Vísbending - 20.12.1996, Side 27
ÍSBENDING
er að halda gæðadagbækur og verkbækur þar sem margir
aðilar koma að verki. Það sem helst hefur verið fundið að
meðhópvinnukerfierhversureksturþeirraerfrekurábúnað.
Pappírslaus veruleiki?
Löngum hefur það verið draumurinn að tölvurnar
útrými pappírnum af skrifstofunni en það hefur látið
á sér standa að sá draumur rætist.
Líklega er órökrétt að ætlast til þess að
allur pappír hverfi úr daglegri notkun
en vissulega er hægt að draga veru-
lega úr notkun hans. Tækin hafa svo
sem verið til í einhver ár en þau hafa
verið annaðhvort dýr eða óþjál. Þetta
hefur eillhvað breyst nú upp á síð-
kastið. Hægt er með skönnun að lesa
inn upplýsingar af pappír og vista á
tölvudiski. Hægt er að fá handhæga
skanna sem henta mjög vel til að lesa
inn skjöl sem berast inn á skrifborðið.
Hægt er að vista skjal sem mynd og
einnigerhægtaðþýðaþaðyfirátölvu-
tækt form, þannig að innihaldið verði
texti og myndir sem hægt er að nota í
ritvinnslu og töflureikni hjá notanda. Ef textaskjal er vistað
sem mynd er það mun plássfrekara en ef aðeins textinn í
sama skjalinu er vistaður. Því getur það skipt sköpum ef
hægt er að þýða textann fyrir geymslu. Tölvuþýðingin
(„Optical Character Recognition") hefur tekið miklum fram-
förum á síðustu árum og fer að verða nothæf. Aðal-
vandamáiið hér á landi eru þó séríslensku stafirnirog lítill
stuðningur framleiðenda forritanna við ástkæra ylhýra
málið. Einnig gelur getur það verið vandamál ef stafir eru
of líkir en þannig getur t.d. „ó“ ruglast saman við „ð“ í
tölvuþýðingu ef frumritið er lélegt. Þetta stendur þó von-
andi til bóta.
Tölvupóstur er ágætis leið til að draga úr notkun pappírs
á skrifstofunni. Notkun tölvupósts hefurfærst mikið í auk-
ana og á örugglega eftir að draga úr pappírsnotkun.
Með strikamerkingum og handtölvum hefur pappír hjá
sölumönnum og á vörulagerum verið að miklu leyti útrýmt.
Skjalaskipti með tölvum (SMT eða „Electronic Data
Interchange") er samheiti fyrir skeytastaðla sem notaðir
eru í tölvusamskiptum. Sem dæmi um þetta má nefna að
hægt er að senda inn tollskýrslu samkvæmt SMT-staðli og
reyndar verður einungis hægt að nota SMT-skeyti frá og
með I .janúarárið2000tilaðtollafgreiðavörurhérálandi,
samkvæmt nýsamþykktum tollalögum. Notkun SMT mun
í framtíðinni draga verulega úr pappírsnotkun.
Internetið springur út
Intemetið hefur verið talið eitt af mestu framfaraskrefum
aldarinnar. Hvort svo er skal ósagt látið en það hefur
vissulega haft verulega þýðingu nú á allra síðustu árunt.
Líta má á Internetið sem gagnabanka og samskiptatæki. Á
Netinuerhægtaðfinnaótrúlegustuupplýsingarogallmargt
af því efni sem þar er að finna er ókeypis eða mjög ódýrt.
Á Netinu er hægt að finna spjallhópa um hin ýmsu mál, þótt
auðvitað séu þeir misjafnir að gæðum. Einnig er hægt að
fylgjast með atburðum og fréttum á Netinu, auk þess er
hægt er að skiptast á tölvupósti um það. Til eru tæki á
Internetinu sem gera það að símtæki og er með því hægt að
hringja í aðra sem hafa samskonar tæki og nemur kostnað-
urinn aldrei meiru en innlenda símakostnaðinum, jafnvel
þótt mótaðilinn sé í Sidney í Ástralíu. Helsti gallinn við
Internetið er hversu hægvirkt það er. Þó að notandi hafi
hraðvirka tölvu og mótald er hraðinn samt ekki nægur. Þvf
veldur aðallega tengingin við útlönd en mest öll umferðin
fráíslandi ferumeinasímarás til Svíþjóðar. Nýiraðilareru
þó að koma inn á markaðinn og aukin samkeppni á þessu
sviði mun væntanlega koma notendunum til góða.
Að margra áliti er
Internetið stórmarkaður
framtíðarinnar. Þar verða
kynntar vörur og þjón-
usta sem notendur geta
fræðst um og keypt. Til
þessa hafa ýmis mál
tafið þessa þróun, m.a.
öryggi greiðslnaen ekki
hefurveriðtaliðóhættað
greiða fyrir vöru á Inter-
netinu með greiðslukorti
vegna hættunnar á því að
óprúttniraðilargeti kom-
ið höndum yfirkortaupp-
lýsingamar og nýtt þær.
Unnið er að því að leysa
þetta vandamál og gæti það orðið til þess að þessi gríðarstóri
markaður opnist.
Intranetið er afsprengi
Internetið hefur eignast afkvæmi, það heitir Intranet.
Intranetið er Internet innan fyrirtækisins. í mæltu máli
þýðirþetta aðgögn innanfyrirtækisinseru settuppíheima-
síður og þeim er síðan viðhaldið eins og þörf þy kir. Notendur
innan fyrirtækisins geta síðan tengst Intranetinu á svipaðan
hátt og Internetinu og skoðað gögnin með sömu rápurum
(„Browsers") og notaðir eru á Internetinu.
Nýjungamar koma fram
Endalaust koma fram nýjungar í tölvuheiminum. Mikið
er rætt um Java forritunarmálið, sem þróað er af Sun
tölvufyrirtækinu og er mikið notað í tengslum við Inter-
netið. Javaerhlutbundiðforritunarmál. Réttaraværi senni-
lega að segja að Java væri safn smáforrita sem hægt er að
tengja saman á ýmsan hátt og virkja sem eitt.
Nettöl vur er önnur nýjung en þar er um að ræða einfaldar
og ódýrar tölvur sem eru gjarnan disklausar. Þessar tölvur
geta tengst Internetinu og unnið á því en geymsla gagna í
tölvunni er ekki fyrir hendi. Búist er við að þessar tölvur
muni verða vinsælar meðal fyrirtækja sem munu í auknum
mæli setja upp sitt eigið Intranet og nota slíkar tölvur til að
starfsfólk geti unnið á gögnum fyrirtækisins. Þannig gæti
gjaldkeri í banka haft slíka nettölvu og framkvæmt allar
venjulegar aðgerðir í gengum Intranet bankans. Bankinn
sleppur þá við að hafa einkatölvur hjá gjaldkerunum og
sparar sér þannig stórfé, því að fyrir utan það að einkatöl van
getur verið allt að helmingi dýrari en nettölvan, þá er hug-
búnaðurinn allurá Intranetinu og því þarf ekki að kaupa og
uppfæra hugbúnað á hverri tölvu eins og nú er.
Heimildir: Financial Times, WallStreetJournal, PCMagazine, Business Week
og Viðskiptavakinn.
27