Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1940, Qupperneq 23

Frjáls verslun - 01.04.1940, Qupperneq 23
Atburðir síðustu vikna hafa orðið íslendingum ærið umhugsunarefni. Þótt ekki heyrist hingað skotdrunui' eða herblástur verðum við þó tilfinnanlega varir við þann glundroða, sem nú ríkir í Evrópu. Á Reykjavíkur- höfn liggja nú nokkur flóttaskip, sem eru 1 svipinn föð- urlandslaus, og í Kaupmannahöfn er eitt íslenzkt skip, „Gullfoss", sem ekkert fréttist af, og bannað er að hreyfa sig þaðan. Aldagömul bönd viðskipta og sam- stai'fs við Noreg og Danmörku, sem ekki hafa slitnað öldum saman, eru nú í skjótri svipan rofin. Hér sækja nýir örðugleikar að íslenzkri verzlunarstétt, en ef hún fær skapleg skilyrði af hálfu þess opinbera, sem nú hef- ir tögl og hagldir á málefnum hennai', þá mun hún af megni reyna að mæta þessum erfiðleikum og finna ný sund í stað þeirra, sem nú eru lokuð. # Frjáls vei'zlun birtir nú mynd eftir Halldór Pétursson á forsíðunni, og er hún af ,,flóttaskipum“ þeim, sem ný- komin eru til hafnarinnar í Reykjavík. Koma slikra skipa, sem taka á sig langa króka um vegu hafsins til þess að flýja til hlutlausra landa, sýnir bezt hið full- komna stjórnleysi í Evrópu, en það kemur þungt niður á viðskiptum og siglingum. Á síðasta móti Alþjóðaverzl- unarráðsins, sem haldið var í Kaupmannahöfn var ein- róma samþykkt ályktun um að ráðið óskaði eftir að friður mætti haldast. Verzlunarmenn allra landa óska eftir friði, því aðeins í friði geta viðskipti dafnað. Það leikur ekki á tveim tungum, að sá glundroði og þau höft, sem afskiptasamar ríkisstjórnir höfðu af skammsýni leitt yfir viðskipti landanna eiga sinn mikla þátt í því hvernig komið er. * Nathanael Móesesson kaupm. á Þingeyri átti í þess- um mánuði 25 ára verzlunarafmæli. N. M. er velþekktur kaupmaður í byggðarlagi sínu, og óskar „Frjáls verzl- un“ honum til hamingju. * Steindór Gunnarsson prentsmiðjustjóri á heiðurinn af því að hafa búið til hina fyrstu íslenzku viðskiptaskrá. Áður var gefið út rit svipaðs eðlis á erlendu máli, en það var hin mesta nauðsyn að fá innlenda bók, sem jafnframt getur verið erlendum kaupsýslumönnum til gagns. Þriðji árgangur viðskiptaskrárinnar er kominn út fyrir nokkru, og er stærri en hin fyrri eða full- ar 35 arkir. Ekki verður annað séð, en vel sé fylgzt með, og að upplýsingar bókarinnar séu réttar, en það er höfuðkrafan, sem gera verður til slíkrar bókar, að hún sé áreiðanleg. Til þess að gefa hugmynd um hve víðtækt er svið Viðskiptaskrárinnai' má nefna, að hún gefur m. a. upplýsingar um 6043 nöfn og heimilisföng, 2946 fyr- irtæki og einstaklinga, sem koma við íslenzk viðskipti, FRJÁLS VERZLUN „FRJÁLS VERZLU N“ Útgefandi: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. — Formaður: Friðþjófur O. Johnson. Ritstjóri: Einar Ásmundsson. Ritnefnd: Adolf Björnsson, Björn Ólafsson, Pétur Ólafsson, Pétur O. Johnson, Vilhjálmur Þ. Gíslason. — Skrifstofa: Mjólkurfélagshúsinu, 2. hæð, herbergi 16—17. — Áskriftargjald: 5 krónur á ári, 12 hefti. — Lausa- sala: 0,50 aura heftið. — Prentsmiðja: ísafoldar- prentsmiðja h.f. 422 skip eða allan skipastól landsins, og svo mætti lengi telja. Enginn kaupsýslumaður, sem eiga vill aðgang að fullkomnum upplýsingum um viðskiptalíf landsins get- um leitt þessa bók hjá sér, og vill „Frjáls verzlun11 ein- dregið benda lesöndum sinum á hana. * í þessu hefti birtist frásögn Gísla J. Johnsen um verzl- unina i Vestmannaeyjum um síðastliðin aldamót. Þessi frásögn er frá þeim tíma þegar íslenzkir menn voru að taka verzlunina í sínar hendur og ei'lenda selstöðuverzl- unin hvarf víðasthvar á landinu fyrir forgöngu kaup- mannastéttarinnar. Þegar innlendir menn fengu bolmagn til þess að stofna verzlanir, sýndi það sig þegar, að þeir höfðu betri skilyrði til að reka viðskipti vegna þekking- ar sinnar á landi og lýð, enda var þá líka skammt að bíða stórfelldra breytinga til bóta á framleiðslu lands- manna, jafnframt því sem verzlunin sjálf varð hagstæð. * Verzlunarmenn biðu þess með óþreyju hvað yrði um frumvarp Thor Thors á Alþingi um launauppbót skrif- stofu- og verzlunarfólks. Almennt vai búist við að þetta réttlætismál fengi greiðan framgang, en á síðustu stundu tókst nokkrum mönnum úr Framsóknarflokkn, um, að koma því í bili fyrir kattanef, en þetta voru þeir sömu menn, sem lengst af telja það skyldu sína að vera andvígir öllu, sem borið er fram að tilhlutun verzlunarstéttarinnar. En hitt er víst að þótt tekist hafi að tefja þetta mál í bili, nær það síðar frarn að g-anga, þegar Tímamenn ekki hafa tækifæri til að beita bolabrögðum og málþófi. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur mun gera sitt til að bæta úr því, að ekki fékkst lögfest kaupuppbót til verzlunarmanna, en vitaskuld getur V. R. ekki náð út yfir það svið, sem lögunum var ætlað að ná, og er því nauðsyn að frumvarp T. T. verði endurvakið þegar á næsta Alþingi. * Á sínum tíma gengust bæjarstjórnin í Reykjavík, Hafnarfirði og Akureyri fyrir samningu og útgáfu sögu þessara bæjarfélaga. Ýms héruð og stéttir í landinu hafa gengist fyrir því að skráð yrði saga þeirra. Verzlunarstéttin ætti að hefjast handa um að fá góðan sagnfræðing til að rita sögu íslenzkrar verzlunar og gera það meðan enn er tækifæri til að fá upplýsingar frá ýmsum þeim, sem stóðu framarlega i fylkingu ísl. verzlunar þegar hún varð innlend. 23

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.