Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 13
Gíslason, en varafulltrúar Páll Þorgeirsson og Sig-
fús Bjarnasn.
Á fundinum var samþykkt ályktun um að skora
á stjórn Verzlunarráðs íslands að kjósa nefnd, sem
í ættu sæti fulltrúar frá Félagi íslenzkra iðnrekenda,
Kaupmannasamtökum Islands og Félagi íslenzkra
stórkaupmanna, til að endurskoða lög Verzlunarráðs
íslands, varðandi tilgang þess og uppbyggingu.
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fund-
inum:
1. Verzlunarbanki íslands hf.
Aðalfundur F. í. S., haldinn 29. marz 1963, ítrek-
ar fyrri áskoranir til stjórnar Seðlabankans og rík-
isstjórnarinnar um að þessir aðilar hlut.ist til um
að Verzlunarbanka íslands hf. verði veitt réttindi
til verzlunar með erlendan gjaldeyri hið hið allra
fyrsta.
2. Verðlagsmól
Aðalfundur F. í. S., haldinn 29. marz 1963, vill
minna á þá staðreynd, að núverandi ríkisstjórn
hefur lýst því yfir sem stefnu sinni, að gildandi
verðlagshömlur beri að afnema. Fyrir því beinir
fundurinn þeirri árskorun til ríkisstjórnarinnar, að
hún láti ekki hjá líða að framfylgja þessu stefnu-
skrármáli sínu án tafar.
3. Afnám á einkasölum
Aðalfundur F. í. S., haldinn 29. marz 1963 leyfir
sér að ítreka fyrri ályktanir um að leggja beri nið-
ur einkasölu á tóbaksvörum, viðtækjum, eldspýt-
um, bökunardropum, hárvötnum, ilmvötnum o. fl.,
þar sem líklegt er, að einkafyrirtæki mundu geta
annazt innflutning og dreifingu þessara vöruteg-
unda með mun lægri dreifingarkostnaði til hags-
bóta fyrir neytendur.
í fundarlok var fráfarandi formanni félagsins,
Kristjáni G. Gíslasyni, þökkuð mjög mikil og ár-
angursrík störf í þágu félagsins svo og Friðrik Sig-
urbjörnssyni.
Jafnframt var fundarmönnum þökkuð góð fund-
arsókn og fundarstjóra, Þorsteini Bernharðssyni,
þökkuð góð fundarstjórn.
Rétt er að geta þess, að þetta var 35. aðalfund-
ur Félags íslenzkra stórkaupmanna, en félagið verð-
ur 35 ára þann 21. maí nk.
T ollvörugey mslan
Framhald af bls. 11
fyrir að 600 fermetrar af húsinu verði einangrað
og upphitað. Byggingarkostnaður hússins verður
þannig 523,00 kr. pr. m3, og álít ég það mjög skap-
legt, sérstaklega þegar þess er gætt að grunnurinn
var mjög erfiður. Yta þurfti úr hornum ea. 3000
rúmmetrum af ónýtum jarðvegi og fylla upp aftur
9155 rúmmetra. Kostaði þetta samanlagt um
782.000,00 kr. Auk þess voru svo undirstöður all-
dýrar, þar sem þær voru allt upp í fjögra metra
háar. Má hiklaust telja að liúsið hafi orðið 5—600
þús. kr. dýrara vegna halla á lóðinni og hins slæma
botns.
í umræddri kostnaðar- og rekstursáætlun er gert
ráð fyrir að bygging fyrir tollgæzlumenn kosti
675.000,00 kr. Athafnasvæði fyrir framan húsið
4.082.000,00 kr., og tvö st. forklyftara til að ferma
og afferma bíla og annast flutninga utanhúss muni
kosta 650.000,00 kr. Uppdrættir af húsi tollgæzlu-
mannanna hafa nú verið samþykktir af tollgæzlu-
stjóra og verður sú framkvæmd boðin út næstu
daga.
Samanlagður kostnaður við fyrsta áfanga er þann-
ig áætlaður 11.762.000,00 kr. Vonast ég til að sú
áætlun sé nærri lagi, cnda þegar komin nokkur
reynsla á hana. Eftir að áætlunin var gerð hafa
verið boðnar út liurðir og raflögn í húsið og enn-
fremur ýtuvinna og uppfylling athafnasvæðisins
sunnan við það. Samanlagður tilboðskostnaður í
þessi verk er 1.591.184,00 kr., en samkvæmt áætl-
uninni hefðu þær átt að kosta 1.663.000,00 kr., eða
72.000,00 kr. meira.
Ég skal svo ekki þreyta ykkur með lengri ræðu
að sinni. Ég er að sjálfsögðu reiðubúinn til að
svara fyrirspurnum ef þess verður óskað. Uppdrætt-
ir af mannvirkinu liggja hér frammi, og er ég fús til
að skýra þá fyrir þeim, sem áhuga hafa á því hér
á eftir.
Ég vil svo Ijúka máli mínu með því að þakka
stjórn Tollvörugeymslunnar fyrir mjög ánægjulega
samvinnu og vonast til að svo megi áfram verða.
Lítill sonur: „Mamma fór niður til að kaupa
skammbyssu.“
Gesturinn: „Sagði pabbi þinn henni, hveða teg-
und hún skyldi kaupa?“
Sonurinn: „Nei, veit ekki einu sinni, að hún
ætlar að skjóta hann.“
FRJÁLS VERZLUN
13