Frjáls verslun - 01.02.1954, Page 4
*
Heinz Nordhoíf —
ATHAFNAMAÐURINN
AÐ BAKI
VOLKSWAGEN
*
Endurreisn efnahagslífs Vestur-Þýzkalands el’tir
síðustu styrjöld gengur kraftaverki næst. Á sama tíma
og Austur Þjóðverjar eiga við mikinn skort að búa,
eru landar þeirra vestan járntjalds að undirbúa bvgg-
ingu 150 milljón dollara stálverksmiðju fyrir Ind-
verja; suður í Mexíkó eru þeir önnum kafnir við að
ganga frá mikilli sýningu á þýzkri framleiðslu og til
Brasilíu halda þeir í stórum hópum, jafnt verkfræð-
ingar sem kaupsýslumenn, til að leita nýrra viðskipta.
Stálverksmiðjur Rúrhéraðanna eru enn á ný orðnar
afkastamiklar, og borgir eins og Dússeldorf og Mún-
chen, þar sem íbúarnir urðu að láta hverjum degi
nægja sínar þjáningar fyrir nokkrum árum, státa nú
nýjum hótelbyggingum og ört vaxandi athafnalífi.
Efnahagsmálaráðherra Vestur-Þýzkalands, Ludvvig Er-
hard, á mikinn þátt í hinni hröðu þróun í efnahagslífi
landsins, en hann hefur verið ötull talsmaður hins
frjálsa framtaks. „Gefið fólkinu og fjármagninu frjáls-
ræði, og með því skapast öflugt þjóðfélag,“ var Er-
hard lengi búinn að prédika, og þessi „lyfseðill“ hans
hefur ráðið ótrúlega skjóta bót á því alvarlega meini,
sem þjáði þýzkt efnahagslíf að styrjöldinni afstaðinni.
Bretar höfnuðu,
Hvergi hefur hin öra nýsköpun Vestur-Þýzkalands
komið eins berlega í ljós og hjá fremstu bifreiðaverk-
smiðjum landsins, Volkswagenwerk, sem framleiða
hina velþekktu Volkswagen bíla. Sá, sem stjórnar þessu
mikla fyrirtæki, heitir Heinz Nordhoff, 55 ára gamall
verkfræðingur, sem segist hafa alla tíð haft sérstak-
an áhuga á bílasmíði. Fyrir sex árum síðan má segja,
að bæði Volkswagen og Nordhoff hafi verið illa á
sig komnir eftir fall Þýzkalands.
Heinz Nordhoff ásamt nolckrum af þeim 180 þúsundum bifreiða.
sem Volkswagen framleiddu s.l. ár.
Bygging Volkswagenverksmiðjanna var liafin árið
1938 að skipan Hitlers í borginni Wolfsburg, um 160
km. vestur af Berlín. Var ætlunin að framleiða ódýr-
an „alþýðuvagn“, sem almenningur hefði tök á að
eignast. Fyrsti bíllinn, sem verksmiðjan framleiddi,
var tilbúinn 1940. í síðustu styrjöld var rösklega
helmingur verksmiðjanna eyðilagður í loftárásum
Bandamanna. Eftir uppgjöf Þjóðverja var hluti af
verksmiðjubyggingunum notaður sem bifreiðaverk-
stæði fyrir brezka hernámsliðið. Þau ta-ki verksmiðj-
anna, sem ekki var not fyrir í þessu augnamiði, voru
boðin brezkum bifreiðaframleiðendum, en þeir höfðu
ekki minnsta áhuga fyrir þeim.
i
Hóf starfið með hálfum huga.
Nordhoff var lítið betur á sig kominn en Volks-
wagen-verksmiðjurnar. Hann hafði ráðist til Adam
Opel A.G., dótturfyrirtækis General Motors, árið 1929,
verið nokkurn tíma í Bandaríkjunum hjá því fyrir-
tæki, en 1942 gerður að forstjóra stærstu vörubíla-
verksmiðju Evrópu, Ojxelverksmiðjunnar í Branden-
burg. í styrjaldarlok var liann atvinnulaus og hafði
auk þess misst mest allar eigtir sínar. Nordhoff varð
4
FRJÁLS vf.rzlun