Frjáls verslun - 01.02.1954, Síða 19
byrja með var verzlað með alls konar nýlendu- og
hreinlætisvörur, sælgæli. tóbaksvörur, skrifstofuvélar
og skrifstofuhúsgögn. Eftir að ríkiseinkasala á tó-
baksvörum var selt á laggirnar, misstu mörg fyrirtæk-
in spón úr askinum. Síðla árs 1931 komu svo innflutn-
ingshöftin, sem héldust óslitið fram að síðustu heims-
styrjöld. Var róðurinn þungur hjá hinni íslenzku
verzlunarstétt á þessum haftastefnuárum, og einungis
fyrir dugnað og þraulseigju fyrirtækjanna tókst að
viðhalda starfseminni, þótt oft lægi \ið, að gefast
yrði upp.
H. Ólafsson & Bernhöft aflaði sér snemma góðra
umboða erlendis frá fyrir vörur, sem löngu eru heims-
kunnar fyrir gæði. Árið 1931 tók fyrirtækið þátl
í alþjóða sölusamkepjnii, sem hreinlætisvörufirmað
Colgates lét fara fram meðal umboðsmanna sinna í
52 löndum. Stóð sö]ukej)j)ni þessi yfir í þrjá mánuði.
og að þeim tíma liðnum \oru úrslitin gerð heyrum
kunn: íslenzka fyrirtækið H. Ólafsson & Bernhöft
fór með sigur af hólmi og fékk að launum heiðurs-
skjal ásamt fögrum, áletruðum silfurbikar, sem skip-
ar nú virðulegan sess á skrifstofunni í Hafnarstræti.
Þessi sigur íslenzks fvrirtækis í sölusamkeppni um
hreinlætisvörur verður að teljast hið ágætasta hrein-
lætisvottorð fyrir Islendinga og jafnframt prýðileg
landkynning, sem menn mega vera hrevknir af,
Þegar þeir frændurnir Cuido og Ólafur Haukur eru
sjjurðir um álit þeirra á verzlunarástandinu eins og
það er í dag, þá leggja þeir áherzlu á þá staðreynd, að
frjálsræðið, sem verzlunin hefur fengið í seinni tíð.
sé án efa spor í rétta átt — jafnvel þótt enn sé langt
í land með, að fullu verzlunarfrelsi sé náð, en það
hlýtur að vera hin langþráða ósk allra neytenda í
landinu, ekki síður en þeirra, er selja vöruna.
1' BJÁLS VERZLUN óskar þeim Ólafi og Guido og
slarfsfólki þeirra öllu lil hamingju með þann áfanga,
sem fyrirtækið H. Ólafsson & Bernhöft hefur náð á
undanförnum tultugu og fimm árum. Megi því vegna
vel um ókomin ár. — ns.
Skrifstofan í Hafnarstrœti 1«—12.
FRJÁLS VERZLUN
19