Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 14
Alvinnudeild Háskólans í aldarfjórðung Fyrsta tilraun löggjafarvaldsins til að koma á fót vísindarannsóknum á íslandi var sú, er Alþingi samþykkti lög árið 1935 um rannsóknir í þágu at- vinnuveganna við Háskóla íslands. Þeim iögum var breytt 1940 með lögum um náttúrurannsóknir, sem eru liin gildandi lög um rannsóknir í þágu at- vinnuveganna, ásamt lögum um rannsóknir og til- raunir í þágu landbúnaðarins, er samþykkt voru sama ár. Aldur Atvinnudeildar háskólans miðast þó ekki við þessar iagasetningar, heldur telzt starf hennar hefjast með því að hún flyzt í eigið hús á háskólalóðinni, en það hús hefur borið nafnið At- vinnudeild háskólans, og var raunar fyrir æði löngu ákveðið að miða aldur deildarinnar við það að hún flutti í húsið, sem var 17. september 1937. ýmsar ástæður lágu til þess, að aldarfjórðungs af- mælis deildarinnar var ekki minnzt fyrr en nú seinni hluta vetrar. Rannsóknaráð ríkisins var stofnað 1939 og var því falin yfirstjórn Atvinnudeildar háskólans, og þar hefur framkvæmdastjórn þess verið til húsa. Fjölgun starfsliðs Atvinnudeildar sýnir að nokkru vöxt hennar. Arið 1937 störfuðu við hana 18 sér- fræðingar og aðstoðarmenn, 33 árið 1948 og 54 árið 1962. En rannsóknastarfsemin hefur vaxið hæg- ar hér en víðast í nágrannalöndum, og er það ein- faldlega að rekja til þess, að fjárveitingar til rann- sókna hafa mikið til staðið í stað í mörg ár, verið h. u. b. 0,3% af þjóðarframleiðslunni á móti því að aðrar þjóðir telja nauðsynlegt að verja 2% af þjóðarframleiðslunni í þessu skyni. Lítið fé berst deildinni annarsstaðar frá en ríkinu. Ekki liðu mörg ár unz alltof þröngt varð í húsinu fyrir rannsókna- starfsemina. Fiskideildin fluttist og var nokkur ár í leiguhúsnæði úti í bæ, en eignaðist svo eigið stórglæsilegt nýtt hús við Skúlagötu, Byggingar- deild Iðnaðardeildar er nú í leiguhúsnæði, sem óvíst er, hve lengi fæst. En í gamla húsinu er samt þrengra en nokkru sinni áður. Nú á annað ár hef- ur verið unnið að hústeikningum fyrir Rannsókna- stofnun landbúnaðarins og þær verið sendar bygg- inganefnd. Reykjavíkurbær hefur úthlutað fyrir rannsóknastarfsemina 48 hekturum lands í útjaðri Reykjavíkur, á Keldnaholti, þar sem á að byggja landbúnaðarrannsóknahverfi framtíðarinnar. Og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um endurskipulagn- ingu rannsókna í þágu atvinnuveganna. Fislcirannsóknir voru hafnar hér við land upp úr síðustu alda- mótum á vegum ríkisstjórnarinnar í samráði við Alþjóðahafrannsóknaráðið. Sá maður, er vann mest og merkast starf á þessu sviði þá, var dr. Bjarni Sæmundsson, sem telja má meðal forustumanna fiskirannsókna í Evrópu. Þó telst, að kerfisbundn- ar rannsóknir hefjist, er dr. Árni Friðriksson geng- ur árið 1931 í þjónustu Fiskifélags íslands, sem ann- aðist þessar rannsóknir unz Fiskideildin var stofn- uð 1937. Tók þá dr. Árni við forustu hennar og gegndi því unz hann 1954 gerðist framkvæmdastjóri Alþjóðahafrannsóknaráðsins, en síðan hefur Jón Jónsson fiskifræðingur veitt deildinni forstöðu. I vetur eru starfandi við deildina 9 sérfræðingar og 15 aðstoðarmenn. Meginverkefni Fiskideildar er að afla nauðyn- legrar þekkingar til skynsamlegrar nýtingar hinna einstöku fiskstofna og annars dýralífs sjávarins, með kerfisbundnum athugunum á eðlisháttum stofnsins sjálfs, áhrifum umhverfisins, áhrifum veið- anna á stofninn, kerfisbundinni leit nýrra fiskimiða og fiskileit á þekktum veiðisvæðum. Rannsóknir á umhverfi fiskanna eru aðallega í athugunum á eðlisfræðilegu ástandi sjávarins, plöntu- og dýra- svifi í sjónum. Rannsóknaleiðangrar hafa margir verið farnir á vegum Fiskideildar og þannig fengizt mikilsverðar upplýsingar um ástand og eðli sjávar og sam- band þess við útbreiðslu og göngur fiska, t. d. síldarinnar. Plöntu- og dýrasvif hafa verið athuguð kerfisbundið. Framleiðni hinna ýmsu hafsvæða hef- ur t. d. verið rannsökuð með geislavirku kolefni og áformaðar rannsóknir með aðstoð geislavirkra 14 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.