Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 30

Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 30
þar hafði orðið harður aðgangur milli manns og dýrs, en það síðarnefnda þó borið sigur úr býtum. Hræið af manninum fannst þar skammt frá og heitir þar Krossvarða. Hér eftir eru litlar líkur til að Reykjaheiði verði jafn sögurík heiðarslóð sem verið hefur fram eftir öldum. Nú er vegur að mestu aflagður þar nema hvað ferðalangar fara hann sér til gamans um há- sumarleytið. Góður akvegur er kominn fyrir Tjör- nes og ekki horfur á öðru en að þar verði franitíðar- leiðin, jafnt að sumri sem vetri. Reykjaheiði lifir því á fornri frægð — og henni illri. Elzta fyrirtæki heims Elzta fyrirtæki, sem nú er starfandi í heiminum er vafalaust sænska fyrirtækið Stora Kopparberg Bcrgslags Aktiebolag, sem rekur sögu sína allt aft- ur til ársins 1288 og jafnvel ekki örgrannt um, að það sé eilítið eldra. Stora Kopparberg var í fyrstu eingöngu kopar- framleiðandi og átti mikinn þátt í pólitísku veldi Svía í Evrópu miðalda. Þannig gerði t. d. gróðinn af Stora Kopparberg Gústaf Adolf, Svíakonungi, kleyft að taka þátt í Þrjátíu ára styrjöldinni 1618— 1648. í byrjun 19. aldarinnar minnkaði mikilvægi kop- arsins og Stora Kopparberg sneri sér að öðrum hlut- um. Nú er fyrirtækið stærsti rafmagnsframleiðandi í Svíþjóð, stór framleiðandi af dagblaðapappír, sem það flytur út til um 40 landa, hefur með höndum mikla verzlun með mjólkur- og aðrar landbúnaðar- afurðir, stærsti stálframleiðandi Svíþjóðar og hefur miklu hlutverki að gegna í efnaiðnaði landsmanna. En þrátt fyrir aldur sinn heldur Stora Koppar- berg enn áfram að færa út kvíarnar og hefur þegar byggt nokkrar verksmiðjur erlendis, auk þess sem það hefur miklar tekjur af því að leyfa fyrirtækj- um víðs vegar um heim að framleiða ýmsar vélar til sérstakra nota, sem fyrirtækið hefur einkaleyfi á. Það má því með sanni segja að þótt aldurinn sé orðinn nokkuð hár skortir Stora Kopparberg ekki lífskraftinn. ★ Auglýsingar hér og erlendis Framh. af bls. 6 menn í ríkara mæli til fyrirlestrahalds. Efna til sýn- inga erlendra og innlendra. Efla þarf þann vísi, sem nú er í Handíðaskólanum að fagskóla, i auglýs- ingagerð, jafnvel styrkja nemendur til utanferða, því eins og ástandið er hér, er fátt um að vera í faginu. Stuðla þarf að því að meir verði efnt til samkeppna, þar sem slíkt stuðlar að heilbrigðum metnaði. Ættu þar stærri fyrirtæki og hið opinbera að gangast fyrir að verðlauna eða veita viðurkenn- ingu verzlunum sem beztar útstillingar hafa, verð- launa góðar auglýsingar, auglýsingapésa, og svo mætti lengi telja. Gera yfirleitt allt sem til örvunar yrði. Síðan en ekki sízt að stuðla að því, að hér verði gerð ýtarleg markaðskönnun. Sagt hefur verið að höfuðverkefni auglýsingar- innar, þjóðfélagslegt verkefni hennar sé að gera menn óánægða með það sem þeir þegar hafa, og væru þeir sem að þessu vinna því hálfgerðir skað- semdarmenn, en því verður að vísa á bug. Góðir auglýsingamenn eru hinir óþekktu og oft nafn- lausu aðilar, sem stuðla að eðlilegum framförum, þjónar viðskiptalífsins, sem sjá um að vélin hakli áfram gangi sínum. 011 góð fyrirtæki eiga að vera sér meðvitandi um það hlutverk sem þau gegna, að það, sem þau auglýsa sé góð vara, markaðshæf vara og hlýða þeim reglum sem leiða til árangurs. Meðal þessara reglna er krafan um sannleika í auglýsingum, því hann tryggir helzt árangur sem getur orðið til fram- búðar, og það skiptir máli. Vara verður ekki dýrari við það að vera auglýst, heldur ódýrari, og því meiri sem veltan er, því meir aukast möguleikarnir á að framleiða vöruna á hagnýtari og einfaldan hátt, og þar með að gera hana neytendum ódýrari. Lélegar auglýsingar eru dýrar, ósannar, fjárhagslegt sjálfsmorð. Góðar auglýsingar aftur á móti þjóna bæði aug- lýsendum og neytendum. Fréttamaður frá Stjörnunni átti stutt viðtal við dóttur kunns borgara, og hún var komin af létt- asta skeiði. „Er það ekki rétt eftir haft, ungfrú Elísabet, að þér ætlið að fara að giftast á næstunni?“ „O, nei, ekki stendur það nú heima. En ég er engu að siður ósköp þakklát fyrir orðróminn.“ 30 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.