Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.04.1963, Blaðsíða 6
lýsingafyrirtækjum þar sem þeir vinna ásamt fjölda annarra fagmanna. Til eru dæmi þess að teiknarar vinni að teikningum hjá slíkum fyrirtækjum árum saman án þess að notaður sé nokkur hlutur úr vinnu þeirra og án þess að fundið sé að kunnáttu þeirra. Út úr svona samvinnu eins og tíðkast hjá þessum fyrirtækjum geta komið góðir hlutir frá listrænu sjónarmiði, en aðallega er þó útkoman sú, að þáð eru hlutir, sem selja og falla í „smekk“ neyt- enda. Mjög margir teiknarar, sérstaklega í Vestur- Evrópu, eru þeirrar skoðunar að niðurstöður mark- aðs- og auglýsingakannana verki stöðvandi á frum- legar hugmyndir teiknaranna og niðurstaðan verði ópersónuleg fjölda-auglýsingagerð. Mörg fyrirtæki hafa því reynt nú á síðustu árum, að samræma þessi sjónarmið, þar sem listamönnum er gefið frelsi innan viss ramma ,og hefur sá ár- angur orðið góður í mörgum tilfellum. Stór fyrirtæki bæði hér og erlendis, sem áður auglýstu ekkert eða mjög lítið, eru nú tilneydd vegna vaxandi samkeppni og breyttra markaðsvið- horfa að hefja skipulagða auglýsingastarfsemi. Önn- ur fyrirtæki hafa orðið að breyta sinni starfsemi, og í mörgum tilfellum gjörbreyta. Má í því sam- bandi nefna Volkswagcnverksmiðjurnar, sem til árs- ins 1957 notuðust við auglýsingar sitt úr hverri áttinni, oft ekki slæmar, en ósamræmdar. Ýmsar ástæður kunna að liggja til þess að fyrirtækið breytti um auglýsingar og líklegt að samkeppni smábílaframleiðenda eins og t. d. Renault hafi valdið þar um. Árið 1958 koma þeir með gjörsam- lega nýjan svip á auglýsingar sínar og hafa síðan verið í fremstu röð. Annað þekkt fyrirtæki, Olivetti, hefur ávallt gætt vel að auglýsingum sínum, og eru þær ekki fáar viðurkenningarnar, sem fyrirtækið og listamenn þess hafa fengið. Sú auglýsingaherferð á meginlandi Evrópu nú á seinasta ári, sem einna mesta athygli hefur vakið, er fyrir vínfirmað Bols, og drykki þess. Bols gin er þekkt hér. Auglýsingar }>essar eru eingöngu svart- hvítar, allar mjög vel gerðar, og er þar tengt saman á listrænan hátt gamalt og nýtt, fyrsta flokks ljós- myndir, texti, teikning og typografía (setn.). Önnur og ekki ósvipuð herferð er fyrir sígarettur „Peter Stuyvesant“, en þar eru litir og önnur upp bygging til fyrirmyndar. Sígarettutegund þessi var svo til óþekkt í Þýzkalandi fyrir tveim árum, en er nú ein mest keypta tegundin þar. Önnur fyrir- tæki heimsþekkt sem fræg eru fyrir auglýsingar sínar og hafa mótuð sérkenni, eru t. d. Sviss Air, Mercedes Benz, Citroen, IBM, og General Dyna- mics. Ýmis fyrirtæki hafa oft góðar auglýsingar, en ekki gegnumfærðan stíl, eins og t. d. Opel og Coca Cola. Það ætti að vera almennt áhugamál hér, bæði hins opinbera sem einkafyrirtækja, að styðja og efla þróun auglýsingagerðar, enda fer sá skilningur ört vaxandi. Þörf þjóðfélags okkar fyrir auglýsinga- starfsemi er mikil. Má í því sambandi nefna, að við lifum á útflutningi fiskafurða í harðri sam- keppni við fjársterkar þjóðir. Þróunin er auk þess í þá átt að fullvinna vöru okkar hér og selja beint til neytenda. í flestum þeim löndum er við okkur keppa í útflutningi og sérstaklega í ýmsum þeim löndum sem af okkur kaupa, er auglýsingagerð kom- in langt á veg og fullur skilningur ríkjandi á nauð- syn og tilgangi auglýsinga. Þörf okkar fyrir eigin fagmenn, góðar auglýs- ingar og umbúðir er því mikil, þar sem samkeppnin er hörð og verkefni næg. Fá þarf hingað sérfróða Framh. á b)s. 13 6 FRJÁLS VERZLTJN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.