Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 3
veru hennar á augljósan og ódýran hátt. Iílutverk
auglýsingarinnar er að selja. Fallegar, listrænar aug-
lýsingar eru því miður ekki alltaf þær sem árangurs-
ríkastar verða.
Þróunin hefur verið sú, að hver ný auglýsing
leitast við að yfirgnæfa það sem fyrir er. Hún vill
vera betri þeim sem fyrir eru, hafa hærra, en þess
ber að gæta, að órói, yfirboð og hin stóru loforð
hafa sín takmörk. Svo virðist nú sem hápunkti
gagnkvæmra yfirboða sé náð, sem fyrirgangurinn
skírskoti ekki lengur til fólks. Þar á ég ekki við
gæðin, heldur uppbyggingu auglýsinganna. Og það
er fleira sem máli skiptir — skriftin, sú leturteg-
und sem notuð er, er t. d. mikilvæg. Hver letur-
gerð hefur sitt sérstaka svipmót, það er hennar að
segja frá og sannfæra, hún verður að laga sig eftir
öðrum hlutum auglýsingarinnar. Ekki má rugla
saman ólíkum skriftum eða notast við of margar
tegundir. Hér á landi er því miður um marga erfið-
leika í þessu efni. Prentsmiðjurnar eru fátækar af
hinum nýrri Ieturgerðum, og þótt þær eigi citthvað,
er sjaldan nema fáum stærðum fyrir að fara, svo
hættan á samsulli ólíkra og andstæðra skrifta er
alltaf til staðar. En því miður má ekki bara kenna
um fátækt og smæð prentsmiðjanna, heldur oft
vöntun á smekk og þekkingu við innkaup á letri.
Þetta veldur teiknurum hér miklum erfiðlcikum.
Einnig ber að gæta þess, að stærð auglýsingar-
innar er ekki það sem mestu máli skiptir, heldur
innihaldið og fyrirkomulag hennar. Hálfsiðuaug-
lýsing í dagblaði og jafnvel minni auglýsing, vel
gerð, hefur sama lesendafjölda og stundum meiri
en heilsíðuauglýsing, sem ekkert eða lítið er til
vandað.
Talað er um beinar og óbeinar auglýsingar. Bein-
ar auglýsingar eru t. d. pésar og bréf, sem send
eru beint til ákveðinna aðila, afmarkaðra hópa.
Lyfjafyrirtæki t. d. hefur venjulega ckki ástæðu til
að auglýsa lyf sín á almennum vettvangi, enda
bannað hjá fjölda þjóða, heldur senda þau lækn-
um og lyfjafræðingum beint upplýsingar um vörur
sínar. Beinar auglýsingar tíðkast mjög mikið er-
lendis og þykja gefa góða raun. Óbeinar auglýsing-
ar eru t. d. blaðaauglýsingar, plaköt, umbúðir og
útvarpsauglýsingar.
Blaðaauglýsingin skipar þegar veglegan sess í
viðskiptalífinu. Kostir hennar eru margir og aug-
ljósir, lilutfallslega lítill kostnaður við að ná til
stórs, öruggs hóps kaupenda. Hægt er að koma
henni á framfæri á stuttum tíma, hún getur birzt
berlin
ROMA
NEWYORK
Tilraunir til að samlaga skriitir „persónuleika" hinna ýmsu
borga
FRJÁLS VERZLUN
3