Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Side 22

Frjáls verslun - 01.04.1963, Side 22
Þorsteinn Jósepsson, rithöfundur: ILLR/EMD HEIÐARSLÓÐ Margar eru heiðarnar á íslandi sviplitlar, lág- kúrulegar og leiðinlegar. Ein í þeirra hópi er Reykja- heiði í Þingeyjarsýslu, en um hana liggja mörkin milli Suður- og Norður-Þingeyjarsýslu. Þetta er leiðindaheiði í orðsins eiginlegustu merk- ingu. Þar skiptast löngum á melásar og ávalar bungur og tilbreytingarleysið endurtekur sig þar kílómetra eftir kílómetra. Það er ekki fyrr en kom- ið er niður í byggð sínu hvoru megin heiðarinnar sem landið breytir skyndilega um svip og þá mjög til hins betra. Úrfelli er jafnan mikið á Reykjaheiði. Þetta er óveðrabæli hið mesta, og enda þótt hún sé hvorki brött né há, lokast akvegurinn um hana snemma á haustin og verður ekki fær aftur fyrr en seint á vorin. Liggur snjóbeðja á henni jafnan langt fram á vor. Veðrabrigði eru oft og tíðum mjög snögg, enda er lleykjaheiði í röð þeirra fjallvega á íslandi sem torsóttastir hafa verið yfirferðar, bæði sökum mikilla vegalengda, ófærðar meiri hluta ársins og loks vegna þess hve villugjarnt er á heiðinni í dimmviðrum. Tvær leiðir voru einkum farnar yfir Reykjaheiði áður en akvegur var ruddur yfir hana. Onnur leið- in nefndist Bláskógavegur og lá frá bænum Undir- vegg í Kelduhverfi, hin leiðin lá frá bænum Fjöll- um, suður með fjallgarði þeim sem bærinn stendur undir, en beygði síðan á miðri leið til vesturs og komu þar báðir vegirnir saman. Sæluhús var lengi á heiðinni, þar esm nú heitir Sæluhússmúli. Þó er langt síðan að það var lagt niður, en tættur þess sjást enn rétt við veginn. Vestan við Sæluhússmúla er Höfuðreiðarmúli og enn vestar svokallaðar Höfuðreiðar. Sagt er að það nafn sé þannig til komið, að er sendimenn Haralds konungs hárfagra höfðu drepið Víking á Víkingavatni, tóku þeir höfuð hans með sér og ætl- uðu að færa það konungi. Á Reykjaheiði varð þeim litið til höfuðsins og sáu það gapa og geispa af- skaplega. SIó á þá ótta af þessari óhugnanlegu og ferlegu sýn og grófu höfuðið þar sem þeir voru staddir. Heita þar síðan Höfuðreiðar. Frá Höfuðreiðarmúla lágu áður tvær aðalleiðir vestur af Reykjaheiði, önnur þar sem nú er bíl- leiðin til Húsavíkur, hin vestur með Lambafjöll- um um Höfuðreiðar og Geldingsdal niður í Reykja- hverfi. Fram til þess að bílvegur var ruddur yfir heiðina var síðarnefnda leiðin miklu fjölfarnari og talin aðalleiðin yfir Reykjaheiði. Fyrstu sagnir Allt frá því er liöfuð Víkings bónda á Víkinga- vatni geispaði á Höfuðreiðum liafa margir undar- legir og válegir atburðir gerzt á Reykjaheiði og hún má teljast í röð sögulegustu fjallaleiða á íslandi. Eina fyrstu heimild um atburði, sem skeð hafa á Reykjaheiði, er að finna í Grettissögu. Þar segir frá því er Grettir lék á Þóri í Garði með því að dulbúast og beina Þóri og fylgdarliði út í ófærar mýrar og keldur á heiðinni og skaprauna þeim á þann veg. Sá einn ljóður er á þessari frásögn, að á Reykjaheiði eru engar keldur né mýrar til. Hér er því annaðhvort um hreinan skáldskap að ræða eða þá að höfundur hefur farið heiðavillt og meint t. d. Axarfjarðarheiði, sem öllu líklegra má telja. í gömlum annálum kemur Reykjaheiði oft við sögu. Þar segir m. a. að árið 1629 hafi tvo menn kalið til bana á Reykjaheiði og var þó komið fram- yfir sumarmál. Árið 1700 skeður válegur og næsta ótrúlegur at- burður á Reykjaheiði síðla sumars, eða seint í ágústmánuði að talið er. Um hann segir Grímsstaða- annáll orðrétt á þessa leið: FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.