðum ekki að horfast f augu við það að mismunurinn á pólitík launþega hér og í nágrannalöndunum er sá helstur, að hér er engin áhersla lögð á hagsmuni neytenda. Allir eru að hugsa um hag framleiðenda. Ef þeir ekki standast innlenda eða erlenda samkeppni verður að vernda þá og bæta þeim upp mis- muninn. Og svo þurfa launþegar að auki að vera verndaðir fyrir öllum áföllum, verðlækk- un íslenskra afurða og verðhækkun erlends varnings. Hið fullkomna athafnafrelsi kann að eiga dálítið langt í larid í svona umhverfi. 6 VÍSBENDING

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.