Frjáls verslun - 01.04.1963, Síða 10
afgírtu svæði fyrir framan geymsluhúsið. Inn á
þetta svæði er farið í gegnum hlið, og er það eina
innkoman á tollgæzlusvæðið. Þegar inn kemur er
einstefnuakstur til vinstri og síðan ekið meðfram
húsinu, en á því eru þrennar dyr ,sem allar vita
út að hinu opna, afgirta svæði, sem í fyrsta áfanga
verður ca. 5500 fermetra. Það skal tekið t’ram, að
þótt þessi lausn hefði ekki verið óumflýjanleg um-
ferðarinnar vegna, þá tel ég að hún hefði eigi að
síður verið rétt og sjálfsögð. Á útisvæðinu skapast
stórfelld aðstaða til að geyma vörur, sem ekki þurfa
húsaskjól — þannig að lóðina má nýta að fullu til
geymslu á vörum, þ. e. a. s. að nauðsynlegum ak-
brautum undanskyldum.
Geymslupláss á útisvæðinu verður að sjálfsögðu
miklum mun ódýrara en innan húss. Ég geri ráð
fyrir að fyrirtæki, sem t. d. flytja inn rafmagns-
kapla, steypustyrktarjárn, eða annað slíkt, sem
sem hæglega má geyma undir berum himni, hefði
þótt það harðir kostir, að verða að leigja dýrt hús-
næði fyrir slíkar vörur.
Eftir því sem mér er tjáð mun fjöldi hluthafa í
Tollvörugeymslunni hf. vera á milli 250 og 260. Eins
og áður er sagt, er hús það, sem nú hefir verið
reist, 2448 fermetrar. Húspláss á hluthafa er því
innan við 10 fermetra, og þegar þess er gætt að
þarna eiga hlut að máli mörg stórfyrirtæki, þá
virðist eðlilegt að álíta, að núverandi hús verði
tveimur áföngum, en að sjálfsögðu má einnig gera
það í smærri áföngum eftir því sem henta þykir,
en hvernig sem að því verður staðið, má vinna að
stækkunum án þess að trufla á nokkurn hátt rekst-
ur þess hluta mannvirkisins, sem kominn er í notk-
un á hverjum tíma. Þetta er að sjálfsögðu mjög
mikilsvert atriði, því að tollyfirvöldin mundu
örugglega ekki slaka á öryggiskröfum sínum livað
snertir girðingar og annað meðan á framkvæmdum
stæði við nýbyggingar. í framtíðinni er svo fyrir-
hugað, að byggð verði höfn á ströndinni norðan
við tollvörugeymsluliúsið. Ef að af því verður,
myndi trúlega verða hagkvæmara að hafa inn-
keyrsluna í tollvörugeymsluna beint frá slíkri höfn.
í heildaráætluninni um verk þetta hefir verið
gert ráð fyrir að flytja megi innkeyrsluna, sem
fyrst í stað verður frá Héðinsgötu, í norðvestur-
horn lóðarinnar gegnt væntanlegri höfn.
Eins og áður er sagt er á uppdráttum þeim,
sem hér liggja fyrir gert ráð fyrir stækkun í tveim-
ur áföngum:
1. áfangi er eins og þegar er upplýst:
Hús 2448 m2 13.500 nr
Útipláss 5500 m2
2. áfangi, stækkun, hús 2160 m2 12.000 nv
Útipláss, stækkun 500 m2
3. áfangi, hús, stækkun 3456 m2 10.000 m:
Útipláss, slækkun 4662 m2
Byggingaríramkvæmdir við
iyrsta áianga Tollvörugeymsl-
unnar við Héðinsgötu.
orðið of lítið eftir skamman tíma. Því hefir verfð
gert ráð fyrir, að stækka megi mannvirkið í áföng-
um. í upprunalegri áætlun og á uppdráttum þeim,
sem hér liggja frammi er gert ráð fyrir stækkun í
Þegar lóðin er fullnýtt verður samanlagt flatar-
mál húsa þannig 8064 fermetrar og samanlagt flat-
armál útisvæða 10662 fermetrar. Hús þessi eru öll
fyrirhuguð með sama eða svipuðu sniði og það sem
10
frjáls verzlun