Vísbending


Vísbending - 19.12.1994, Blaðsíða 9

Vísbending - 19.12.1994, Blaðsíða 9
inni og oft svolítið af peningum - kannski minnst af því síðasttalda. En ekki síst, áræði, dugnað og framtak. Þetta má ekki hefta. Þeir sem taka ákvarðanir á sviði efnahagsmála verða sífellt að hafa í huga að þeir eru að fást við fólk. Miðstýring kommúnismans tók ekki tillit til þessarar staðreyndar. Það sýndi sig að sú vélræna skipan mála gerir það að verkum að eitthvað deyr í fólki. Þegar þú lítur til baka, er það þá eitthvað eitt, sem stendur upp úr sem íslenskt hag- stjómarvandamál? Það er enginn vafi á því að það er hinn langvarandi og viðvarandi taprekstur íslenskra fyrirtækja, sem stöðugt heimtar meira tjár- magn til að halda sér gangandi. Tapreksturinn er svelgurinn mikli, sem gleypir allt spariféð, gleypir erlent sparifé, gerir að engu allar efna- hagsráðstafanir, er óseðjandi hít. Taprekstur verður ekki læknaður með því að ausa meira fé í svelg taprekstrarins. Taprekstur stafar ekki af háum vöxtum. Háir vextir stafa af taprekstr- inum. Það er ekki reksturinn sem á að ráða vöxtunum. Það eru vextirnir, sem eiga að ráða því hvað er vænlegt að leggja fé í hverju sinni. Þessu er yfirleitt öllu snúið við í umræðu hér á landi. Þetta er stærsta vandamál íslensks atvinnulífs: Það kverkatak, sem hagsmuna- samtökin, einkum launþegasamtökin, hafa á því. Á síðustu árurn hafa framleiðslufyrirtækin orðið gjaldþrota í hópum í kringum allt land, jafnt í sjávarútvegi sem í öðrum greinum. Sum gjaldþrotin eru risavaxin, milljarða töp. Á fá- um árum hefur atvinnulífið tapað tugum millj- arða króna, en hefur verið haldið við með sí- felldum fjáraustri úr opinberum sjóðum og bönkunum. Hvaðan kemur þessi flóðbylgja fjár, sem verið er að sólunda? Ekki kemur hún úr fram- leiðslunni. Fyrirtækin greiða mönnum tekjur, tugi milljarða umfram verðmæti framleiddra afurða, aðallega til launþeganna. Sumt af þessu fé kemur af skattpeningum landsmanna, sumt af sparifé þeirra, en stór hluti er erlent lánsfé sem að lokum verður að endurgreiða. Við höldum samt áfram að eyða um efni fram. I Sovétríkjunum er hugmyndafræði kommúnismans dauð. En leifar hennar lifa góðu lífi í starfsemi íslenskra launþega- samtaka, sem enn ástunda stéttabaráttu í stað stéttasamvinnu, kyrkja atvinnulífið í stað þess að hlúa að því. Á meðan við fáumst ekki til að samstilla kraftana munum við ekki fá þann hámarksafrakstur af iðju okkar, hugviti og striti, sem landið okkar hefur upp á að bjóða. Mér þykir rétt að geta þess, að samning þessara viðtala fór þannig fram, að ég heimsótti viðmælendur mína báða og tók niður punkta úr samtölum okkar. Við vinnslu féll þá sumt niður, sem borið hafði á góma, eins og gengur. Viðtölin voru síðan borin undir viðmælendur og samþykktu þeir báðir þau í þeim búningi sem hér birtist. Þeir sem þekkja þá Benjamín og Olaf munu þó fljótir að sjá að orðalagið er freniur mitt en þeirra. I síðari hluta viðtalsins við dr. Benjamín eru felldar inn í samtal okkar orðréttar til- vitnanir í ritverk ltans. Hann las það einnig yfir og gaf santþykki sitt við framsetningu þeirra með þessum hætti. Olafur Hannibalsson Að komast á lagið JSTj Greiðsluþjónusta Sparisjóðurinn býður þér nú Greiðsluþjónustu, sem er þægileg og örugg leið í fjármálum þínum og heimilisins. Greiðsluþjónustan er íjölþætt þjónusta sem kemur lagi á fjármál ólíkra viðskiptavina sparisjóðsins. Greiðsluþjónustan sparar þér tfma og fyrirhöfn, skilvís greiðsla reikninga verður í takt við útgjöld sem hægt er að jafna yfir árið ef þess gerist þörf. Þessi þjónusta hentar þeim sem leiðist að standa í biðröðum um hver mánaðamót og láta reikninga ekki slá sig út af laginu. SPARIS J ÓÐURINN -fyrirþig ogþína VÍSBENDING 9

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.