Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Qupperneq 20

Frjáls verslun - 01.04.1963, Qupperneq 20
AF ERLENDUM VETTVANGI TVÖ ÁR MEÐ KENNEDY Fáir menn hafa hlotið jafn skjótan og glæstan frama á stjórnmálabrautinni, sem John F. Kennedy núverandi forseti Bandaríkjanna. Augu alls heims- ins hafa hvílt á honum frá því að hann var út- nefndur forsetaefni demókrata og raunar áður, vegna hæfileika hans og hinnar frægu fjölskyldu, sein hann telst til. Við hann voru bundnar miklar vonir, þegar hann var kjörinn forseti Bandaríkj- anna 1960 og því fróðlegt að líta yfir verk hans að lokinni tveggja ára setu í Hvíta húsinu. Kosningaloforð og efndir í kosningabaráttu sinni var það einkum þrennt sem Kennedy þáverandi öldungadeildarþingmaður lagð megináherzlu á. í fyrsta Iagi, að áliti Banda- ríkjanna erlendis hefði mjög hrakað og því yrði að kippa í lag, í öðru lagi, að andvaraleysi stjórnar Dwight D .Eisenhower hefði orðið til þess að Rúss- ar stæðu Bandaríkjamönnum langt framar í eld- flaugasmíð og hefðu þegar komið sér upp svo mikl- um fjölda eldflauga búnum kjarnorkusprengjum, að valdajafnvægið í heiminum væri í bráðri hættu, og í þriðja lagi að almenn stöðnun ríkti á sviði efna- hags- og félagsmála í Bandarikjunum og við svo búið væri ekki hægt að hita standa. Lítum fyrst á vopnajafnvægið. Þau tíðindi gcrð- ust um leið og Kennedy hafði tekið við forseta- embætti, að hætt var að tala um að valdajafnvægið í heiminum væri í hættu vegna yfirburða Rússa á sviði eldflaugasmíði og nokkru eftir að stjórnin tók við lýsti MacNamara varnarmálaráðherra yfir því að forskot Rússa i þessum efnum hefði verið stór- lega ýkt. Það var raunar einmitt það sem Eisen- hower hafði jafnan haldið fram, en enginn vil jað taka trúanlegt. Fullyrðingar sínar um það, að áliti Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi í tíð Eisenhow- ers hefði hrakað mjög, byggði Kennedy fyrst og fremst á skoðanakönnun, sem hann kvað hafa verið framkvæmda á vegum opinberra aðila í Banda- ríkjunum, en þeir neituðu að birta vegna óhag- stæðrar útkomu. Niðurstaða þessarar skoðanakönn- unar hefur aldrei verið birt. Hins vegar fullyrða bandarísk blöð nú og það hefur verið viðurkennt af opinberri hálfu, að slík skoðanakönnun hafi ný- lega verið framkvæmd um sama mál. Nú bregður svo við, að ríkisstjórn Kennedys hefur harðneitað að birta úrslit þessarar skoðanakönnunar og bendir það til þess, að niðurstöður hennar hafi ekki verið stjórninni hagstæðar. Á sviði innanlandsmála er þá sögu að segja að bandarískt efnahagslíf hefur enn ekki sprett úr spori að nokkru ráði eftir að Kennedy tók við og 20 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.