Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Qupperneq 7

Frjáls verslun - 01.04.1963, Qupperneq 7
Rætt við Sigurð Helgason íramkvæmdastjóra Verzlanasambandið var stofnað sem samningsaðili Fréttamaður Frjálsrar verzlunar hitti nýlega að máli Sigurð Helgason framkvæmdastjóra Verzlana- sambandsins hf. og spurði hann undan og ofan af aðdraganda, stofnun og starfsemi sambandsins, sem Sigurður hefur stjórnað sl. þrjú ár, en hafði áður verið fulltrúi þar á annað ár. Sex stofnendur — hluthafar nú 81 — Hvenær var Verzlanasambandið stofnað? — Fað var G. nóvember 1954, að saman komu hér í Reykjavík forráðamenn og fulltrúar sex verzl- unarfyrirtækja utan Reykjavíkur, kaupmennirnir Tómas Björnsson frá Akureyri, Sigurður Agústs- son frá Stykkisliólmi, Sigurður Óli Ólafsson frá Sel- fossi, Friðrik Þórðarson frá Borgarnesi, Magnús Árnason fyrir hönd tveggja kaupmanna, Gunnars Árnasonar á Akureyri og Brynjólfs Sveinssonar á Ólafsfirði, og loks fulltrúi fyrir Kaupfélag Ólafs- víkur. Eins og segir orðrétt í fundargerð stofn- fundar: „Voru þessir menn mættir að ræða stofnun hlutafélags í þeim tilgangi að annast vöruinnkaup fyrir hluthafana og aðra, ýmist innanland.s eða er- lendis frá, hafa með höndum dreifingu þeirra með leiguskipum, eigin skipum eða öðrum flutninga- skipum, hafa með höndum lánaútveganir til handa félagsmönnum og yfirleitt að inna af hendi hvers- konar umboðsmennsku vegna hluthafanna, sem æskileg og nauðsynleg þktti og eftir því, sem ákveð- ið kynni að vera á hverjum tíma af félagsfundi eða félagsstjórn. Félagið getur og haft á hendi sölu ís- lenzkra afurða. Verzlanasambandið var stofnað sem hlutafélag og hefir verið síðan. Á stofnfundi var Tómas Björnsson byggingavörukaupmaður kosinn formaður félagsstjórnar, og gegndi hann því unz hann lézt. Þá var kosinn formaður Sigurður Óli Ólafsson og hefur verið það síðan. Aðrir í stjórn Verzlanasambandsins eru Ólafur Jónsson í Sand- gerði varaformaður, Friðrik Þórðarson í Borgar- nesi, Ragnar Jónsson í Vík í Mýrdal, Jónatan Ein- arsson í Bolungarvík, Árni Árnason á Akureyri, en í varastjórn Einar Guðfinnsson í Bolungarvík og Sigurður Ágústsson í Stykkishólmi. Verzlanasam- bandið tók til starfa 1955 undir framkvæmdastjórn Helga Bergssonar, en síðan hann lét. af því starfi í september 1959, hef ég haft það á hendi. Verzl- anasambandið var stofnað með 120 þúsund króna hlutafé, en nú er hlutaféð komið í 1,5 milljón króna, og hluthafar orðnir 81 að tölu. Stofnað sem samningsaðili — Hver var raunveruleg orsök eða aðdragandi að stofnun Verzlanasambandsins? — Þetta snerist um eina vörutegund í upphafi, kaup og innflutning á timbri. Á þeim tíma var timbur að mestu leyti keypt frá Rússlandi, og þá kaupmenn utan Reykjavíkur, er keyptu timbur af Rússum, vantaði tilfinnanlega samningsaðila fyrir sína hönd. í byggingavörum almennt hefur verið leitazt við að útvega kaupmönnum þessa vöru þannig, að álagningin sé þeirra, tekin aðeins 2—3% í milliþóknun, jafnhátt og SÍS gerir gagnvart kaup- félögunum. Sala hjá kaupmönnum og verzlunar- félögum hefur aukizt gífurlega síðan, og má nefna sem dæmi, að fyrst eftir að sambandið var stofnað seldu þeir um 500 standarda af timbri, en nú selja þeir 2000 standarda árlega, og svipað má segja um aðra flokka byggingavöru. Næsta skrefið var afurðasala — En svo fór Verzlanasambandið að færa út kvíarnar? — Þeir aðiljar Verzlanasasmbandsins, er höfðu sláturhús á sínum snærum, áttu í miklum erfiðleik- um á þessum árum með sölu á landbúnaðarafurð- FRJÁLS VERZLTJN 7

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.