Frjáls verslun - 01.04.1963, Síða 18
Howard Hughes. Milljónamæringur — sérvilur snillingur.
Fjölhæfur snillingur
Howard Hughes var aðeins 19 ára að aldri þegar
hann tók við stjórn á fyrirtæki föður síns, Hughes
Tool Company, sem þá var metið á tæpa 700.000
dali. í dag er hann 56 ára og svo sem áður segir
eru fyrirtæki hans metin á nær 1 milljarð dala. Þau
framleiða allt frá bjór til eldflauga og gervihnatta.
Auk eignarhluta síns í T. W. A. hefur Hughes ný-
lega komizt yfir meirihluta í öðru stóru bandarísku
flugfélagi, Northeast Airlines.
En jafnframt ]>ví að byggja upp þessi miklu
fyrirtæki hefur Hughes afrekað ýmislegt annað. A
sínum yngri árum teiknaði hann sjálfur og flaug
mörgum gerðum lilraunaflugvéla og kom fram með
margar nýjungar í flugvélasmíði, sem notaðar eru
enn þann dag í dag. Hann gat sér mikið frægðar-
orð fyrir að fljúga kringum hnöttinn á þremur
dögum og komst fjórum sinnum naumlega b'fs af
úr flugslysum, þegar liann var að gera tilraunir með
nýjar tegundir flugvéla.
Á unga aldri hóf hann mikil umsvif í Hollywood,
framleiddi margar frægar kvikmyndir og stjórnaði
þeim.
Af þessu má sjá að hér er enginn meðalmaður á
ferð. Á síðustu árum hefur Howard Hughes nálgast
það að verða þjóðsagnapersóna í Bandaríkjunum,
ekki sízt vegna þess að hann hefur ekki sést síðan
á árinu 1957. Fjöldi leynilögreglumanna, sem starf-
að hafa á vegum ýmissa aðila, sem liafa talið sér
nauðsynlegt að hafa upp á honum, hafa leitað hans
árangurslaust í sex ár. Nánustu samstarfsmenn hans
þekkja hann ekki nema sem rödd í síma. Sagt er
að hann vinni aðallega um nætur og á þeim tíma
geta forstjórar hans helzt átt von á því að hann
hringi þá upp. En fyrirtæki hans, utan T. W. A.,
halda áfram að vaxa og dafna þrátt fvrir þennan
sérvitringshátt Hughes. Og þótt svo virðist sem
Hughes eigi við ofurefli að etja í baráttunni við
T. W. A. segja þeir sem bezt þekkja til að það
væru mikil mistök að ganga út frá því sem vísu að
Howard Hughes tapi þeirri orustu.
Atvinnudeild háskólans . . .
Framhald af bls. 16
ast eða sjá um tilteknar rannsóknir, eftir því sem
ríkisstjórnin óskar og fé er veitt til í fjárlögum eða
af Náttúrufræðideild Menningarsjóðs. Að gæta
hagsmuna íslenzkra náttúrufræðinga gagnvart út-
lendingum, sem hingað koma til rannsókna og að
koma fram af landsins hálfu við fræðimenn ann-
arra þjóða að því leyti, er við á. Framkvæmda-
stjórar Rannsóknaráðs ríkisins liafa verið þessir:
Steinþór Sigurðsson stjörnufræðingur frá byrjun og
unz hann lézt 1947, Þorbjörn Sigurgeirsson eðlis-
fræðingur frá 1949 til 1957, og Steingrímur Her-
mannsson verkfræðingur síðan 1957.
Rannsóknaráð hafði með höndum fyrstu leit að
heitu vatni og gufu með parðborunum til ársins
1945, er það var falið raforkumálastjórn. Ráðið hóf
og rak mórannsóknir á árunum 1939—40, studdi
rannsóknir á fuglalífi og jarðefna, hefur haft af-
skipti af verksmiðjurannsóknum. Rannsóknaráð
setti á stofn tilraunastöð í meinafræði á Keldum,
sem síðan var falin Háskóla íslands. Segulmæling-
um var komið á fót í Mosfellssveit, en þær eru nú
á vegum Eðlisfræðistofnunar háskólans. Seinni árin
hefur ráðið stutt tilraunir í grasmjöls- og heyverk-
un. Unnið er að ýtarlegri athugun á fjármagni til
rannsókna og tilrauna hér á landi, en þær eru undir-
staða að mörkun heilbrigðrar vísindastefnu.
18
FRJÁLSVERZLUN